Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1934, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 06.05.1934, Blaðsíða 3
LESBÓK M0RGUNBLAÐSIN8 147 Jökulsprunga. Skriðjökull, sem er að eyðast af eldi og vatni. (svokallaða þangað til rjett nafn hennar er fram komið) og Jökul- bungu. Gígurinn frá 1903 er næst- um með ummerkjum að austan við gnýpuna og annar gígur er þar vestar ekki allgamall. Sumstaðar malast jökulskriðið svo við sprungubarmana að ísinn skrúf- ar sig upp í bólstra. Norðurhlið Geirvartna er lóð- rjett standberg en Hágöngur eru gegnumskornar af fornum basalt- hraunstraumum. Standa hraun- drangarnir víða eftir þar sem aðr- ar mýkri steintegundir hafa hrun- ið frá og mynda fegurstu turn- kirkjur í gotneskum stíl. Á Vatnajökli eru engar „þúf- ur“ eða „hólar“, heldur mjúkar, ávalar bungur, fegursta skíða- svæði í Evrópu, þegar ekki er aska og vikur til tafar. Þar munu afkomendur vorir iðka liina hvítu íþrótt og' kappakstur á hunda- sleðum. Þá mun Ferðafjelag ís- lands eiga skála í Álfagili við Djúpárbotna undir Langaskeri og hver unglingur sem ekki getur gengið hæglega 50 kílómetra á skíðum verður settur á letigarð. — Hvað sem öllum framtíðar- draumum líður — verður ekki talað um Svíagíg framvegis, .heldur Grímsvötn og Gríms- vatnahver og fræðimönnum vor- um er treystandi til að losa oss við öll hin örnefna- skrípin, sem hefir verið dreift hingað og þangað um Vatnajökul á síðari tímum. Eld&töðvarnar . í Grímsvötnum og samband þeirra við Skeiðarár- hlaupin, ásamt öllum þeim ægi- legu ummerkjum, mega ekki vera lengur órannsökuð. Það ætti að vera metnaður vor að ganga skjótar að verki en þeg- ar Kötlugjá gaus síðast 1918. Eigi er ósennilegt að önnur eld- vörp sjeu norðan jökuls frá því í haust, þótt dreg'ið hafi verið í efa að þar hafi hraun runnið. Þótti mjer það undarleg ályktun eftir staðháttum. Síðar mun jeg reyna að rök- styðja þá ágiskun mína, að Vatna- jökull hafi á söguöld verið alt að þriðjungi minni en á 19. öld og hvers vegna hann var áður nefnd- ur Klofa-jökull. Eigandi smábílsins: Sko dón- ann, nú hefir hann aftur stolið öllu bensíninu frá mjer til þess að fylla vindlakveikjarann - -sinn. Víðsjá. Erfðaskrá. Gömul kona dó nýlega í Eng- iandi. Hún hafði gert erfðaskrá. arfleitt kisu sína að 1200 krónum, en allar aðrar eigur sínar ha'ði hún ánafnað ýmsum góðgerða- otofnunum. Ættingjar henna.- fengu ekki einn einasta eyri. Siðferði bolsa. Fjórtán ára gömul stúlka í Rússlandi kærði föður sinn fyrir yfirvöldunum vegna þess að hann hefði stungið korni undan. Fað- iÝinn var settur í fangelsi, en stúlkan var send til skemtidvalar ruður á Krím og auk þess fekk liún skriflegt vottorð um það? að hún hefði gert föðurlandi sínu atórgreiða. Ungu stúlkurnar, sem ætla sjer að komast að hirð Bretakonungs, verða að vera vel efnum búnar. „Daily Express" hefir reíknað hvað það muni kosta mikið að búa þær undir það, og komst að þeirri niður- stöðu að það mundi vera 90 þús- undir króna. En fyrir þetta hefir unga stúlkan lært að hneygja sig fallega, tala ensku og frönsku, veit hvernig hún á að vera klædd við hvert tækifæri o. s. frv. Betra en kraftfóður. .1 frostunum í vetur fann for- stjórinn fyrir kúaræktarbúi í Salem í Bandaríkjunum upp á því að gefa kúnum áfengt öl að drekka, svo að þær heldi betur á sjer hita. En þetta hafði þau á- hrif, að kýrnar græddu sig stór- kostleg'a og hafa mjólkað svo vel, að furðu' gegnir. Meðal bindind- is og bannmanna hefir þetta uppá- tæki vakið fádæma gremju. Bandaríkjaforseti svartur. Málgagn Mussolinis ^Popolo d’Italia“ gerir nýlega að umtals- efni hina öru fjölgun Svertingja í Bandaríkjunum. Þeir eru nú 12 miljónir. Segir blaðið að ekki sje annað sýnna en að 100 árum liðnum verði forseti Bandaríkja Svertingi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.