Lesbók Morgunblaðsins - 02.09.1934, Page 6

Lesbók Morgunblaðsins - 02.09.1934, Page 6
286 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Bakarameistaraf jelag Reykjavíkur. Efsta röð: Kristinn Magnússon, Ingi Halldórsson, Ágúst Jónsson, Magnús Kristjánsson, Björgvin Friðriksson. Mið- röð: F. A. Kerff, Björn Björnsson, Theódór Magnússon, Ingimar Jónsson, Jón Símonarson, Jón E. Guðmundsson. Neðsta röð: Davið Ólafsson, Gísli Ólafsson. Guðmundur Ólafsson, Sveinn Hjartarson, Stefán Sandholt. Þá er þama vjel til að sníða sundur tvíbökur, en það er g-ertj þegar þær eru einbakaðar aðeins, og seinni baksturinn eftir. Yatnshitageymir er þar, er hitar vatn með gufu í vist hita- stig, og verður sjeð upp á gráðu, hvenær sem er, hvaða hitastig vatnið hefir. Hitaskápur er þar, sem brauð- deigi er stungið inn í til þess að „hevast“. Þá em þar deig'trog stærri og smærri, flest á hjólum. ,Að ógleymdum bökunarofni eða ofnum, ef fleiri em. Bökunarofnar í stórum brauð- gerðarhúsum era mikið bákn. í brauðgerðarhiisiiiu sem jeg skoð- aði um daginn eru tvö bökunar- hólf í ofni„ er hafa samtals um 10 fermetra flatarmál. Þar er auk þess sjerstakur ofn fyrir seidd rúgbrauð, er bæjarbú- ar hafa heimtað á markaðinn hin síðustu ár, og allir kannast við. Era þau brauð seinbökuð við hæg- ari hita en önnur brauð, eru þau í ofninum um 14—15 klst. Bakarofnar eru kyntir á kvöld- in þetta 4—5 klst. Er þeir eru hitaðir það mikið hafa þeir í sjer nægan hita til bökunar allan næsta dag, þó eigi sje hirt um að bæta við hitann eða halda eldi lifandi. Hjer fyrr meir voru vinnustofur brauðgerðarhúsa stundum hvorki bjartar nje loftgóðar. En í nýtísku brauðgerðarhúsum hjer í bænum eru virinustofur bjartar og veggir flísalagðir til lofts, svo auðvelt er með alt hreinlæti. Vinnan. Kl. 5—6 að morgni g'anga bak- arar til vinnu sinnar. Þar sem eru 4—5 sveinar ásamt meistara, og vinnuvjelar í notkun, gengur verkið mjög' fljótt úr hendi. Bakarameistari segir fyrir verkum, og gengur hver sveinn að sínu ákveðna starfi, því mörg eru verkin endurtekin daglega. Meistarinn býr í hendujr svein- anna, segir fyrir um samsetning og hve mikið skuli gert af hverri tegund þann dag'inn. Því jafnan leitast bakarar við, að baka ekki meira en svo, að upp sjé selt að kvöldi. Yínarbrauðin eru með fyrstu liðum á dagskránni. Deig þeirra er ekki sett í eltikerið, því þá yrði það of seigt, þar eð þarf að hnoða í þau svo miklu af smjöri. Eru sveinar handfljótir með deig þetta, sem húsbóndinn hefir blandað, að fletja það út yfir vinnuborðið í fermetratali, uns það er fullunnið sett í lengju, skorin, og vegin hver brauð- stöng, og síðan útbiiið til bakst- urs. Vínarbrauðin þurfa að vera til taks, úr því kl. er 9 að morgni. Þá er verklega farið með fransk brauðin. Deigið er blandað í elti- kerinu, helt í það heilum sekk af hveiti, eða meira í einu, og' látið annað sem til þarf. Bakarasveinn vinnur við eltiker- ið, tekur í deigið á móti þvörunni. Að stundarfjórðungi liðnum er deig'ið fullhnoðað. Tekur sveinninn þá deigið upp úr kerinu í nokkr- um „föngum“, og slengir því ann- aðhvort á vinnuborðið eða í deig- trog. Síðan er deigið itékið til meðferð ar og því skift í vissa þyngd og brauðin sett í hitaskápinn, uns þau eru „hevuð“ nægilega, þá eru þau

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.