Lesbók Morgunblaðsins - 21.10.1934, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLABSINS
843
Víkurkirkja.
Eins og getið hefir verið í Mbl.
var hin nýja kirkja í Vík í Mýr-
dal vígð síðastl. sunnudag (14. þ.
m.). Var þetta viðburður í kirkju-
inálalífi þar eystra og einnig að
ýmsu leyti í kirkjubyggingasögu
þjóðarinnar.
Kirkja þessi er bygð úr steini
og stendur á svonefndu Skeri við
Víkurkauptún, háttgnæfandi á
fögrum stað. Er hún nú fullgerð
og' er meðal veglegustu kirkju-
húsa í hjeruðum utan aðalkaup-
staðanna hjer á landi. Bygging
kirkjunnar hefir staðið yfir í 4
ár (byrjuð 1931) og hefir yfirsmið
ur verið Matthías Einarsson húsa-
smiður frá Þórisholti. Að öllu er
húsið hið vandaðasta, bæði að ut-
an og innan; rúmast þar í sæti
200 manns að minsta kosti. Kirkj-
an er raflýst og einnig er rafhit-
unartækjum komið fyrir í henni.
Uppkomin kostar kirkjan, með
því öllu, er til hennar heyrir, ekki
minna en 30 þús. kr.
I Vík hefir eigi áður verið
kirkjuhús, og myndaðist hinn nýi
Víkursöfnuður fyrir nokkrum ár-
um, með því að hinn gamli Keyn-
issöfnuður í Mýrdal skiftist í
tvent og varð Víkurkauptún —
með hinni fornu Höíðabrekku-
sókn, þar sem kirkja lagðist nið-
ur — kirkjusókn fyrir sig'. Hjá
þessum nýja söfnuði glæddist nú
einstakur áhugi fyrir kirkju-
byggingu á þessum stað, og vildu
margir, að því er segja má, alt
til þess vinna, að hún kæmist upp
sem fyrst og yrði sem reisuleg-
ust. Til kostnaðarins var tekið að
láni alls kr. 10.000 eða þriðjung-
ur aðeins, hinn hlutann, tvo
þriðjung'a eða eigi minna en kr.
20.000.00 lögðu einstaklingar
í söfnuðinum til úr sínum vasa,
bæði í peningum og vinnu (sem
gjafir og áheit), og fjelagsskap-
ur á staðuum, svo sem Sparisjóð-
urinn í Vík, Kvenfjelagið og raf-
veitan studdi fyrirtækið að stór-
um mun (jafnvel burtfluttir Mýr-
dælir hafa lagt dálítinn skerf til
kirkjunnar eða muna í hana).
í kirkjuna er komið nýtt orgel,
fengið frá Svíþjóð, og er það hið
vandaðasta. Organistastarfinu þjón
ar nii Sigurjón Kjartansson kaup-
fjelagsstjóri. — Prýðileg ný alt-
aristafla er og til fengin, máluð
af Brynjólfi Þórðarsyni listmál-
ara.
Áhuginn og fórnfýsin, ágætt og
fágætt samstarf án alls flokka-
dráttar, hefir einkent alt þetta
verk frá byrjun, — og fyrir þær
Kirkjan að innan.
sakir hefir það haft farsællegan
enda.
Fyrir framkvæmdum öllum liafa
staðið nokkrir áhugamenn í kaup-
tiininu, kjörnir af safnaðarfund-
um, og skipuðu þeir kirkjunefnd,
er svo hjet, sem sje þessir: Gísli
Sveinsson sýslumaður (formaður
nefndarinnar), Einar Erlendsson
bókari hjá Kaupfjel. Skaftfellinga
(sem einnig er oddviti sóknar-
nefndar), Olafur J. Halldórsson
kaupmaður (sem nú er látinn),
Olafur Jónsson bókari hjá versl.
Halld. Jónssonar, allir í Vík, og
Þorst. Einarsson óðalsbóndi á
Höfðabrekku.
AstralíuflugiÖ.
James Melrose,
ástralskur flugmaður, sem tekur
þátt í hinu mikla kappflugi frá
Englandi til Melbourne í Ástralíu.
Hann kom nýlega fljúgandi frá
Ástralíu til Englands og var 8\<>
sólarhring á leiðinni og er það
nýtt met. Mollison flugmaður
(sem keppir í Ástralíufluginu á-
samt ltonu sinni) átti metið áður
í hraðflugi milli Ástralíu og Eng-
lands, en hann var 9 sólarhringa
á ieiðinni. Myndin hjér að ofan
er tekin af Melrose, þegar hann
kom til flugvallarins Croydon í
Englandi og er varðmaður á flug-
vellinum að óska honum til ham-
ingju með flugafrekið.