Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1935, Blaðsíða 6
Amsterdam. Mynd þessi er frá Amsterdam. Um elsta hluta borgarinnar liggja ótlejandi skipa-
skurðir og er þar mikil bátaumferð. f baksýn á miðri myndinni, er Mint-turninn, sem bygður var
meðan Amsterdam var aðeins dálítið fiskiþorp.
Draugasaga.
Saga þessi gerðist í gamalli höll
í Englandi.
Þangað kom gestur öllum að
óvörum og beiddist gistingar. En
þar eð margir gestir voru þarna
fyrir, varð að láta hann sofa í
herbergi, þar sem reimleikar mikl-
ir voru. Honum var sagt frá þessu,
en hann kvaðst hvergi smeikur
við drauga.
Þegar hann ætlaði að ganga til
hvílu, rjett fyrir klukkan 24, bað
liann þjón að láta sig fá rakvatn.
Þjóninum hnykti sýnilega við og
spurði hvort það mætti ekki bíða
til morgunns.
— Hvers vegna ? spurði gestur-
inn.
Þjóninn skýrði honum frá því
að fyrverandi eigandi hallarinnar
og faðir hans hefði báðir dáið í
þessu herbergi kl. 24, er þeir voru
að raka sig. Hefði þeir fundist
morguninn eftir skornir á háls.
Það hefði draugurinn gert.
— Það gerir ekkert til, mælti
gesturinn. Látið mig fá rakvatnið.
Hann fekk það.
Morgunin eftir fór þjónninn með
hálfum huga til herbergisins — en
hitti þar gestinn ljóslifandi.
— Hafið þjer ekki orðið varir
við neitt? spurði þjónninn.
— Jú. Þegar jeg hafði sápað
mig í gærkvöldi og ætlaði að fara
að raka mig, sló klukkan 24. Og
í sama vetfangi var þrifið um
hönd mína og henni brugðið þann-
ig eins og ætti að skera mig á
háls. En það gerði ekkert til, því
að jeg nota ekki rakhníf heldur
rakvjel.
Gullnámur Krösus.
Tyrknesku blöðin fluttu nýlega
þá fregn að fundnar væru gull-
námur Krösus konungs hins ríka.
Oullnámurnar eru í Lydíu, og
hefir þeirra verið leitað í mörg
ár. Samgöngumálaráðuheytið hefir
nú tekið málið að sjer og hygst
að láta byrja vinnu í námunum.
Biskupinn af Exter
í Englandi, William Cecil lávarð-
ur, er nú 72 ára að aldri, en þó
fer hann daglega á hjóli milli
heimilis sins og dómkirkjunnar
og kærir sig kollóttan um hina
miklu umferð, sem er á leiðinni.