Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.1935, Síða 7
LÉSBÓK MORGUNBLAÐSINS
103
Göring,
varakanslari ætlar að gifta sig 11.
apríl næstkomandi. Konuefnið er
þýsk leikmær, Emmy Sonnemann
að nafni. Mynd þessi var tekin af
þeim, þegar þau höfðu opinberað
trúlofun sína.
Ekkert nýtt
undir sólunni.
Það er mesta vitleysa að halda
það að nokkuð sje nýtt undir sól-
unni, segir í dönsku blaði nýlega-
Það var nú t. d. Eva sem fann
upp „slagorðið“ : Borðið meiri á--
vexti! Hún sannaði öllu mann-
kyni að það er nauðsynlegt heils-
unnar vegna að borða eitt epli á
dag.
Alhr vita það að Herodes var
fyrsti maður sem stóð fyrir barna-
fækkunum.
Nói fann upp flugpóst; það er
á allra vitorði að hann fekk blað
með flugpósti þegar hann strand-
aði í örkinni á fjallinu Ararat.
Paris prins var dómari við fyrstu
fegurðarsamkeppnina, þegar þær
Hera, Aþena og Afrodite keptu
um hver ætti að vera fegurðar-
drotning heimsins.
Diogenes fann upp ný húsa-
kynni, en hann kunni ekki fremur
en byggingameistarar nú á dög-
um að gera íbúð sína þannig að
þangað heyrðist ækki hávaði. Það-
an er komið orðtækið: í tómri
tunnu bylur best!
Sverðfiskar
og hákarlar
veiddir á stöng.
Fjöldi Englendinga og Ameríku-
manna fer árlega til eyjanna aust-
an við Ástralíu og td Nýja Sjá-
lands til þess að veiða þar á stöng.
En það er ekki lax, sem þeir veiða
þar ,heldur beinhákarlar og sverð-
fiskar.
Mr. H. Withe-Wickham sem á
heima í Lonidon, fer þangað svo að
segja á hverju ári. Fyrir 5 árum
veiddi hann hákarl sem vóg 708
lbs. og er það stærsti hákarl, sem
enn hefir veiðst á stöng. Mr.
White-Wickham var í fullar tvær
stundir að fást við hákarlinn.
Annar enskur maður, Mitchell
kapteinn, hefir veitt þann stærsta
sverðfisk, sem veiðst hefir á
stöng. Sá fiskur vóg 976 lbs.
Fyrir sverðfisk er beitt söltum
laxi. Það þarf bæði sterkar taug-
ar og þolinmæði til þess að fást
við sverðfiskana, að sitja í völtum
bát og þurfa að hafa sig allan
við að draga, eða gefa eftir á lín-
iunni, eftir því hvernig svérðfisk-
urinn tekur sprettinn. Oft ráðast
sverðfiskar á bátana og þrátt fyr-
ir það þótt bátarnir sje hraðskreið-
ir og þeim vel stjórnað, keniur það
oft fyrir að þessar ægilegu sjó-
skepnur reka trjónuna, sem kall-
ast sverð, í gegn nm vjelbátana
og mölbrjóta þá.
Djófgefnir draugar
Það hefir kveðið allramt að
draugagangi í safninu á Sönder-
borgarhöll og hafa þeir ofsótt
safnvörðinn. En jafnframt hefir
það komið í ljós, að draugarnir
hafa verið fingralangir, því að
margir merkir munir hafa horfið,
þar á meðal malaiskt sverð og
mörg dýr héiðursmerki, sem voru
á gömlum einkennisbúningum.
— Konan mín er gull! Hún veit
alt J
—1 Mín er betri, hvin veit alt
betur en nokkur annar.
Barnaher.
Eins og kunnugt er hefir Muss-
olini skipað svo fyrir að allir
drengir frá 6—8 ára skuli æfðir
við herþjónustu. Þeir skipa sjer-
staka deild í ítalska hernum og
liafa fengið nafnið „Ylfingar“.
Á það rót sína að rekja til þjóð-
sögunnar um það að ulfynja hafi
fætt þá bræðurna Romulus og
Remus, sem bygðu Rómaborg.
Það er talið að í þessari deild
sje hálf önnur miljón drengja.
Japanar fara að dæmi ítala.Á að
koma þar á fót 15000 skólum, þar
sem 2V2 miljón barna og unglinga
eiga að nema hernaðarvísindi. —
Hjer á myndinni sjást tveir dreng
ir úr liernum. Er annar þeirra í
herforingjabúningi, en liinn í sjó-
liðsforingjabúningi.
Ungur öldungur,
Maður heitir Mujo Suljkano-
vitch og á heima í Zwornik, skamt
frá Belgrad. Hann helt nýlega
upp á 100 ára afmæli sitt með því
að gifta sig í fjórða sinn. Brúður-
in er 60 ára gömul. í æsku
gekk Mujo í skóla með móður
hennar.
— Tengdamóðir þín hafði ósk-
að sjer þess að fá bíl í afmæbs-
gjöf. Hversvegna gafstu henni þá
perluhálsband,
— Það er ekki hægt að fá óegta
bíl.