Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.1935, Blaðsíða 1
Sunnudaginn 23. júní 1935.
X. árgangur.
• fiiM'<rT>rentsmi0)a i t.
Helgafell
Ágrip — eftir Lúðvík Kriifjánsion.
Inst á Snæfellsnesi, norðan-
verðu, teygir sig nes nokkurt í
norður, er Þórsnes heitir. Fremst
í Þórsnesi stendur Stykkishólmur,
en nokkru ofar því miðju rís
Helgafell upp úr holtadrögunum,
73 m. hátt. Þegar upp á Helga-
fell er komið virðist það nær spor-
öskjulagað að ofan, en að austan
og norðan er það all þverhnýpt.
Vestanmegin er feliið talsvert á-
valt, en hallast þó mest beint til
suðurs, og stendur þar bærinn og
túnið.
Helgafell hefir verið nokkurs-
ltonar landvættur Þórsnesþings um
tíu alda skeið, — þögull áhorfandi
hinna helstu atburða á þessum
slóðum.
Þórólfur Mostrarskegg nam alt
Þórsnes. Hann var trúmaður mik-
i'U og þótti honum Þór öruggastur
til góðra heita. Mun trúin á Þór
hjer á landi hvergi hafa verið slík
sem í Þórsnesþingi, og benda til
þess ýmsir hlutir, þótt eigi verði
hjer nefndir nema fáir. AlUr synir
Þorláks á Eyri eru kendir við Þór,
fjórir af sjö sonum Þorfinns á
Rauðamel, auk þess sem Rauð-
melingar nefna sitt Helgafell
Þórisbjörg. Þórólfur Mostrar-
skegg kennir landnám sitt og son
við Þór og loks má geta þess að
Þuríðar nafnið er mjög algengt
þar í hjeraði. En hjer er sagan
Helgafell. Eftir málverki.
um trú Þórsnesinga eigi sögð nema
hálf, því í raun rjettri mótuðu
þeir sjálfir trú sína á tilveruna
eftir dauðann, og gerðu Helgafell
að því musteri, „at þangat skýldi
enginn maðr óþveginn líta, ok þar
var svá mikil friðhelgi, at engu
skyldi granda í fjallinu, hvárki
fje nje mönnum, nema sjálft gengi
braut, þat var trú þeirra Þórólfs
frænda at þeir dæi allir í fjallit".
Slík trú, sem hjer birtist var
eigi eins dæmi hjer á landi. Þess
getur víðar að menn dæi í fjöll
eða hóla. Trúin og helgin á Helga-
felli mun að einhverju leyti hafa
þorrið eftir að kristni hafði verið
lögtekin. En eigi að síður var
þjóðtrú Islendinga svo styrk, að
enn í dag eimir eftir af þeim hugs
unum, er tengdu fyrstu íbúa hjer-
aðsins við Helgafell. Flestir, sem
einhver skil kunna á Helgafelli
ganga upp á það í fyrsta sinn, án
þess að líta til vinstri nje
hægri. Með þrjár óskir í brjósti
er lagt á brattann og hvergi stað-
næmst fyr en komið er hæst á
fellið. Þá leggur vegfarandinn
óskir sínar í vald vættanna, sem
byggja fellið, með þeirri von að
látið verði skeika að sköpuðu um
afdrif þeirra. Slíkar og þvílíkar
eru stoðir íslenskrar þjóðtrúar,
að tönn tímans hefir ekki í rúmar
tíu aldir fengið máð burtu með
öllu úr vitund þjóðarinnar þá
trú, er Þórólfur Mostrarskegg