Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.1935, Síða 7
lesbAk morgunblaðsins
199
Kínverski múrinn. Fyrir skemstu rjeðust Japanar með herlið frá Munchuko suður í Kína og lögðu
undir sig mikinn hluta landsins. Er nú talið svo, að kínverski múrinn sje ekki lengur landamæri
Kína að norðan. Hjer á myndinni sjest kínverski múrinn og flutningalest japanska herliðsins, sem
fór inn í Kína.
að skrifa í minnisbækur vorar,
taka ljósmyndir og — dást að
náttúrunni.
Að norðaustan, austan og sunn-
an er Bárðargnýpa ávöl jökul-
bunga, en að norðan, vestan og
suðvestan eru hamrar og hengi-
flug með hrynjandi skriðjöklum
gengt Vonarskarði.
Utsýnin er guðdómleg. Vjer
sjáum Kverkfjallarana, hið mikla
Odáðahraun með gígum og kletta-
klungrum; við oss blasir Hofs-
jökull og Sprengisandur; langt
fyrir neðan oss er Tungnafells-
jökull og Vonarskarð. þá koma
eldf jöll og vötn — baksýn Sprengi
sands td suðurs. I suðaustri gnæf-
jr ÖræfajökuiH og Hvannadals-
hnúkur — já, og lengst í austri
þykjumst vjer geta eygt Snæfell.
í virðingarskyni við Guðmund
Einarsson settum vjer aðeins einn
fána á hágnýpuna — íslenska fán-
ann.
Uppdrættir af landslagi og út-
reikningar á mælingum vorum
verða ekki til fyr en seinna. Þó
þykjumst vjer með sanni geta
sagt að Bárðargnýpa sje talsvert
meira en 2000 metra há, og sje
hún ekki hæsta fjall Islands, þá
hið næst hæsta.
Hinn 30. maí lögðum vjer á
stað úr „Bárðarveri“ suðaustur
yfir jökulinn, beina stefnu á Svía-
gíg, því að þangað var förinni
heitið.
Það er oss mikið gleðiefni, að
oss skyldi takast fyrstum manna
að ganga á Bárðargnýpu. Og vjer
vonum að athuganir vorar, land-
fræðil-egar, jarðfræðilegar og jök-
ulfræðilegar, muni auka þekkingu
manna á þessu lítt kunna svæði
Vatnajökuls.
— Hefur þú heyrt að til eru
vjelar, sem geta sagt frá hvenær
þú segir ósatt.
— Heyrt? já, jeg er sjálfur
kvæntur einni slíkri.
— Má jeg fá að sjá bílhanska.
— Já, hvaða númer,
— Númer 5966.
Slyngur
leynilögregluniatlur.
Nýlega er látinn í London fyr-
verandi leynilögregluþjónn hjá
Seotland Yard, Herbert Trevor
Fitch að nafni. Hafði hann ratað
í margt um ævina og eru sumar
frásagnir um það alveg eins og í
hinum ótrúlegustu leynilögreglu-
skáldsögum.
Fyrir stríðið var honum falið
að líta eftir rússneskum bylt-
ingarmönnum í Englandi. Arið
1905 heldu þeir leynifund þar, en
áður en fundurinn hófst ljet Fitch
loka sig inni í skáp í herberginu
og heyrði alt, sem fram fór. Á
þessum fundi var Lenin og helt
þar svæsna æsingaræðu.
Seinna komst Fitch í kast við
þá Lenin og Trotzky. Hann komst
að því að þeir ætluðu að snæða
miðdegisverð í einkaherbergi í
veitingahúsi í Soho. Fitch klæddi
sig þá í þjónsbúning og gekk um
þeina hjá þeim. Ljet hann þá svo
sem hann hrasaði á borðið hjá
þeim, en við það duttu á gólfið