Lesbók Morgunblaðsins - 23.06.1935, Page 8
200
LESBÓK MORGUN^LaDSINS
Póst-hjól.
Póststjórnin í Tokio hefir látið
setja stóra póstkassa á reiðhjól.
Er því ekið um göturnar og póst-
maðurinn gerir mönnum aðvart
um komu sína með köllun í lúð-
urinn.
ýms skjöl, sem þeir voru með.
Fitch flýtti sjer að tína þau upp
og gat hann þá laumað einu skjal-
inu undir pentudúkinn, sem hann
var með á handléggnum og komst
á burt með það. I þessu skjali var
sagt frá fyrirætlunum og stefnu-
skrá byltingamanna. Það voru
þessir leynifundir í London, sem
komu á stað uppreisninni í rúss-
neska flotanum 1905.
Meðan á stríðinu stóð var Fitch
falið að elta ýmsa 'hættulega njósn
ara. Einn þeirra var fögur þýsk
stúlka, sem sífelt var á ferðalagi
milli London og Rosyth til þess að
reyna að fá upplýsingar um
breska flotann, og hafði náð í
mann til þess að hjálpa sjer til
þess. Hafði hún náð í mikilsverðar
upplýsingar um herskipið
„Tiger“, en þá var hún handtek-
in og hjálparmaður hennar líka.
Maðurinn kvaðst hafa útvegað
henni upplýsingarnar vegna þess
að hann elskaði hana. En það voru
landráð og maðurinn var skotinn
litlu seinna í Tower. Eftir ósk
hans var þá bundið fyrir augu
hans með ilmandi vasaklút, sem
stúlkan átti.
Fegurtlardrotning
höfðar mál gegn lá-
varði fyrir heitrof —
en tapar því.
Nýlega var kveðinn upp dóm-
ur, sem hefir vakið mikið umtal í
Englandi.
Málavextir voru þeir, að Miss
Angela Joyce, fyrverandi fegurð-
ardrotning Englands og núveandi
leikkona liafði kært Revelstoke
lávarð fyrir heitrof og krafðist
hárra skaðabóta. Til sanninda-
merkis lagði hún fram í rjettin-
um mörg ástarbrjef frá lávarðin-
um. Hann var 19 ára en hún 24,
þegar þau „trúlofuðust“.
Ungfrúin tapaði málinu og í
dómsforsendum segir meðal ann-
ars:
— Það er enginn maður skyld-
ur til þess að giftast konu þótt
hann segi um hana að hún sje
yndislegasta, fegursta og „sæt-
asta“ konan á jarðríki. Og það
mun vera afar sjaldgæft að karl-
maður giftist fyrstu stúlkunni,
sem hann segist elska.
Dómarinn lagði mikið upp úr
aldursmun þeirra og sagði:
— Það er öllum vitanlegt að
á æskuárum er kvenfólk eldra en
karlmenn að þroska.
Gaf hann þar með í skyn að
ungfrú Joyce hefði flekað lávarð-
inn til ásta, og hann væri því alls
ekki skaðabótaskyldur.
Frá Ameríku: Hjer er kona í
símanum, sem segist vera nýbviin
að skjóta mann sinn, og spyr hvort
við getum sett það í blaðið í fyrra
málið.
Kappsiglingar
fara fram í Ameríku allan ársins
hring. Hjer á myndinni sjest
kappsiglingabátur, sem ekki er
nema sex metra langur, en er nú
hraðskreiðasti kappsiglingabátur-
inn í Bandaríkjum.
— Pabbi, jeg vil alls ekki sofa
hjá Pjetri; hann liggur altaf í
miðju rúminu og jeg verð að
liggja fyrir framan hann og ofan
hann.
Kennari: Hvað á maður við
með hinum „góðu, gömlu dög-
um“|
Nemandi: Það var áður en
skólaskylda var lögleidd.
— Jeg vildi að jeg græddi eina
miljón. Þá skyldi jeg fara í bíó
hvert kvöld.
— Myndirðu bjóða mjer?
— Nei, úr því að þú ert svo
hugsunarlaus að óska þjer ekki
peninga, þá geturðu setið heima.