Lesbók Morgunblaðsins - 19.07.1936, Qupperneq 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
227
skiftin" gimsteinanna ræningjun-
um mikilla heilabrota, enda vissu
þeir ekki verðmæti þeirra. Avery
kom þá fram með þá uppástungu,
að gimsteinarnir yrðu látnir kyrrir.
í sandelviðaröskjunni. Síðan
skyldi hún innsigluð í viðurvist
allra skipstjóranna á flotanum og
geymd um horð í „Júpíter1-, sem
væri öruggasta skipið, þar til færi
gæfist á að fá rjettmætt mat á
steinunum, en það væri vitaskuld
skilyrði „rjettlátrar" skiftingar.
Þessu voru allir samþykkir og
varð það því úr, að askjan var
flutt yfir í „Júpíter“ og gevmd
þar sem helgur dómur.
Kænskubragð
Avery’s.
n nú var ágirndin vöknuð í
Avery og hugði hann gott
ti! glóðarinnar að haf'a steinana á
sínu valdi. Og eitt sinn, er sjó-
ræningjarnir sátu að sumbli í
landi, notaði hann tækifærið og
ljetti akkerum. Þegar ræningjarn-
ir voru orðnir algáðir, var 'Júpí-
ter“ löngu horfinn.
Rán þetta á fjársjóði stórmó-
gúlsins, sem framið var undir
enskum vináttufána, kom af stað
mikilli ólgu. Stórmógúlinn hafði
í hótunum um að hann myndi
jafna öllum eignum Austur-Asíu-
fjelagsins við jörðu, en hirða það,
sem þar fyndist verðmætt, til þess
að bæta sjer skaðann. Á tímabili
var ófriðarblika á lofti og fjöld'
diplomata þurftu á allri sinni
kænsku að halda, til þess að vand
ræðum yrði afstýrt.
Á meðan á öllu þessu gekk
sigldi „Júpíter“ hraðbyri í vest-
urátt, sigldi enn fyrir Góðrarvon,-
arhöfða og síðan til eyjunnar
Providence í Bahamaeyjaklasan-
um við Ameríku. Þarna var það
að sundrung kom upp á meðal
skipverja. Þeir óttuðust, að Av-
ery mvndi leika á þá á sama hátt
og hann hafði skotið fjelögum
sínum á Madagaskar ref fyrir
rass. Avery tókst nú að selja
„Jvipíter“ og síðan keypti hann
litla skonnortu. f henni laumaðist
hann brott ásamf fáeinum liand-
gengnum mönnum: Oskju stórmó-
gúlsins hafði hann meðferðis.
En skamt frá eylandinu Inagua
varð skonnortan að lenda sakir
vatnsskorts. Þetta var á litlu
rifi, sem var tæplega þrjár míl-
ur í þvermál. Þarna gróf Avery
fjársjóðinn í jörðu, á meðan fje-
lagar hans voru að leita að vatni.
En nú hafði gæfan snúið bakinu
við Avery. Skipverjar af „Júpí-
ter“, sem hann hafði svikið í
trygðum, veittu honum eftirför
og fundu hann þarna á eynni.
Drápu þeir liann og menn hans
alla umsvifalaust. Þannig lauk þá
æfi sjóræningja-liðsforingjans
Philipps Avery. Enginn vissi hvar
liann faldi fjársjóðinn. Hann tók
það leyndarmál með sjer í gröf-
ina.
Fregnir af þessu bárust til Eng-
lands, ásamt ófuHkomnu korti af
svæðinu, þar sem f jársjóðurinn
átti að vera fólginn. Og í tvö
hundruð ár hafa æfintýramenn
hætt lífi sínu til þess að finna
gimsteina stórmógúlsins, enda seg-
ir sagan, að sá sem minst hafi
verðmætið af þessum 58 steinum
sje 4 þús. sterlingspunda virði, en
sá dýrmætasti 120 þús. punda
(rúml. 21/4 milj. krónur).
175 fórnardýr
fjársjóðsins.
rá árinu 1715 og þar til nú
hafa verið farnar 175 ferðir
út í óvissuna í leit að fjársjóðn-
um. Áfangastaðurinn hefir jafn-
an verið litla rifið í Exumasundi.
En allir leiðangrar hafa endað
með skelfingu og tæplega nokkur
maður hefir komist heilu og
höldnu til baka. Og nfi hefir einn-
ig leiðangur „Girl Pat“ mishepn-
ast. En stöðugt verður handrita-
safn Austur-Asíu-fjelagsins, sem
um fjársjóð stórmógúlsins fjallar,
stærra og þykkara.