Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1937, Page 1

Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1937, Page 1
 4. tölublað. Suimudaginn 31. janúar 1937. XII. árgangur. ísafoluurprenUmiðj* h.f. Próf. Sigfús Einarsson raddsetti fyrstur íslensk þjóðlög fyrir karlakór. — stýrði fyrstur íslenskum söngflokki erlendis. Söngfjelag íslenskra stúdenta í Kaup- mannahöfn árið 1903. — Frá vinstri: Skúli Bogason læknir í Danm., Ólafur Björnsson ritstjóri, próf. Jón Hj. Sig- urðsson, Magnús Sigurðsson, bankastj., dr. Gunnl. Claessen, Sigurður Sig- tryggsson mentaskólakennari í Dan- mörku, Páll Egilsson læknir í Danm., próf. Sigfús Einarsson, Halldór Jón- asson aðstm. á Hagstofunni, Einar Jónasson f. sýslum., Jón Magnússon stúd. frá Rvík, dáinn, sjera Haukur Gíslason, dr. Björn Þórðarson. í sambandi við sextugsafmæli próf. Sigf. Einarssonar tónskálds, ber að minnast þess, að hann verð- ur að telja fyrsta frumkvöðul þess að farið var að syngja íslensk þjóðlög í karlakór. Þeir fyrstu sem æfðu hjer á landi karlaltór voru, sem vænta má kennarar Latínuskólans hver fram af öðr- um, þeir Pjetur Guðjohnsen, Steingrímur Johnsen, og Brynj- ólfur Þorláksson og svo aðallega þeir Jónas Helgason, Bjarni Þor- steinsson, Magnús Einarsson á Akureyri, Jón Laxdal á ísafirði og Kristján Kristjánsson á Seyð- isfirði. En það voru nær eingöngu útlend lög, sem þessir menn höfðu til umráða. — Það var Sigfús, sem fyrstur tók að raddsetja íslensk þjóðlög fyrir karlakór og æfa þau. Og það merkilega var, að þetta gerðist ekki hjer á landi heldur í Kaupmannahöfn. Vil jeg nú ségja stuttlega frá þessu, þótt jeg fylgdist ekki með alveg frá

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.