Lesbók Morgunblaðsins - 31.01.1937, Blaðsíða 1
4. tölublað.
Suimudaginn 31. janúar 1937.
XII. árgangur.
ísafoluurprenUmiðj* h.f.
Próf. Sigfús Einarsson
raddsetti fyrstur íslensk þjóðlög fyrir karlakór.
— stýrði fyrstur íslenskum söngflokki erlendis.
Söngfjelag íslenskra stúdenta í Kaup-
mannahöfn árið 1903. — Frá vinstri:
Skúli Bogason læknir í Danm., Ólafur
Björnsson ritstjóri, próf. Jón Hj. Sig-
urðsson, Magnús Sigurðsson, bankastj.,
dr. Gunnl. Claessen, Sigurður Sig-
tryggsson mentaskólakennari í Dan-
mörku, Páll Egilsson læknir í Danm.,
próf. Sigfús Einarsson, Halldór Jón-
asson aðstm. á Hagstofunni, Einar
Jónasson f. sýslum., Jón Magnússon
stúd. frá Rvík, dáinn, sjera Haukur
Gíslason, dr. Björn Þórðarson.
í sambandi við sextugsafmæli
próf. Sigf. Einarssonar tónskálds,
ber að minnast þess, að hann verð-
ur að telja fyrsta frumkvöðul þess
að farið var að syngja íslensk
þjóðlög í karlakór. Þeir fyrstu
sem æfðu hjer á landi karlaltór
voru, sem vænta má kennarar
Latínuskólans hver fram af öðr-
um, þeir Pjetur Guðjohnsen,
Steingrímur Johnsen, og Brynj-
ólfur Þorláksson og svo aðallega
þeir Jónas Helgason, Bjarni Þor-
steinsson, Magnús Einarsson á
Akureyri, Jón Laxdal á ísafirði
og Kristján Kristjánsson á Seyð-
isfirði. En það voru nær eingöngu
útlend lög, sem þessir menn höfðu
til umráða. — Það var Sigfús, sem
fyrstur tók að raddsetja íslensk
þjóðlög fyrir karlakór og æfa
þau. Og það merkilega var, að
þetta gerðist ekki hjer á landi
heldur í Kaupmannahöfn. Vil jeg
nú ségja stuttlega frá þessu, þótt
jeg fylgdist ekki með alveg frá