Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1937, Blaðsíða 2
394
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Hinn mikli
fögnuður
f\G ENGILL drottins stóð hjá þeim og dýrð
Drottins Ijómaði í kring um þá, og urðu
þeir mjög hræddir. Og engiUinn sagði við
þá: Verið óhræddir, því sjá, jeg boða yður
mikinn fögnuð, sem veitast mun öllum lýðn-
um, því að xjður er í dag frelsari fæddur, sem
er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Lúk. 2,
9—11. '
M ENGI höfðu mennirnir þráð komu hans.
Það var vonin um hann. sem Ijetti þeim
lífsstriðið, hann var Ijósið í fjarska, sem þeir
stefndu á. Guðs miskunn vakti hugboðið um
hann og gaf fyrirheitin um hann. Án þeirrar
miskunnar hefðu kynslóðirnar örmagnast á
sinni bröttu braut.
Vestur í löndum leyndist hugboðið um
komu hans. „Það bar til um þessar mundir",
þegar fylling tímans nálgaðist, að farið var
að tala um væntanlegan frelsara í heiðnum
ritum vestur þar.
Austur í löndum vaknaði sama von. „Hvað
líður nóttunni“, spurðu menn þar og horfðu
til himins, til stjarnanna, því þær birtu hin-
ar æðstu ráðsályktanir. Svo trúðu þeir. Og
Guð svaraði trú þeirra. I fyllingu tímans
birtist þeim tákn um komu konungsins. Og
vitringar í Austurlöndum tóku sig upp til
þess að veita honum lotningu.
Spámenn ísraels sáu hann álengdar. Þeir
sáu dýrð hans — svo sem í skuggsjá í óljósri
mynd:
Svo mælir hann, sem heyrir orð Guðs
og þekkir ráð hins hæsta,
sem sjer sýn hins almáttuga . . .:
Jeg sje hann, þó eigi nú,
jeg lít hann, þó eigi í nánd. U. Mós. 2U.
Saga ísraels hófst með óviðjafnanlegu dá-
semdarverki hins almáttka, björgun þjóðar-
innar við Rauðahafið. Það var frumstað-
' reyndin í lífi hennar. Augliti til auglitis við
þann atburð söng hún sína fyrstu lofgjörð:
Lofsyngið Drottni, því hann hefir sig dýr-
legan gjört. 2. Mós. 15. Þetta er elsta og var-
anlegasta reynslan í lífi ísraels. En jafnvist
var hitt, að saga þjóðarinnar stefndi með
órjúfanlegri, guðlegri ráðsályktun að hon-
um, sem átti að koma. Takmark tilveru henn-
ar var koma hans, hins undursamlega kon-
ungs. Engin þjóð hefir með jafn djúptækri
alvöru glímt við gátur sögunnar og ísrael.
Og hún fann lausnina. t fjarska roðaði fyr-
ir degi:
Sú þjóð, sem í myrkri gengur,
sjer mikið Ijós.----------
Því að bam er oss fætt,
sonur er oss gefinn,-----------
nafn hans skal kallað:
undraráðgjafi,
guðshetja,
eilífðarfaðir,
friðarhöfðingi. Jes. 9,
Og fjarlægar landsálfur bíða eftir boðskap
hans. Jes. U2.
ANN kom, undursamlegri öllum sýn-
um, hærri öllum hugboðum. Því vegir
Drottins eru hærri vorum vegum og hans
hugsanir vorum hugsunum — svo miklu sem
himininn er hærri en jörðin. Jes. 55. Hann
gerir langsamlega fram yfir alt það, sem vjer
biðjum eða skynjum. Ef. 3. — Dýrð sje Guði
í upphæðum!
O.M, jeg boða yður mikinn fögnuð. Loks-
^ ins var komin hin mikla stund, svarið
við þrá margra alda, margra kynslóða. 1 dag
var hann fæddur, Frelsarinn Kristur Drott-
inn. Það var fögnuðurinn, hinn mikli fögn-
uður. Og þessi fögnuður, sem boðaður var á
Betlehemsvöllum, veittist öllum lýðum, öU-
um kynslóðum. Þess vegna fögnum vjer í dag
eftir 1900 ár. Þess vegna eru jólin fagnaðar-
ríkasta hátíð ársins, hvarvetna þar, sem
Kristur er játaður. Jólin eru endurskin af
dýrð hans, sem fæddist í fjárhúsinu. Þess
vegna hafa þau mátt til þess að laða fram
það, sem gott er til í hverju mannsbami.
Jólin eru játning kynslóðanna á því, að í Jesú
Kristi rættust draumarnir og spádómarnir.