Lesbók Morgunblaðsins - 28.09.1941, Side 8
336
LfcSBÖK MORGUNBLAÐSLN’S
ORÐASPIL
SKEMTILEG NÝJUNG
FYRIR UNGA OG GAMLA
Orðaspil er nýjung hjer á
landi, en hefir fengið mjög
mikla útbreiðslu víða um lönd. Er
það nú fvrst að verða kunnugt hjer
Er spilið í stuttu máli þannig, að
á hverju spili er einn bókstafur
og keppa spilamenn um, hver
fyrstur getur úr ákveðnum stafa-
fjölda, sem þeir fá gefinn á hend-
ina, búið til sjálfstæð nafnorð, eða
aukið stöfum sem þeir hafa fengið
við orð þau, sem mótspilamenu
hafa lagt fram, svo úr þeim verði
önnur nafnorð, uns þeir hafa þann
ig komið af sjer öllum spilunum,
og er þá tap hinna til vinnandans
þeim mun meira, sem þeir hafa
fleiri stafi eftir á hendinni.
„Joker“ ew í spilinu, sem getur
gilt fyrir hvaða staf sem spila-
manni hentar í hvert sinn.
Það yrði of langt mál að rekja
allar spilareglurnar hjer. En að
spil þetta er gert hjer að um-
talsefni, er vegna þess, að það er
börnum og unglingum jafnt til
fróðleiks og skemtunar. Því ung-
lingar fá, með því að iðka spil
þetta, tækifæri til þess að festa
sjer í minni úr hvaða stöfum orðin
eru mynduð. Er það ekki lítils
virði að búa þau leikföng í hendur
barna, sem geta, auk dægradval-
arinnar, orðið þeim til fróðleiks
og uppörvunar við nám sitt.
Barnakennarar ættu að gefa
orðaspilinu gaum, og sjá hvort
ekki er hægt með því að vekja
eftirtekt og áhuga barna fyrir því,
hvernig þau eiga að stafa orðin
rjett.
En auk þess er orðaspilið skemti
legt jafnt fyrir eldri sem yngri.
Atli Már listmálari hefir teiknað
spil þessi.
Jokerinn.
FJAÐRAFOK
Sagt er, að fyrsta tesamkvæmið
á Englandi hafi verið þannig:
Sjómaður, sem kom frá Kína,
gaf móður sinni poka með tei og
sagði henni hvernig átti að fram-
leiða þennan nýja drykk. Að því
loknu fór hann burt, til þess að
ganga sjer til skemtunar. Móðir
hans hlýtur að hafa misskilið
hann hrapallega, því að þegar
hann kom heim, sat hún með 3
vinkonum sínum og át rjúkandi
telaufið á ristuðu brauði. Yatu-
inu hafði hún helt í vaskinn.
★
Henry Ford, bifreiðaframleið-
andinn frægi, sem einnig er eig-
andi dagblaðs, sem kemur út í
Bandaríkjunum, er mikill mann-
vinur. Eitt sinn skrifaði hann
grein með eftirfarandi fyrirsögn:
Hvað getum við gert fyrir hið
hrjáða mannkyn? Daginn eftir
birti annað blað eftirfarandi uppá-
stungu: Settu nýjar fjaðrir í vagn
ana þína, Henry.
★
Þó að flest, sem prentað er og
skrifað, sje gert með svörtu efni
á hvítum fleti, þá er þessi lita-
samsetning ekki nema 6. í röðinni,
að því er skýrleika snertir.
Litasamsetning, sem auðveldast
er að lesa við eðlilega birtu, er
þessi og í þessari röð: svart á
gulu, grænt á hvítu, rautt á hvítu,
blátt á hvítu, hvítt á bláu.
★
Fyrir nokkrum árum skeði það
merkilega undur, að sardínum
rigndi úr skýjum himins á há-
sljettu einni í Honduras, nokkuð
langt frá sjó. íbúarnir lögðu ótta-
slegnir á flótta er þeir sáu hina
„illu anda“, sem komu úr þessum
volduga skýstrók.
Nýgift kona við matvörukaup-
mann: — Eggin, sem jeg keypti
hjá yður í gær, voru svo fjarska
lítil. Haldið þjer nú ekki, að þjer
takið þau of snemma úr hreiðr-
inu ?
★
Konan við mann sinn: —* Þú
ert með líkbrennslu, en jeg skal
segja þjer það í eitt skifti fyrir
öll, að þann dag, sem þú lætur
brenna þig, erum við skilin að
skiftum.
★
— Hún sagði að hann hefði
roðnað, þegar hún kysti hann.
— Auðvitað, hún litar frá sjer.
★
Fyrst drakk jeg vatn með
whisky, svo drakk jeg whisky með
vatni, svo whisky án vatns og nú
drekk jeg whisky eins og vatn.