Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1942, Qupperneq 2
82
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
s
Baug langafa Gunnars á Hlíðar-
enda, vegna þess að hann bjó
þar fyrsta veturinn, sem hann
dvaldi hjer á landi, eru taldir
tilheyra landnámi Hallsteins, og
ætti Rauðá því að hafa verið
austan bæjarins, eins og hann stóð
til fórna, enda er því svo varið
með Baugsstaðasíki.
GRÍMSÁ
og KNARRARSUND.
Upphaflega virðist öll ströndin
milli Olfusár og Þjórsár, eða að
minsta kosti milli Ölfusár og Rauð
ár, hafa heitið „á Eyrum“, en
síðar Eyrarbakki. Landnáma segir
frá því, að Hallsteinn Atlason
hafi gefið mági sínum ytra hlut
Eyrarbakka. Víða er getið um
Stokkseyri á Eyrarbakka. Á síð-
ari öldum er nafnið Eyrarbakki
aðeins haft um kaupstaðinn, þegar
hann er orðinn eini verslunar-
staðurinn á þessu svæði.
Af frásÖgn Landnámu og öðr-
Um heimildum má ráða það, að
Knarrarsund hefir verið ein aðal-
höfnin á Eyrum á landnámstíð og
fram á söguöld.
Knarrarsund er vafalaust sama
og sund það, er nú heitir Knarr-
arós. Það er sund í skerjagarðin-’
um frgmundan Knárrarósvita og
er stundum notað enn þann dag
í dag.
Grímsá. Nú er engin á með
þessu nafni á þessu svæði, en þar
er önnnr á, sem Landnáma og
heimildirnar nefna ekki, það er
Baugsstaðaá. Það er augljóst mál,
að k, sem myndast að mestu frá
ákveðnu regnsvæði, eins og Grímsá
hefir gert, getur ekki horfið, án
þess að önnur á komi í staðinn,
eða vatnið, sem eftir henni rann,
fái einhverja aðra framrás. Enda
virðist því þann veg farið með
Grímsá. Saga hennar er í raun og
veru alimerk.
Austan og ofan við bæinn Skipa
er löng lægð, eiginlega samfeld
dældaröð, seni liggur frá vestri til
austurs. Lægð þessi heitir Gríms-
dæl. Verður ekki betur sjeð en
að þarna sje gamall árfarvegur.
Milli lægðar þessarar og Skipa-
vatns, sem liggur samhliða norð-
an við, er frekar mjó landræma.
Úr eystri endanum á Grímsdæl og
þvert á hana frá suðri til norðurs
er lægð í þessa landræmu. Lægð
þessi er grasi gróin, en grjótnibb-
urnar standa alstaðar upp úr
bot.ni hennar. Verður ekki hetur
sjeð en að þarna sje garr.al' ór.
farvegur. Glöggur og athugull >
maður, Ingvar Hannesson, hóndi
að Skipum, sem dvalið hefir þar
alla sína æfi, hefir sagt mjer, að
eftir þessari iægð renni úr Skipa-
vatni í miklum vatnavöxtum-
Sunnan við Grímsdæl, næstum '
beinni stefnu af lægðinni milli
hennar og Skipavatns, sjest móta
fyrir annari lægð, sem liggur fram
í gegnuin sjávarkambinn og hverf-
ur í honum. Lægð þessi er íí
iandametkjum milli jarðanna
Skipa og Baugsstaða. Hún er
A'afalaust áframhald af áðurnefnd
um farvegi. Að vestanverðu endar
Grímsdæl við Trað.arholtsvatn.
Hefir þar verið hlaðið fyrir vatnið,
bersýnilega til þess að hindra af
rensli þess í Grímsdæl.
Það leikur naumast nokkur vafi
á því, að þetta er farvegur hinnar
fornu Grímsár. Hún hefir haft
upptök að nokkru leyti í Traðar-
holtsvatni, og að því er virðist,
að nokkru leyti í Skipavatni og
hefir runnið til sjávar vestan við
Baugsstaðakamp, sennilega sem
svarar stefnunni rjett vestan við
Knarrarós. Ármynnið hefir þvl
legið opið fyrir iithafinu og fer
ekki hjá því, að áin hafi stíflast
í stórflóðum og valdið tjóni hæði