Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1942, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1942, Blaðsíða 16
96 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS BRIDGE Fjaðrafok Það er leitt að horfa á, þegar illa er farið með góð spil. Hjer eru þrjú dæmi, og því miður mundu margir hafa spilað eins og hjer er sýnt. N-S eru í hættu og S spilar 4 hjörtu. V spilar út lauftvisti. N: S xxx H DlOx T ÁKGx L ÁG9 S: S Kxx H ÁKGxx T Dx L Dxx Suður býst við, að Vestur hafi spilað út frá kóngi, og drepur því ekki. Austur drepur með kóngi og spilar út spaða tíu. Vestur á í spaða ÁDGxx og þeir fá 3 slagi á spaða. Ef Suður hefði talið slagina, sem hann átti vísa, hefði hann ekki spilað af sjer spilinu: 5 slagir í hjarta, 4 í tígli og laufás. Teljið altaf örugga vinningsslagi strax í upp hafi. Sama lærdóm má draga af þessu spili: N: S D643 H DG T KD9 L 8542 S: S ÁG H Á1098762 T Á75 L D V spilar laufi og A tekur með ásnum og spilar spaðafimmi. S lætur gosann og V kónginn og spilar aftur spaða, sem A tromf- ar. Spilar síðan laufi, sem S tromfar, kemst inn á tígulkóng í blindum og spilar hjartadrotn- ingu, en V á kónginn og fær fjórða slaginn á hann. Óheppi- leg lega. En S þurfti ekki að eiga neitt á hættu, ef hann tek- ur strax á spaðaás og spilar út hjartaási og öðru hjarta. Þá fær hann altaf 10 slagi, því að ef tromfkóngur er valdaður, getur A ekki átt nema 2 hjörtu og því ekki tromfað spaða í næsta út- spili. 1 þriðja spilinu spilar Suður 3 grönd. N: S xxx H ÁlOxx T ÁDxx L xx S: ÁlOx H xx T x L ÁKDlOxxx V spilar út spaðatvisti, S drepur með ásnum og spilar út laufás. Það eru aðeins 4 lauf úti, en þau eru öll hjá V, sem fær á laufgosann. Suður kemst ekki inn aftur til þess að taka á 3 frí- lauf og tapar einum slag. Hvílík óheppni, að öll laufin skyldu vera á einni hendi! En ef hann hefði hugsað sig um og látið sjer nægja 9 slagi, gat hann sjeð, að V átti aðeins 4 spaða, úr því að hann spilar út spaða- tvisti (A hafði ekki sagt spaða). Það er því óhætt að gefa hon- um 3 slagi á spaða og 1 á lauf. Ef S vill vera alveg öruggur um vinning, á hann að spila út lág- laufi og gefa hinum á gosann. Síðan taka A og V 3 slagi á spaða, en S fær 6 slagi á lauf og 3 slagi á ásana í hinum litunum. Mergurinn málsins er sá, að gefa slag í laufi (ef til vill að óþörfu), meðan N á lauf til þess að koma S inn á. Annað mál er það, að hefði V spilað út þristi í spaða, en ekki tvistin- um, gat S ekki verið öruggur um, að hann ætti ekki nema 4 spaða, og hefði því ekki verið þorandi að spila öðruvísi en hann gerði. Þjófur nokkur í Indianapolis stal 41 dollar. Hann skildi eftir miða, sem á var skrifað: „Fyrir- gefið mjer. Einhvern tíma mun jeg greiða þetta aftur með rent- um“. í annari borg í Ameríku kom kona ein til framkvæmda- stjóra vöruhúss eins og sagði við hann: „Fyrir 5 árum stal jeg hjer hring og skrautnál, sem hvort- tveggja kostaði 25 cent. Jeg vil komast í himnaríki“. Hún afhenti framkvæmdastjóranum síðan 25 centa pening. Orrynni af kýmnisögum ganga manna á milli í hernumdu löndunum. Þær eru ýmist til orðn ar í þeim löndum, þar sem þær eiga að hafa gerst, eða tilbúnar í áróðursskyni. Hjer eru nokkur dæmi: ★ í frjettalestri breska útvarps- ins komst þulurinn einu sinni svo að orði: „Samkvæmt óstaðfestum fregnum frá Svisslandi var Göring skotinn niður við austurströnd Englands í dag“. Er frjettatím- anum var að verða lokið, kom þessi leiðrjetting: „Það er nú orð- ið upplýst, að frjettir þær, sem bárust frá Sviss um að íGöring hefði verið skotinn niður við Eng- landsstrendur, hafa ekki við neitt að styðjast. Það var ruglast á loft- varnabelg, sem fjell niður við austurströndina í rnorgun". ★ 1 Ameríku er sögð þessi saga: — Maður nokkur fjekk brjef frá ættingjum sínum í Þýskalandi, sem var á þessa leið: „Kæri frændi í Ameríku 1 Okkur líður prýðilega. Enginn hefir liðið neitt. Hitler leiðir þjóðina til velmegunar. Hendrick frændi, sem ekki var á sömu skoðun, var jarðaður í gær“. ★ Hansl og Franzl hittust. Franzl hafði nýlega verið látinn laus úr fangabúðunum í Dachau. „Kæri Franzl“, sagði Hansl, „það hlýtur að hafa verið hræðilegt, ógur- legt ....“. „Ógurlegt“, greip Franzl fram í. „Það var heilnæmasti tími lífs míns. Á hverjum morgni var byrjað með líkamsæfingum. Því næst var ágætur morgunverður. Síðan gátum við hvílt okkur og lesið blöð og bækur. Maturinn var ágætur ....“. Og svona hjelt hann áfram. Hansl er alveg forviða og segir: „En Sepp, sem var þar líka, sagði' mjer alt aðra sögu um dvölina í fangabúðunum". „Það má vel vera“, svaraði Franzl, „en Sepp er líka kominn þangað aftur“.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.