Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1942, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 29.03.1942, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 89 Mánuð á björgunarfleKa um hávetur í Atlantshafi Flekinn vel búinn að vistum og öðru Tveim sjómönnum, dönskum og sænskum, var. nýlega bjargað eftir að þeir höfðu hrakist heilan mánuð á timburfleka á Atlants- hafi. Daninn er Erilc William Ander- sen, 23 ára að aldri og Svíinn er Yngve Erik Carlstedt. Eftir því sem menn frekast vita, eru þeir þeir einu, sem komust lífs af, af einu af skipum „Transatlantic“, sem var yfir 9000 smál. Skipinu var sökt í byrjun janúar, án nokk urar viðvörunar úti á miðju At- lantshafi. Var álitið, að það hefði horfið með öllu saman, 34 manna áhöfn og 6 farþegum. En þessum tveim mönnum var bjargað. Var það að þakka sjer- staklega vel útbúnum björgunar- fleka, er skipstjóri skipsins, Yngve Cassel, hafði gert. Timburflekinn var 5X4 m. að ummáli og helm- ingi hærri en þessir flekar eru venjulega. í miðjunni var hólf, hálfan annan meter á dýpt, þar sem í voru geymdar miklar birgðir af matvælum, drykkjarvatn, hlý föt og olíueldavjel, og það var þetta, sem gerði Andersen og Carlstedt mögulegt að draga fram lífið í svona margar vikur. daprir dagar. Tveir timburflekar af sömu gerð voru á þilfari sænska skipsins. Raunalegt er að sjálfur höfundur þeirra virðist ekki hafa getað bjargað sjer upp í þá. Þessir tveir, sem bjargað var, soguðust niður með skipinu og komu upp á sjávarborðið í nám- unda við annan timburflekann.Þeir höfðu rjett aðeins krafta til þess að sveifla sjer upp á flekann. Fyrstu þrjá dagana gátu þeir ekki annað gert en að halda sjer fast í plankana, svo að þeim skolaði ekki útbyrðis, því sjóv gekk þá altaf yfir flekann. Skol- aði m. a. burtu brauðkassann. Fjórða daginn batnaði veðrið og sjórinn var rólegri. Þegar þeir voru búnir að ausa hólfið, gátu þeir matreitt fyrstu máltíðina, sem var dósakjöt og kaffi, er þeir höfðu útbúið á olíueldavjelinni. Hólfið var þarna með renniloki og í því 100 niðursuðudósir með kjöti, baunum, gulrótum, ertum og sardínum. Þeir fundu einnig tunnu með drylckjarvatni, hlý föt, olíustakka og þrjú teppi, sem þeir sveipuðu um sig. Einnig fundu þeir miklar birgðir af stein- olíu, til þess að nota á vjelina. SKAMTURINN MINKAÐUR. Eftir 12 daga fóru þeir að draga við sig matarskamtinn. Þeir ljetu sjer nægja eina dós af grænmeti á dag, fyrir utan kaffi. Þegar þrjár vikur voru liðnar, voru mat- vörurnar að þrotum kornnar, en sjómennirnir tveir gáfu ekki upp lífsvonina. Tómu niðursuðudósunum hentu þeir útbjrrðis og fengu með því sjálfir meira rúm í hólfinu, þar sem þeir voru nokkurn veginn í skjóli fyrir brotsjóum. Stundum fyltist hólfið af sjó, svo að þeir urðu að ausa það. Að lokum lifðu þeir aðeins á þunnu kaffi. „Við sáum í draum- um svínakjöt og egg (Bacon and eggs)“, sagði CSrlstedt við blaða- manninn er hafði tal af þeim. BJÖRGUNIN Þann 10. febrúar, þegar þeir höfðu verið 30 daga á timbur- flekanum, fann Hudson-sprengju- flugvjel þá loksins, en flugvjelin var að njósna um kafbáta. Sjó- mennirnir tveir beindu athygli flugmannsins að sjer, með því að skjóta flugeldum. Seinna kom Catalina-flugbátur til þeirra. En hann gat ekki sest á sjóinn, af því að sjór var of úfinn. Flug- báturinn gerði þá togara aðvart. Þegar togarinn nálgaðist flekann, skaut annar þeirra einni eldflugu, en hann var þá svo veikburða, að hann gat ekki staðið upp- rjettur. Andersen og Carlstedt álíta, að þá hafi rekið 675 km. á timbur- flekanum. Þegar þeir fundust, voru þeir 400 km. frá Skotlandi og ferðin til lands tók marga daga. Þegar skipbrotsmennirnir komu á land, höfðu þeir þegar náð sjer furðu vel, en það var að þakka hinni góðu aðhlynningu á togaranum. í landi biðu hjúkrunarkonur og sjúkrabílar, til þess að flytja þá á sjúkrahús. En sjómennirnir tveir gengu sjálfir á land og vildu vissulega ekki láta aka sjer í sjúkrahús. Þeir hafa ekkert mein haft af hrakningum sínum og bíða nú aðeins eftir næsta tæki- færi til þess að fara aftur á skip. (Þýtt úr „Fritt Danmark“). Dómari nokkur í Detroit veitti frú Mariu Millis, em er 91 árs, skilnað frá manni hennar, sem er 73 ára. Eiginkonan gaf bónda sínum það að skilnaðarsölr, að liann væri sífelt á eftir öðru kvenfólki. ★ Verslunareigandi einn í Kansas City hengdi spjald á pemngaskáp sinn með leiðbeiniugum um, hvern- ig ætti að opua skápinn. Inn- brotsþjófar höfðu tvisvar brotið upp skápinn. í þriðja sinn brut- ust þjófar inn í verslunina, en fóru ekki eftir leiðbeiningunum, lieldur brutu upp skápinn.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.