Lesbók Morgunblaðsins - 15.11.1942, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 15.11.1942, Blaðsíða 6
358 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Þá kom Sören Jakobsen, er var síðasti „factor“ hjá Thaage. Á þessu tímabili og lengur komu, flest sumur, lausakaup- menn (,,speeulantar“) á skipum sínum og versluðu meira og minna Árið 1870 kom kaupskipið „Grána“ með vörur, hófst um það leyti hrej'fing í þá átt að stofna útbú frá Gránufjelaginu og keyptu menn eitthvað af hluta- brjefum þess fjelags. Sumir af verslunarstjórunum höfðu ábúðarrjett á jörðinni og ráku búskap. Eru til þess nefndir þeir Melby og Hans Hjaltalín. Tengdasonur hans, Bjarni Þor- steinsson frá Bakka í Bakkafirði — hann var kallaður borgari, því hann hafði versluharrjettindi — tók við jörðinni af honum og bjó hjer nokkur ár og rak jafnframt einhverja smáverslun, en árið 1870 tekur C. G. P. Lund við jörðinni og hefir hún verið í vörslum þeirr- ar ættar síðan. Þessi Lund var ís- lenskur í móðurætt. Hafði hann búið á Ásmundarstöðum, sem er skamt frá Raufarhöfn, nokkra hríð, en flytur nú í „Búðina“. Verslun Thaage var þá á fallanda fæti, en tvisvar í viku hafði Lund opna búð og seldi vöruleifar frá Thaage og eitthvað smávegis, sem hann gat náð sjer í. Árið 1874 seldi Thaage verslun- arhúsin manni í Reykjavík, Daníel Jónssyni að nafni', og sendi hann þá strax hingað verslunar- stjóra, sem hjet Símon Alexíusson. Var þá Lund vikinn burt úr „Búðinni“ og hafði flutt langhús, er hann átti á Ásmundarstöðum, hingað til Raufarhafnar. Bjó hann svo í því og síðar börn hans þang að til 1909 að fjölskylda hans reisti hjer tvílyft timburhús handa sjer og stendur það hús enn og er kallað Lundshús. Jafnhliða búskapnum fór Lund lengi með verslunarskip á hverju sumri og seldi vörur fyrir Robertson og síð- ar fyrir Fog. En nú víkur aftur sögunni til föstu verslunarinnar. Símon Alexí- usson verslunarstjóri, sem áður var nefndur, virðist hafa dvalið hjer aðeins nokkra mánuði, en farið þá, því engar vörur komu vegna ísa. Þó muu „Grána“ hafa flutt hingað einhvern vöruslatta þetta sumar. Árið eftir, nefnil. 1875, byrjar Gránufjelagið að versla hjer sem fastaverslun, hefir þá líklega keypt húsið og sendir hingað fyrsta verslunarstjóra sinn, Her- mann Hjálmarsson. Bjó hann í „Búðinni“ og stjórnaði verslun- inni í þrjú ár. Þá tók við Geir Gunnarsson, bróðir Tryggva Gunnarssonar, en starfstími hans var aðeins eitt missiri. Kom þá til. sögunnar Kristinn Havsteen, hann var verslunarstjóri hjer þangað til hann tók við Gránufjelagsversl. á Siglufirði, eftir lát Snorra Pálssonar. Þá flutti Jakob Gunn- laugsson hingað um 1884. Hann var síðasti verslunarstjórinn, ^^ví. rúmum áratug síðar, eða 1896— 98, seldi fjelagið bræðrunum Ein- arsson verslunina og hafa þeir átt húsin og rekið verslun hjer síðan. Hjer að framan hefi jeg aðal- lega talað um verslunina, sem rekin hefir verið hjer á Raufar- höfn í rúm 100 ár, enda var hún lengi vel aðal lífæðin og lyfti- stöngin, þangað til útgerðin hófst rjett eftir síðustu aldamót og svo síldarverksmiðjurnar á allra síð- ustu árum, sem kunnugt er. Þorpið getur raunar ekki tal- ist nema 30—35 ára gamalt, því árið 1910 voru ekki önnur hús fyrir utan lækinn, sem skiftir þorpinu, en „Búðin“, sem á lóð frá læknum og langt úteftir, ís- akshús, lítill moldarkofi, er hús- hjón áttu og nefnist nú Grund, og svo Lundshúsið, sem áður er nefnt. Þar fyrir utan er nú kom- ið „Prófastshúsið" og kirkjan hjá fallegri, lítilli tjörn, sem er uppi í mýrinni fyrir ofan sjávarbakk- ann. Þar fyrir norðan teygir Höfð- inn sig fram, smáhækkandi er utar dregur. Þar blasir kirkju- garðurinn við þorpinu og svo vit- inn, er stendur vst á Ilöfðanum og ber hátt. Tangi þessi eða „IIöfðinn“ umlykur höfnina að norðan og austan og er örugg vörn. Sunnan við lækinn tekur „IIoltið“ við. Þar var, árið 1910, Grænahús (nú heitir það Braut- arholt) og 2 eða 3 Norðmanna- skúrar (braggar). Önnur hús voru ekki, en stuttu síðar var Stein- holt bygt og svo hvað af hverju, og þarna hafa síldarverksmiðj- urnar risið af grunni með öllum sínum fylgifiskum, svo sem þróm, geymsluhúsum, lýsisturnum, bryggjum o. s. frv. Að vestan- verðu lykja lágir ásar um þorpið. Þar ætti að gróðurset.ja skóg, sem næði alla leið út á Höfðann. Gæti þetta orðið fegursta bæjarstæði og hin kringlótta höfn er dásamleg Þar vagga sjer margir tugir skipa álognöldum á sumrin, þegar stór- brim og ósjór er útifyrir. Nú eru í þorpinu nær þrjú hundruð manns búsettir, en á sumrin er hjer fjöldi fólks, því síldarverksmiðjurnar draga að sjer'mikinn mannafla, og svo er gert út til fiskjar. Róa nokkrir stórir aðkomubátar auk heimabát- anna. Um útgerð er ekki getið fyr en rjett eftir síðustu aldamót, og síld var ekki nefnd hjer og þektist ekki fyr en bræðurnir Einarsson (þeir voru fjelagar Jón og Sveinn synir Einars á Hraunum) hófu síldveiðar með reknetum 1901. Sveinn segir mjer svo frá, að þetta vor feom til hans Norðmað- ur, er hjet Bendik Mannes, hann var svo stór, að hann fylti út í dyrnar, er hann gekk til stofu og leitaði viðræðna við Svein. Var erindið að hvetja þá bræður til að fara að veiða síld. Var þá hafist handa og veitt eitthvað töluvert með reknetum, en fáum árum síðar keyptu þeir seglskipið „Vega“ og var þá far- ið að veiða með snurpinót. Veiðar þessar gengu misjafnlega, en þetta var vísirinn — byrjdn síldveiða á Raufarhöfn, sem nú eru reknar hjer í mjög stórum stíl. Skipin koma inn hvert af öðru, stóra verksmiðjan, sem bræðir 5000 mál á sólarhring, hamast nótt og dag og afgreiðir 1000 poka af síldar- mjöli á dag og einhver óskiiþ af lýsi. Gamla verksmiðjan er að- gerðalaus og virðist það synd, því skipin bíða hlaðin, en sagt er að verkamenn vanti og sömuleiðis húsnætú fyrir fólkið, því hver bás er þjettskipaður. Framh. á bls. 360.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.