Lesbók Morgunblaðsins - 15.11.1942, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 15.11.1942, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 359 Flagðið í heilsuhælinu Eftir LLEWELYN POWYS MJ E R er ósýnt um að blekkja menn, en þó varð mjer það einu sinni á. — Jeg dvaldi mjer til heilsubótar í hressingarhæli í Sviss. Húsið var stórt og stakk álappalega í stúf við fjallshlíðina. Mjer leiddist alveg hroða- lega þarna. Slæptist allan dag- inn. Var einn míns liðs. I hæl- inu voru samankomnir alls kon- ar úrkynjaðir mannræflar, sem voru að reyna að lappa upp á einskis verða líftóru sína. Mjer leið bölvanlega. Jeg labbaði nm. Útsýnið var alltaf eins: furutrje. snævi þakin fjöll og bændur með beljur í eftirdragi. Mjer sýndist svissnesku bænd- urnir vera bannsettir slæpingj-; ar. Mjer fanst þeir ekkert gera allan daginn annað en reykja heljar miklar pípur, kyrja ein- hverja bölvaða lagleysu og drattast með beljurnar sínar.En eitt var þó hægt að hugga sig við í hælinu, því að — til allr- ar hamingju — konur verða stundum lasnar líka. Jeg var ekki alvarlega veikur og hafði góða von um að geta farið heim til mín eftir fáeina mánuði. En samt var jeg altaf að reyna að sjá mjer út kvenmann, sem gæti ljett mjer þetta leiðinda líf. Jæja, dag einn gekk jeg hátt upp eftir fjallshlíðinni og sett- ist niður á þúfnakoll til þess að hvíla mig. Þá kom til mín másandi og blásandi Eng.lend-t ingur. Hann var skrambi gugg- inn og veiklulegur að sjá. Jeg mundi alt í einu eftir því, að mjer hafði verið sagt, að hann þjáðist af ólæknandi hjarta- sjúkdómi og gæti dáið þá og þegar. Hann settist hjá mjer. Eftir langa hósthviðu hvíslaði hann að mjer, því að nú orðið gat hann aðeins hvíslað, að hann væri nýbúinn að fá brjef frá konunni sinni, þar sem hún segðist ætla að heimsækja hann. Mjer fanst jeg geta ráð- ið það af sigurhreimnum í rödd hans, að konan væri dásamlega fögur. „ Þessi maður lifði á því, að framleiða skó — brúna skó, — sem hann fullvissaði okkur sjúk lingana um, að væru þeir bestu, sem hægt væri að fá á markað- irpim. Yið umgengumst hann með lítilsvirðingu, þögulli ó- svífni. Jeg var kyntur fyrir konu hans nokkrum dögum síðar. — Hún var dásamlega fögur. Jeg gleymi ekki augnaráði hennar, er við heilsuðumst. Það virtist reyna að meta hæfni mína til þess að vera henni til gamans. Hún var bersýnilega ein þeirra spiltu kvenna, sem hafa enga sál, en gáfur, — og nóg af blíðu. Kvöldið eftir að maður hennar, „gamli maðurinn“, eins og hún kallaði hann, var hátt- aður, sátum við í dagstofunni og röbbuðum saman. Jeg var henni auðsjáanlega að skapi. ,.Jeg veit, hvað þjer eruð að hugsa“, fanst mjer augu henn- ar segja. „En verið bara djarf- ur, og þá getið þjer farið með mig eins og yður sýnist“. Hún heillaði mig æ meir með hverjum degi, sem leið. Jeg var eins og í vímu, þegar hún var nálægt mjer. Jeg gat ekki stað- ist hana. Hún var alltaf jafn töfrandi. Við máltíðir var jeg vanur að gjóta augunum yfir að borðinu hennar, en þá ljest hún méð brosmildu augnaráði vera að fela sig bak við túlípanavasa. Jeg get aldrei svo horft á túlí- panana í garðinum heima, að mjer detti ekki í hug þessi tæl- andi fegurð hennar. Verksmiðjueigandinn var auð sjáanlega upp með sjer af því, hvað konan hans gekk í augun á okkur karlmönnunum, og hann bauð mjer oft upp í her- bergið sitt til að drekka með sjer kaffibolla eða vínglas. Hann gerði þá ítrustu tilraun til að gleyma óhamingju sinni. En þegar hann hló eða hvísl- aði, þá sá jeg greinilega í svip hans rúnir dauðans, sem jeg hef svo oft sjeð ristar í andlit dauðvona tæringarsjúklinga. Konan hans var oft önug við hann og kallaði hann bjálfa, ef hann var þjáður og dapur í bragði. Mjer var með öllu ó- skiljanlegt, hves gersneydd hún gat verið nærgætni í garð hans. Dag nokkurn bauð hún mjer að drekka kaffi með þeim hjón- unum. Maður hennar hafði ekki komið niður til hádegisverðar, og hún fullvissaði mig um það, að nærvera mín myndi gera honum ljettara í skapi. „Hann er draugfúll og hefir hita“, bætti hún við hlæjandi. Við fórum úr lyftunni á þriðju hæð og gengum til her-. bergis þeirra hjónanna. — Við gengum inn, en þar var enginn. Hún kallaði á hann til þess að vita, hvort hann hefði ekki gengið út á svalirnar, en enginn svaraði. Vinur hans bjó í her- bergi beint á móti honum, og við gerðum ráð fyrir að hann hefði litið inn til hans. Aldrei fyr höfðum verið tvö ein saman í herberginu. Augu okkar mættust. Jeg snart hönd hennar. Hún kipti henni ekki að sjer. Jeg tók hana í faðm mjer. Hún veitti enga mótspyrnu. — Ekkert nema kossar okkar rauf kyrðina í herberginu, þessa einkennilegu, hálf dýrslegu kyrð, sem umvefur elske'ndur,: þegar þeir í fyrsta skifti geta gefið sig á vald holdlegum hvöt- um sínum. En allt í einu fann jeg til einhverrar einkennilegr-< ar kendar. Það var einhver inni í herberginu! Jeg var viss um það. Jeg var sannfærður um það, að við vorum ekki ein í herberginu. Jeg leit við. Framh. á bls. 360.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.