Lesbók Morgunblaðsins - 04.03.1945, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLABSINS
125
KENNARI í SEXTÍU ÁR
Cflir þorítein VíyL nclóóon
A SÍÐASTLIÐNU ári hafði einn af
allra elstu kennurum landsins stund
að kennslustörf í sex tugi ára. —
l>essi aldurhnigni dánumaður og
dáðadrengur er Steinn Jónsson
kennari, nú til heimilis að Fálka-
götu 32 í Reykjavík.
Steinn er fæddur á Gerði í Suð-
ursveit 4. desember 1861 og því
83 ára gamall.
Foreldrar Steins voru þau hjón-
in Jón Steingrímsson Jónssonar
bónda á Gerði og Oddný Sveinsdótt
jr Sveinssonar bónda að Ilofi 1
Öræfum. Að Steini standa þvl
bændaættir beggja vegna.
Steinn var alinn upp við land-
búnaðarstörf, og svo sjómennsku
oðrum þræði eftir 12 ára aldur.
!í æsku hans stunduðu bændur og
búliðar sjó á vertíðum út frá Sönd-
um Suðursveitar.
Fram að fermingu lærði hann
aðeins lestur og skrift í föðurgarði
og mjög af sjálfsdáðum. Brennandi
námsþrá drengsins var hinn ótrauði
aflgjafi. Þó höfðu foreldrar 'Steins
góðan skilning á gildi náms og
bókvits, og voru ósíngjörn um
iþann tíma, sem börn þeirra, 11 tals-
pns, notuðu til lesturs og námsiðk-
ana. Þau reyndu einnig eftir megni
að afla heimilinu bóka.
Sveini bróður Steins, sem var
12 arum eldri, var komið til náms
hjá síra Magnúsi Bergsvni presti
að Evdölum. Að loknu námi þar,
kendi Sveinn yngri systkinum sín-
um. Þá var Steinn kominn yfir ferm,
ingaraldur og naut tilsagnar Sveins
bróður síns um 10 vikna skeið. Hjá
bróður sínum lærði Steinn íslenska
málfræði og rjettritun, skrift og
reikning. Ávalt síðan voru þessar
námsgreinar Steini hinar hugljúf-
ustu kennslugreinar, og þótti hann
snjafl íslenskukennari og smekk-
rnaður um íslensk mál.
Steinn Jónsson.
Eftir nám hjá Sveini bróður sín-
um, stundaði Steinn framhaldsnám
hjá sóknarpresti sínúm, síra Jó-
þanni Knúti Benediktssyni, og var
langa bæjarleið að fara. Þann vet-
ur gekk Steinn á beitarhús, en
stundaði iiániið hjá prestinum á
kvöldin og dróst þá stundum heim-
koman til miðnættis. lljá síra Jó-
hanni lærði hann hclst dönsku og4
reikning.
Ensku hefir Steinn lært mestmegn
is af sjálfsdáðum og má teljast vel
að sjer í þeirri tungu, ^nda kent
hana um tugi ára með m.jög góð-
um árangri.
Kenslustarfið hóf Steinn 22' ára
gamall í fæðingarsveit sinni og
mun vera fyrsti kennari í Austur-
Skaftafellssýslu. Þar kendi hann 6
vetur í 5 mánuði hvern og gekk á
milli bæjarhverfa.
Austur í Seyðisfjörð fluttist
Steinn 2S ára gamall og gerðist
þar kennan við nýstofnaðan skóla
á Þórarinsstaðaeyrum (lé89). —
Börn af nálægum bæjum, svo og
börn frá Brimnesi og Selstöðum
norðan fjarðarins, skyldu njóta
skóla. Hann var starfræktur i 6
mán. ár hvert. Þarna kendi Steinu
í 6 ár og hjelt jafnframt kvold-
skóla fyrir unglinga.
Þá rjeðist Steinn kennari við
barnaskólann á Biíðareyri við Reyð-
arfjörð, og kendi þar í 8 ár. Skól-
inn staríaöi 4 mán. hvern vetur, en
3 mán. ársins stundaði Steinn far-
kenslu í Reyðarfjárðarhreppi. Á
Búðareyri hjelt hann einnig kvöld-
skóla á eigin spýtur fyrir unglinga.
Árið 190:3-—1904 var hann heim-t
iliskennari á Gilsátvöllum í Borg-
arfirði eystra.
Árið 1904 fluttisl Steinn til Mjóa
fjarðar í Suður-Múlasýslu og stund-
aði þar kennslu í 15 ár samfleytt
og hjelt ýmist farskóla eða heim-
angönguskóla fyrir börn og ung-i
linga.
Árið 1919 settist Stcinn að á Nesi
i Norðfirði og h.jelt þar einkaskóla
í 18, ár bæði fyrir börn og unglinga.
Margir þeir unglingar, sem stund
að hafa nám hjá Steini, liafa búið
sig undir framhaldnám eða sjer-
skóla, og bætti hartn þar úr brýnni
•þörf æskunnnar á þessum slóðurn,
Steinn fluttist til Reykjavíkur
fyrir 7 árum og hefir dvalið þar
síðan hjá Reinhardt, fóstursyni sín-
um og konu hans. Þar nýtúr þessl
aldurhnigni öldungur — og öðl-
ingur — verðskuldaðrar alúðar og
umhyggju.
f Reykjavík hefir Steinn kennt
.smábörnum alla veturna, setn hann
hefir dvalið þar, rtema einn. —
Stéinn Jónsson hefir bví stndað
kenslu samtals 60 ár og mun eng-