Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1945, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1945, Síða 7
LESP.ÓK MOIÍÖUNBLAÐSINS mii íillt að því eina tommn þegar vinduT er. Á leiðinni upp hjelt út- varpsgrammofón fræðandi fyrirlest- ur um byggingu varðans. Washington-borg fóstraðist fyrst í heila hins mikla stjórnmálamanns og þjóðhetju George Washingtons, eins og sjest á skjölum hans frá 12. júlí 1790. En síðar var hún, sam- kvæmt ósk hans, skipulögð af ung- um frönskum verkfræðingi, að því að talið er af mikilli snild. Til allra óhamingju var margsinnis vikið frá skipulagi þessu á síðari árum, er borgin byggðist, eins og verða vill einatt þegar miðlungs 'menn eiga að framkvæma stórfelld áform. Frá þessari glæsilegu borg fór jeg um kvöldið og staðnæmdist næst í Baltimore. Skoðaði jeg þar vjel- smiðjur Renneburg & Sons Co., er byggja síldarverksmiðjuvjelar o. þ. h. en Baltimore-borg er stofnsett árið 1827. í Baltimore er mikil höfn með skipasmíðastöðvum, verksmiðjum og ýmiskonar stóriðju. Eftir skamma dvöl þarna hjelt jeg áfram til New York. Áttti ferðalagið þang að ekki að taka nema nokkra klukkutíma, en lestin var hægfara og tafðist hvað eftir annað, svo komið var langt fram á nótt þegar hún loksins rann inn á járnbrautar- stöðina í þessári stórkostlegu borg heimsins. ★ NEW YORK ÞAÐ KOM sjer nú í góðn þarfir að jeg hafði ekki alls fyrir löngu hlotið upptöku í Ameríska verk- fræðingafjelagið — The Ameríean Society of Meehanical Engineers. Er fjelag þetta mjög gnmalt og á stórhýsi í miðbiki New York borg- ar, sem nefnist Engineer’s Club. Það stórhýsi gaf Andrew Carnegie fjelaginu. Eru þar gestherbergi fyr- ir meðlimi fjelagsins, setustofur, lesstofur, bókasafn, billiardstofur, borðsalur, bar og bjórstofur, auk fundarsala og skrifstofuherbergja. Til þessa staðar hjelt jeg nú rakleið- is og fjekk jeg þar strax inni og bjó þar síðan allan þann tíma er jeg dvaldist í New York. — Næsti dagur rann upp heiður og skýr. Himininn var dimmblár og sólin helti sjer yfir þær 8 miljónir manns, sem talið er að búi í New York og útborgun hennar. En New York mun vera með sólríkustu borg- um Bandaríkjanna. Jeg verð að játa, að jeg fann til þess, þar sem jeg stóð þarna á tröpp unum fyrir framan Verkfræðinga- fjelagshúsið og litaðist um eftir fertugasta stræti og yfir garðinn þarna fyrir framan, að það var harla lítið sem jeg vissi um New York. Það er heldur ekki neitt til- tökumál þó að nokkur bið yrði á því, að jeg áttaði mig dálítið á skipulagi hennar og gerði mjer ör- litla grein fyrir lifnaðarháttum borg arbúa — og ef svo mætti segja, and- rúmslofti borgarinnar. En skammt þarna frá — til sinn hvorar handar lágu helstu slagæðar borgarinnar: Broadway og Fifth Avenue. Það væri sjálfsagt efni í margar og þykkar bækur að lýsa New York til nokkurrar hlítar. Og að lýsa henni í fáum orðum er ekki á mínu færi. Mig langar þó að gefa dálitla hugmynd um hvernig áhrifum Is- lendingur kann að verða fyrir sem þarna kemur í fyrsta skifti. Honum kann að finnast, að mið- bik New York sje eins og hamra- borg með djúpum þröngum gljúfr- um„ þar sem straumþung fólkselfa byltist fram með hringiðum og fossa föllum og hrífur allt lifandi með sjer. Skýjakljúfarnir rísa eins og him-. ingnæfandi björg upp úr gljúfruu- um en í hamraveggjunum á báðar hliðar býr undarlegt, ókunnugt fólk. Álfar og ósýnilegar vættir! — Vei þeim sem bjargnuminn verð- 199 ur. Allskonar kynjar bíða hans og aldrei verður hann samur! Dúfnahóparnir flögra um á milli hinna risavöxnu bygginga eins og fýll í bjargi og lífga þessa trölls- legu mynd. Meðvitundin um hið iðandi líf miljónanna allt umhverfis, hina lif- andi kös, sem maður hrærist í, verð- ur stundum nær óbærileg. Þá lang- ar einn og einn lítinn karl að kom- ast burtu, aðeins eitthvað langt í burtu. — ITelst heim! En hjer er New York! Og hjer er starfað og stritað 24 tíma sólar- hringsins! Hjer er aldrei sofið. Hjer kemur starfið fyrst, já, meira að segja lang fyrst. Sá, sem ekki hefir tíma til að sinna störfunum getur fengið frí, — æfilangt! Hjer er keypt og hjer er selt. Hjer keppast menn við að starfa og strita og græða peninga, til þess að geta starf að og stritað ennþá meira — og grætt ennþá meiri peninga! Til þess að geta eignast hús. Til þess að eign ast bíl. Til þess að eignast stærra hús. Til þess að eignast stærri og fallegri bíl. Til þess að gefa kon- unni sinni eitthvað fallegt. Til þess að geta menntað börnin sín. Til þess að verða frægur. Til þess að geta skapað listaverk. Til þess að leysa erfið viðfangsefni. Eða bara til þess að starfa vegna þess að starfið cr sterkasti þáttur lífsins! Þarna stöðvast ekki neitt þótt kl. slái 5! Þú getur keypt þjer skyrtu eða skó, heilan alklæðnað, hatt og frakka, pípu, tóbak og göngustaf, hvað sem klukkan segir. En göngu- stafir tíðkast ekki í Ameríku. Menn hafa ekki tíma til að ganga nema á tveimur fótum! Og þarna hinu megin við götuna er rakarastofa og klukkan er 3 nm nóttina og rakarinn er í óðat önn að raka. I glugganum stendur skilti: „Opið allan sólarhringinn". Framh. á bls. 208.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.