Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1945, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 08.04.1945, Blaðsíða 16
LESBÓK MOROUNBLAÐSTNS 20S 1)0 dagar í U.Si. Framh. af bls. 199> Sjertu á skítugum skóm, sem. þykir skrælingjabragur, þá getur þú fengið skóna þína þvegna með íínustu leðursápu og þar á eftir gljáfægða, og sólarendurnar málað- ar til þess að varna því að saumur- inn fúni. Þegar þú ert búinn að gljáfægja skóna þína. ])á eru þeir alveg eins og nýir og ])ú getur spar- að þjer skókaup í langan tíma. ÞetÞi kostar allt 10 eent eða 6ö aura og fæst gei't í flestum rakara- stofum. -— En hversvegna er þetta ekki hægt í Revkjavík? Lsngi þig til að lyfta þjer upp að kveldi dags, þá er úr nógu að velja. Fyrst er þó best að aðgæta hvemig statusinn er! Án dollara er lífið erfítt nema fvrir prófessjónella sláttumenn. En eigirðu mammon í ríkum mæli. þá eru þúsund og einn. staður sem bjóða upp á jafnmargar ógleymanlegar nætur! Á sama kveldinu ganga kannske hundrað mismunandi leikrit. Drama tísk leikrit — með heimsfrægura, listamönnum. Söng og dansleikir með sýningum á beru negrakven- fólki — og allt þar á milli. Á sama kvöldinu má sjá og hlusta á klassiska útfæi-slu á „Carmen" eða ef þú vilt heldur nútíma út- færijju á sömu óperu með staðsetn- ingu í negrahverfinu Tlarlem. Tórea- dórinn er negri, sem strýkur úr Bandaríkjahernum til að elta vit- lausa negrastelpu borg rir borg í Bandaríkjunum. En litirnir, fjörið og leikurinn er langt fyrir ofan það sem við eigum að venjast. Það ligg- ur við að hjer sje fúlasta alvara á ferðinni. Svo mjög ganga leikendur upp í leik sínum. Ýmsar aðrar leiksýningar hljóta að vekja hrifningu áhorfandans sak ir listrænnar meðferðar. Svo koma dansstaðir, allskonar og næturklúbbar, matstaðir með alls konar mat, allt frá „heitum hund- iun“ (pulsum) upp í pipraða pá- fugla — og þjóðerni eftir því! Kvik- myndahús, sem ganga mest allan sólarhringinn o. m. fl. — Þar er engin vínverslun ríkisins og engin halarófa og engir höfðingjar, nema þeir sem diafa peninga. En þeir eru iíka allir höfðingjar! New York er frjálsasta borgin í frjálsasta ríki veraldarinnar! Menn eru þar aö mestu frjálsir til að lifa og deyja — án íhlutunar og aðstoðar opinberra embættismanna — og virðast kunna því prýðilega! Menn verða að reyna að standa á eigin fótum. Helst ekki á fótvrm annara manna. En þetta er hættu- legt spor, ekki síður enskíðaíþróttin — og margir falla í valinn! En með- vitundin um að hver verði að bjarga sjálfum sjer rekur menn áfrarn til margfaldrar atorku, meðan heilsa og kraftar endast. Og launin eru oft mikil. Yonin um að afla sjer fjár og frama og eignast kóngsdótturina og kóngsríkið, er sá neisti, sem einna fyrst kviknar og lengst lifir í brjósti hvers góðs Bandaríkjamanns! Smælki % — Er þetta í fyrsta sinn, sem þjer komist undir mannahendur? Nei, einu sinni fjekk jeg 10 króna sekt. — Er það alt og sumt, hugsið yður vel um. — Það er annars alveg satt, þeg- ar jeg fer að hugsa um það. Jeg f.jekk skömmu seihna fimm ára fangelsi. ★ — Jeg heyrði dálítið í morgun, sem opnaði augu mín. — Hvað var það? — Hrnging í vekjaraklukku. — Rúðuborg Framh. af bls. 194. ekki þangað. I þann mund, sem þið voruð að fagna stofnun lýðveldis- ins (blöðin hjer gátu um viðburð- inn) var hjer á næstu grösum háð hin grimmasta orusta. og öllu teflt í hættu. Þú getur ímyndað þjer, að ])á greip mig mikil heimþrá. Jeg fór að reyna að gera mjer í hugar- iund, hvernig myndi vera hjá ykk- ur á Þingvöllum, er svo mikil stund var upprunnin. Til heilla með lýð- veldið! . Smælki Bókamaður einn lánaði kunningja sínum tvö bindi úr merku ritsafni, sem hann átti, en fjekk þau ekki aftur, hve oft sem hann áminti vin- inn urn að skila þeim. Seinast tók hann það ráð að senda manninum öll hin bindin og þetta brjef með: — Hjer með fylgja bindin, sem eftir voru, svo að annaðhvor okkar hafi að minsta kosti ritsafnið heilt. Daginn eftir var ritsafninu skil- að. ★ — Af hverju gengurðu við hækj- ur ? — Bílslys. — fletur þú ekki gengið án þeirra? — Jeg veit ekki. Læknirinn seg- ir, að jeg þurfi ekki að nota hækj- ur, en lögfræðingurinn minn heimt- ar að .jeg noti þær að minsta kosti fyrst um sinn. Ar — Læknirinn hefir bannað kon- unni minni að búa til mat. —• Er hún veik? — Nei, það er jeg, sem er orðinn veikur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.