Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1945, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 15.04.1945, Síða 11
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 219; n<i freinst, og svo ofi je<? gaman að vinna. En þetta er nú ekki svo mikið' núna samanborið við það sem eitt sinn var. Einu sinni hafði jeg 72 tíma á viku, 12 á dag og svo stíla, og vann alla sunnudaga. Það hefi jeg altaf gert. Nú eru þetta ekki nema 39 tímar og 250 stílar á viku. Það gera 25 tíma,*samtals G4 ef jeg get reiknað rjett, og svo ýmsar smávegis þýðingar. — En einu sinni sló í hart. Það var þegar Geir Zoega bað mig að lesa próförk af orðabókinni sinni og jeg þurfti að vinna til kl. 11 öll kvöld og upp klukkan 5 á morgnana að leiðrjetta stílana og svo í tímana, því altaf hef jeg getað vaknað, þegar jeg hef viljað. Það má jeg eiga, Þó margt megi annars út á mig setja. Eða er ekki svo? Jeg var ekki kominn til þess og fer að renna augunum upp eftir jhinum háu bókaskápum og löngir bókahillum og segi svo: — Segðu mjer annars eitt. ■— TTvernig í dauðanum hefir þú get- að safnað öllum þessum bókum? — Þetta er núlekki mikið. Það er ekki eins og hjá honum Þorsteini 'sýslumanni eða Davíð skáldi frá1 Fagraskógi. En jeg er nú nokkuð sterkur í kvæðabókum. Og íslensk leikrit á jeg nema tvö, eftir Magnús Grímsson. Fátt á jeg af rímum en af skáldsögum, safnaði jeg lengi öllu er út kom. En trjenaðist upp á því, eins og eðlilegt var. Áð safna bókum. — ITvenær byrjaðir þú bóka- söfnun? — Skömmu eftir að jeg kom heim eða þegar jeg byrjaði kennslu í Mentaskólanum. Fór að fara á bóka uppboð, og kynti mjer þá fyrir- fram livað var á boðstólum. En þegar fram í sótti, þá varð jeg að hætta að bjóða sjálfur í liækurnar. því þegar menn heyrðu að jeg bauð í bók, þá ruku|ýmsir upp til handa og fóta og fóru að bjóða í á móti mjer. Því|þeir hugsuðu sem svo, að fir því að Bogi býður, þá er bókin einhvers virði. Þá varð jeg að fá einhverja aðra til þess að bjóða fyrir mig. Það varð alt umstangs- meira. Nú-nú. En þetta varð úr því samt, því jeg he^ gaman af bókumi og þykir vænt um þær, og þá hefir jnaður oft alskonar útispjót til þess að ná í þær. -— Stundum dettur maður )>á líka í lukkupottinn. T. d. einu sinni. Jeg var staddur hjá einum kunningja mínum. Þangað kem- ur maður. Talið berst að bókunr eins og lög gera ráðjfyrir. Þá segir maðurinn si sona, að hann'eigi bæk- ur í poka heima hjá sjer. Ekki viti hann hvort þær sjeu nokkurs virði. En mjer sje guðvelkomið að koma og líta á þær. .Teg fann það ein- f 'hvernveginn á mjer að það myndi borga sig að líta á skruddurnar. Og aldrei þessu vant, hljóp jeg Iheim til mannsins. Þjer finst þatl kannske ótrúlegt, því jeg er ekki vanur að hlaupa. En það var nú svona. Verst jeg gleymdi hvað mað- urinn hjet og hvar hann átti heima. ITann fjekk 250 krónur fyrir það, sem jeg valdi úr pokanum, —1 .Teg segi ekki hvað það var. En báðir urðu ánægðir, það get jeg sagt þjer. ★ Við áttum langt. tal saman eftir þetta um alskonar fólk, gamla tíma og nýja og jeg sá hannyrðir hús- móðurinnar, fÖgur veggteppi, sem hún hafði saumað með stakri kost- gæfni til heimilisprýði, tekið upp gamlar fyrirmyndir á þjóðminja- safninu, og sett saman af mikilli smekkvísi. Svo í næstu stofu við bókasafn og vinnustofu Boga, þar sem er saman komið eitt mesta safn íslenskra bóka í einstaks manns eigu eru dýrar eftii’myndir af hannyrð- um horfinna kynslóða. Það fer vel N % saman, að hafa slíkar menningar- jminjar nálægt bókasafninu. En meðan jeg virti þessi handa- verk fyrir mjer, sá jeg greini- lega á Boga, að hann kunni besfc við sig innanum bækurnar. 1 Er við höfðum sest þar að nýju og farið að tala um bókamenn, mintist hann á einn kunningja sinn, sem ekki væri ikomandi til vegna brennivínsins. — Svo segi jeg alveg út ’,á þekju, Er hann farinn að drekka? — Ekki voru það mín orð. Eu mjer þykir viðkunnanlegra að geta komið heim til manna án þess að þeir þurfi að hella ofan í mann tunnu af brennivíni. Ekki síst þeg- ar maður er þá svo af guði gerður, að1. manni þvkir sopinn góður, seg- ir Bogi. En þá sýndist mjer hann vera til í það að reyna samskonar aðferð gagnvart mjer af einskærri gest- risni, svo jeg þorði ekki fyrir mitt litla líf annaðjen hafa mig af stað. Annars veit jeg ekki hvernig hefði. farið. . V. St. Smælki — Stúlkan: — Hvað ertu gamall litli minn? , Sá litli: — Fimm ára. En þú? Stúlkan: — Æ, jeg er nú búinn að gleyma fæðingarárinu mínu. Drengurinn: — En þú hlýtur þó að |inuna á hvaða öld þú ert fædd? ★ Lítill drengur spurði afa sinn, sem var smár vexti, hve gamall hann væri. — .Teg er áttatíu ára gamall, sagði maðurinn. — Eftir nokkra umhugsun sagði sá litli: —> Þú ert þá líklega mjög lítill eftir aldri. 4 I

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.