Lesbók Morgunblaðsins - 19.05.1946, Side 16
252
LESBOK MORGUNBLAÐSINS
►
Mynd þessi er tekin jyrir utan Hunter College í New York,
þar sem Öryggisráðið heldur fundi sína. Sjóliðar halda vörð
um húsið. Á miðri myndinni sjest Trygve Lie, ritari ráðsins.
Versta syndin.
— Það er ekki versta synd manns-
ins að hata náunga sinn, heldur hitt,
að láta sjer á sama standa um hann.
Það er hámark mannúðarleysis.
(Major Ernst Killander)
Pcningalaust land.
Ríkið Andorra í Pyreneafjöllum,
sem altaf hefir verið sjálfstætt, hefir
aldrei haft fyrir því að slá sína eigin
mynt. Það hefir látið sjer nægja að
nota myntir nágrannaþjóðanna.
Avalt ný egg.
Nú er hægt að geyma egg óskemd
í heilt ár eða lengur, segir amerískur
hænsabóndi. Og ráðið til þess er ákaf-
lega einfalt. Eggjunum er aðeins difið
andartak niður í sjóðandi vatn. Við
það hleypur hvítan, sem er næst
skurninu og myndar þar dálitla skán.
Síðan eru eggin geymd þar sem ekki
er meiri hiti en 6 gráður.
Gott grænmetismauk.
Nú er mikið talað um það, að ís-
lendingar fari að hafa meira græn-
meti á borðum en verið hefir. Er þá
gott að kunna að matreiða það á
ýmsan hátt. Hjer er ein forskrift um
.það að búa til gott mauk (salad):
Barmasljett matskeið af sterku sinn-
epi er hrærð í % litra af súrum rjóma.
250 gr. af tómötúm og 300 grömm af
flysjuðum gúrkum er brytjað smátt
niður og látið í sósuna. Safinn úr
grænmetinu blandast þá sjálfkrafa
saman við sósuna, og þetta verður
undra gott á bragðið. Bæta má það
þó enn með því að hræra harðsoðið
og smásaxað egg saman við sósuna.
Tvcir fimtudagar í viku.
Árið 1147 kom Eugen páfi III til
Parísar, og var þá föstudagur. En
þar sem þá átti að rjettu lagi að fasta,
og ífiúar Parísar máttu því ekki gera
sjer glaðan dag til þess að fagna
komu páfans, gaf hann út þá skipun,
að föstudagurinn skyldi vera fimtu-
dagur. Þannig skeði það í fyrsta og
seinasta skifti í veraldarsögunni, að
tveir fimtudagar voru í eiríni viku.
Og Parísarbúar voru glaðir út af því
að mega eta og drekka eins og þá lysti
páfanum til heiðurs.