Lesbók Morgunblaðsins - 11.01.1948, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
7
Hjer á Suðurlandi hefur verið auð jörð fram að þessu, en nú er snjórinn kominn og um leið leggja skíðamenn Reykjavífeur
leið sína upp í fjöllin og æfa sig af kappi. — Myndin er tekin hjá skíððastökkbrautinni hjá Kolviðarhóli.
NÚ BYRJA SKÍÐAMENN AÐ ÆFA SIG
v
Eitt sinn kom til hans fátæklegur gest
ur, sem hafði braskað í mörgu og
seinast verslað með gömul föt. Nú var
hann allslaus, nema hvað hann hafði
fullan hug á að bjarga sjer og byrja
verslun að nýju. Hann sagði við Gold-
berg:
„Mig vantar peninga, en jeg vil ekki
níðast á vinum mínum. Þess vegna fór
jeg í bankann í morgun og talaði við
Howard bankastjóra um lán. En hvað
þekki jeg til bankastarfsemi ? Bókstaí-
lega ekkert. Hann segir mjer að jeg
skuli koma með víxil með ábeking.
Jeg spurði hann hvað víxill væri og
hvað ábekingur væri. En þá spyr hann
mig hvort jeg þekki nokkurn ríkan
mann hjer í nágrenninu. Jeg held nú
það. Jeg segi honum að jeg þekki þig,
að við höfum farið saman í æsku ftá
Póllandi hingað vestur. Þá fær hann
mjer þetta blað og segir mjer að fara
til þín og láta þig skrifa nafnið þitt
aftan á það og svo skuli jeg koma til
sín aftur og fá 2000 dollara. Og nú er
jeg kominn hjer, Goldberg.“
Mr. Goldberg var svo mikið niðri
fyrir að hann talaði í hálfum hljóð-
um.
„Moe,“ sagði hann, „mjer sárnar
ákaflega við þig. Höfum við ekki altaf
verið vinir, bæði heima í gamla land-
inu og hjer? Hefur mjer ekki altaf
þótt eins vænt um þig og þú værir
bróðir minn? Hvers vegna kemurðu
þá ekki beint til mín, þegar þig vant-
ar peninga? Hvers vegna ferðu fyrst
til Howards? Það hryggir mig sárt að
þú skyldir gera það. Það er jeg sem
á að hjálpa þjer, en ekki bankinn. —
Farðu nú strax með þetta blað til hans
Howards aftur og segðu honum að
skrifa nafnið sitt aftan á það, og
komdu svo til mín og fáðu peningana
hjá mjer.“