Lesbók Morgunblaðsins - 04.07.1948, Qupperneq 2
31S
LESBOK MORGUNBLAÐSINS
ur um það, að Rússar muni ráðast inn
í Tyrkland, þá gerir herstjórnin ekki
ráð fyrir að það verði fyrst í stað.
Tyrkland verður umkringt og þá er
hægara að snúa sjer að því seinna.
Rússar búast við þvi að þessi annar
þáttur stríðsins taki ekki nema þrjá
mánuði. Á þeim tími hafi sjer tekist
að vaða yfir Spán að vestan, taka
Gibraltar og komast til Dakar, en
vaða að austan yfir Persíu, Iraq, Sýr-
land og Palestínu og komast að Súez-
skurði. Þá hafa þeir yfirráð í Mið-
jarðarhafi og hafa lokað því.
En áður en þriðji þáttur styriald-
arinnar hefst, verður nauðsynlegt að
tryggja herina í Evrópu gegn innrás
frá Bretum. Þeir gera ráð fyrir að
100 herdeildir muni þurfa til þessa,
og af þeim verður lielmingurinn frá
Tjekkóslóvakíu, Búlgaríu og Júgósla-
víu.
Þriöji þáttur. Hann hefst með því
að öllum bestu hersveitum Rússa
verður stefnt til Austur-Asíu og þá
hefst úrslitastyrjöldin í Kína. Rússar
gera ráð fyrir að hafa þarna á að
skipa 300 herdeildum, auk kommún-
ista hersveitanna í Kína. Styrjöldinni
í Asíu ætti að vera lokið á tveimur
árum, eftir því sem herfræðingar
Rússa telja.
Þeir gera ráð fyrir því, að undir
eins og þeir hafa lagc Kína undir sig,
geti þeir boðið Bandaríkjamönnum
.,hrossakaupa“-samning, þannig að
heiminum sje skipt í tvo hluta. — í
hlut Rússa kemur þá öll Evrópa
(nema Bretland), Austurlönd, Kína
og Norður-Afríka. í hlut Bandaríkj-
anna eiga að koma Indland, Jndo-
Kína, Indonesía, Suður-Ameríka, Bret
land með samveldislöndum og ný-
lendum og Japan.
Kjarnasprengjan. Alveg sjerstakur
þáttur í hernaði Rússa er að finna
varnir gegn kjarnasprengjum. Sjer-
fræðingar Sovjets vita hvernig á að
framleiða kjarpasprengjur, en fram-
leiðsla á þeim er ekki hafin. Fyrsta
kjarnorkuverksmiðjan af þremur er
þó í smíðum. Þær verða allar þrjár í
Síberíu, og það er cúist við að þær
verði farnar að framleiða kjarna-
sprengjur fyrir lok þessa árs.
Af miklu kappi er nú unnið að því
að finna ráð til að varna því að hægt
sje að finna kjarnorkustöðvarnar
með „radar“-mælingum. Rússneska
herstjórnin veit að Bandaríkjamenn
eru að koma á fót slíkum miðunar-
stöðvum skammt frá landamærum
Rússlands, svo sem í Tyrklandi,
Grikklandi, Iran, Kína og Þýskalandi.
Þessar miðunarstöðvar mundu geta
fundið kjarnorkustöðvarnar, svo
hægt væri að beina árásum á þær —
Þetta er nokkuð auðvelt, því ekki
þarf annað en miða sprengingar þær,
sem nauðsynlegar eru í kjarnorku-
stöð, úr þremur áttum og reikna svo
út hvar þær sjeu.
Rússar þykjast hafa fundið upp
ráð til að koma í veg fyrir þetta, með
svipuðum truflunum og þeim, sem
notaðar voru í seinasta stríði til þess
að koma í veg fyrir að hægt væri að
miða flugvjelar. Það var gert með því,
að árásarflugvjelar fleygðu útbvrðis
í loftinu milljónum snifsa af tinpapp-
ír, og trufluðu þessi snifsi algjörlega
miðunarbylgjur.
Miklar áhyggjur hefur rússneska
herstjórnin af því, að hún heldur að
Bandaríkjamenn hafi fundið upp að-
ferð til þess að ónýta með kjarná-
sprengjum olíulindir, sem eru nærri
sjó. En flestar olíulindir Rússa eru
nálægt sjó, t.d. Baku-lindirnar.
Tækist óvinum Rússa að ónýta
olíuna í Baku-lindunum, þá væri vjela
hernaður þeirra úr sögunni. Til þess
að reyna að koma í veg fyrir þetta
eru Rússar að gera óskapleg mann-
virki á ströndum Kaspíahafs. Þeir
reisa þar stórkostlega skilveggi úr
málmi og eiga þeir að stöðva geisla-
bylgjur frá kjarnasprengjum.
V-sprengjur. Þótt Rússar sje ekki
jafn langt komnir og þeir mundu
óska í því að framleiða kjarnasprengj
ur, þá eiga þeir fullkomin V-skeyti.
Hafa þeir lagt mikla áherslu á að
búa sig undir að geta gert árásir í
fjarlægð með sjálfstýrðum sprengj-
um. Tilraunir í þessa átt hafa farið
fram á Kamchatka skaga og þær hafa
sýnt, að á 900—1300 mílna færi,
geiga þessar sprengjur varla meira
en sex mílur frá því marki, sem þeim
er ætlað að hitta.
Ríissneski herinn. Mannaflinn er
enn sem fyr aðalstyrkurinn, sem
Rússar treysta á í hernaði. Og þeir
hafa miklu stærri her heldur en
Bandaríkin. Marshall hershöfðingi
sagði nýlega að allur her Bandaríkj-
anna mundi hæglega komast fyrir á
knattleiksvellinum í Brooklyn. Berið
það saman við herafla Rússlands.
Samkvæmt leynilegum ákvörðunum
yfirherstjórnar Rússa á fasti herinn
í lok þessa árs að vera:
30 herdeildir flugmanna.
20 herdeildir brynvagna.
40 herdeildir fó*gönguliðs.
15 herdeildir riddaraliðs.
15 herdeildir stórskotaliðs.
Herinn hefur mjög mikið af vjela-
vopnum, sem mikla þjálfun og kunn-
áttu þarf til að fara með. Hann hefur
því þeim sjerfræðingum og kunn-
áttumönnum á að skipa, sem geta
orðið kjarninn í þeim her, er skyndi-
lega yrði kvaddur saman við alþjóðar
hervæðingu. Vjelahersveitirnar verða
brjóþt hersins á láði og í lofti og eiga
að geta gert hin stórkostlegustu her-
virki á fyrstu dögum styrjaldar.
Til þess að fyrirbyggja þá hættu,
sem stafar af því að hergagna verk-
smiðjuborgir eru lagðar í rústir með
kjarnsprengjum, hafa Rússar tengt
saman allar iðnaðar miðstöðvar sínar
með þrennum og fernum járnbraut-
um. Á þennan hátt þykjast þeir
munu skyndilega geta látið eina iðn-
stöð taka við af annari, sem eyðilögð
yrði í svip.
Landinu er skipt í svæði, sem hvert
hefur sitt kerfi hernaðarframleiðslu.
Leningrad-s^æðið hefur sem bak-
hjarl Norður-Ural og Vologda.