Lesbók Morgunblaðsins - 04.07.1948, Qupperneq 3
LESBOK morgunblaðsins
319
HEITUR MATUR SEMDUR
Á HVERS MANNS BORÐ
Moskva-svæðið hefur að bakhjarli
Mið-Ural, Gorki og Volga-hjeruðin.
Ukraine-svæðið hefur að bakhjarli
Suður-Ural og Siberiu.
Yfirlit. Kjarnsprengjan er Rússum
ekki ýkja hættuleg. Þeir hafa dreift
iðnaði sínum yfir svo stórt svæði að
það dregur mjög úr hættunni.
Og ef Sovjet færi nú að framleiða
kjarnasprengjur í stórum stíl, þá er
ekki óhugsandi að stórveldin komi
sjer saman um að banna kjarnorku-
notkun í hernaði, einS'Og þau bönn-
uðu notkun eiturgass í seinasta stríði.
Aðalhættan fyrir Rússa liggur í þvi
að þá muni skorta olíu. Og herstjórn-
in hefur lagt fyrir rig þessar spurn-
ingar: Höfum vjer nægilega olíu til
þess að framkvæma alla hernaðar-
áætlunina, þrjá þættina? Getur
Bandaríkjamönnum tekist að ónýta
olíulindirnar í Baku og annars staðar,
t.d. í Rúmeníu?
Enginn efi er á því, að á þeim
þremur vikum, sem Rússar þykjast
þurfa til þess að leggja undir sig alla
Vestur-Evrópu, gætu Bandaríkja-
menn unnið mikil hervirki með
sprengjuárásum. Þótt Rússum tækist
nú að framkvæma fyrsta hluta hern-
aðaráætlunar sinnar, en væri svo ekki
færir um að framkvæma þann næsta,
þá væri þeir illa komnir. Þá mundi
sókn þeirra snúast upp í vörn, og þá
væri eigi aðeins um að ræða einar
herstöðvar í Kína, heldur tvennar
aðrar vigstöðvar, í Austurlöndum og
í Evrópu frá Spáni til Bretlands.
Vegna þessa er rússneska her-
stjórnin deig að leggja í ófrið. Hún
hættir ekki á langvinna styrjöld fyr
en í seinustu lög. Og það er vegna
þessa, að herstjórn Sovjets óar við að
leggja út í heimsstyrjöld.
(Eftir Magazine Digest).
^ ^
GÓÐS VIII
Það er gömul þjóðtrú, að það sje
góðs viti, ef börn slefa mikið, því að þa
verði þau nsm.
í KENTHJERAÐI í Englandi er iön-
aðarborg, sem heitir Erith. Borgar-
stjórnin þar heíur fyrst allra riðið á
vaðið með það að selja fólki heitan
miðdegisverð og senda hann heim til
þess á rjettum matmálstíma. Menn
gerast þar áskrifendur að heitum mat,
alveg eins og að blöðum. Fyrst í stað
er hjer aðeins um að ræða eina mál-
tíð á dag, en það getur vel verið að
þetta breytist og færist í aukana.
Þetta er ekki gert í gustukaskyni,
heldur var það gert til þess að íbú-
arnir gæti fengið betri mat. Með því
móti hyggur bæjarstjprnin að heilsu-
far batni. Og þetta hefur líka aðra
kosti. Með þessu móti sparast elds-
neyti, skömtunarseðlar, heimsending
úr búðum og fólkið losnar við það að
standa í biðröðum fyrir utan mat-
vælabúðirnar. Það sparar því almenn-
ingi geisilega mikinn tíma.
Sá, sem fann upp á þessu fyrir-
komulagi heitir G. P. Barton, og hann
hefur skýrt „Daily Telegraph" svo
írá:
„Hjer vinna aílir að iðnaði. Vjer
komumst að raun um, að fólkið í
verksmiðjunum fær þar hollan og góð-
an mat, í mötuneyturn verksmiðjanna.
Börn, sem eru í skóla, fá líka nægan
mat þar. En um 70 af hundraði af
húsmæðrum, gömlu fólki og ungbörn-
um, sem eru heima, fá aldrei viðun-
andi miðdegisverð. Og þess vegna var
heilsu þeirra hætta búin.“
Að þessu athuguðu fór hann til
matsölustaðar og gerði samning við
þá þar. að þeir skyldi senda heitan
miðdegisverð heim til hvers, sem hafa
vildi. Verðið var ákveðið, sem svarar
2,25 kr. fyrir íullorðna og 1.60 fyrir
börn. Kaupi menn ekki nema þrjár
mál.tíðir á viku, er verðið dálítið
hærra. En þegar nógu margir „áskrif-
endur“ eru komnir, er búist við því
að verðið geti lækkað.
Sem stendur eru áskrifendur um
400. Maturinn er fluttur heim til
þeirra í bílum, sem eru sjerstaklega
útbúnir fyrir þá flutninga. Auðvitað
fá allir sama matinn.
Aðrar borgir í Englandi, og þá sjer-
staklega London, fylgjast af miklum
áhuga með því hvernig þetta fyrir-
komulag gefst. Og einn af helstu mat-
vælaráðunautum höfuðborgarinnar
hefur látið svo um mælt:
„Það getur vel verið að þetta fyrir-
komulag verði tekið upp um alt land,
og reynist mjög þýðingarmikið fyrir
þjóðina til þess að komast fram úr
yfirstandandi vandræðum."
X/ V ^
Mannasiðir
fyrir 100 árum
Þetta er lekiö úr handbók um hátt-
prýöi, sem gefin var út 1847:
— Hlœöu hjartanlegá, ef fijer er
skemt, en varastu að reka uvp trölla-
hlátur.
— Haföu aldrei úafnspjöld til sýnis
meö þvi að stinga þeim undir umgjörð
forstofuspegils.
— Þegar þú dansar, þá gœttu þcss
aö hreyfingar þínar sje rólegar’og
f jaöurmagnaöar og hafi yfir sjer ynd-
isþokka.
— Stálgaflar eiga aldrei að sjást á
borðum.
— Konur cetti aldrei aö snerta spil,
nema þœr kunni að stilla skap sitt.
Aldrei œtti stúlkg aö láta þann, sem
henni líst á, sjá sig spila, þvi aö
áhyggjurnar af spilunum gera hana
bœði Ijóta og uppstökka.
i