Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1949, Side 1
MERKASTI BLETTURINN í REYKJAVÍK
SAGA AF EINU HUSI
Lóskurðarstofan fremst á myndinni.
ÞEGAR byrjað var að byggja yark
smiðjuhúsin (innrjettingarnar) í
Reykjavík 1752, var gamli Víkur-
bærinn rifinn. Mestar líkur eru til
þess að sá bær hafi verið á sama
stað og fyrsti bærinn í Reykjevík
stóð, bær Ingólfs Arnarsonar.
Þótt ekki sje nú nema tæp 200 ár
síðan Víkurbær var rifinn, greinir
menn nokkuð á um það hvar og
hvernig bæarhúsin hafi staðið. En
eftir öllu að dæma finst mjer til-
gáta Eiríks Briems sennilegust —
Bærinn hefur staðið neðst í brekk-
unni vestan við Aðalstræti og hús-
um skipað þannig að þau stóðu í
röð meðfram brekkunni, og hafa
þil snúið gegnt austri. Fyrir framan
hefur verið hlað og traðir og norð-
ur úr þeim sjávargatan út í Gróf-
ina. En beint austur af bænum er
kirkjan og kirkjugarðurinn, og að-
eins hlaðið og traðirnar milli bæ-
arins og kirkjugarðsveggsins.
Verksmiðjuhúsin voru reist á
þrjá vegu umhverfis kirkjugorð-
inn. Þar, sem Víkurbærinn hafði
staðið (eða hluti af honum) beint
á móti kirkjunni, var bygt timbur-
hús sem nefndist Lóskurðarstofan,
og var íbúð aðstoðarmanns þar
uppi á loftinu. Öll voru verksmiðju
húsin tölusett og var Lóskurðar-
stofan nr. 5. Lítið útihús var þar
hjá henni og var nr. 6. En riett
fyrir sunnan var 17 álna langt hús
úr torfi og sneri austur og ves'ur.
Var það nr. 7 og kallað Ullarstof-
an og mun þar hafa verið gevmd
ull og aðgreind, eins og nafnið
bendir til. Norður með brekkunni
voru svo önnur hús reist og eins
norðan við kirkjugarðinn. En á
milli þeirra var Víkurhlað og trað-
irnar og myndaði vísirinn að fyrstu
götunni í bænum. Nyrst uodir
brekkunni (þar sem nú er Ingólfs-
Apotek) voru verslunarhúsin end-
urreist, þegar þau voru flutt úr
Örfirisey og stóðu vestan við siáv-
argötuna. Framlengdist þá gatan
niður að sjó og fekk nafnið „Heved
gaden“. Seinna var hún um nokk-
urt skeið kölluð Klúbbgata, en nú
um langt skeið Aðalstræti.
Lóskurðarstofan var ekki stærsta
timburhús innrjettinganna. Við