Lesbók Morgunblaðsins - 16.01.1949, Blaðsíða 1
bék
2. tölublað
Sunnudagur 16. janúar 1949
XXIV. árgangur.
MERKASTI BLETTURINN í REYKJAVlK
ÞEGAR byrjað var að byggja v^rk
smiðjuhúsin (innrjettingarnar) í
Reykjavík 1752, var gamli Víkur-
bærinn rifinn. Mestar líkur eru til
þess að sá bær hafi verið á sama
stað og fyrsti bærinn í Reykjavík
stóð, bær Ingólfs Arnarsonar.
Þótt ekki sje nú nema tæp 200 ár
síðan Víkurbær var rifinn, greinir
menn nokkuð á um það hvar og
hvernig bæarhúsin hafi staðið. En
eftir öllu að dæma finst mjer til-
gáta Eiríks Briems sennilegust —
Bærinn hefur staðið neðst í brekk-
unni vestan við Aðalstræti og hús-
um skipað þannig að þau stóðu í
röð meðfram brekkunni, og hafa
þil snúið gegnt austri. Fyrir framan
hefur verið hlað og traðir og norð-
ur úr þeim sjávargatan út í Gróf-
ina. En beint austur af bænum er
kirkjan og kirkjugarðurinn, og að-
eins hlaðið og traðirnar milli bæ-
arins og kirkjugarðsveggsins.
Verksmiðjuhúsin voru reist á
þrjá vegu umhverfis kirkjugorð-
inn. Þar, sem Víkurbærinn hafði
staðið (eða hluti af honum) beint
á móti kirkjunni, var bygt timbur-
hús sem nefndist Lóskurðarstofan,
og var íbúð aðstoðarmanns þar
uppi á loftinu. Öll voru verksmiðju
húsin tölusett og var Lóskurðar-
stofan nr. 5. Lítið útihús var þar
hjá henni og var nr. 6. En rjett
SAGA AF EINU HÚSI
Lóskurðarstufan fremst á myndinni.
fyrir sunnan var 17 álna langt hús
úr torfi og sneri austur og ves'ur.
Var það nr. 7 og kallað Ullarstof-
an og mun þar hafa verið gevmd
ull og aðgreind, eins og nafnið
bendir til. Norður með brekkunni
voru svo önnur hús reist og eins
norðan við kirkjugarðinn. En á
milli þeirra var Víkurhlað og trað-
irnar og myndaði vísirinn að fyrstu
götunni í bænum. Nyrst undir
brekkunni (þar sem nú er Ingólfs-
Apotek) voru verslunarhúsin end-
urreist, þegar þau voru flutt úr
Örfirisey og stóðu vestan við sjáv-
argötuna. Framlengdist þá gítan
niður að sjó og fekk nafnið „Hcved
gaden". Seinna var hún um nokk-
urt skeið kölluð Klúbbgata, en nú
um langt skeið Aðalstræti.
Lóskurðarstofan var ekki stærsta
timburhús innrjettinganna. Við