Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1949, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 03.07.1949, Qupperneq 2
310 LESBOK MORGUNBLAÐSINS ustu áramót var hreinritað handrit að bókinni orðið 3 milljónir orða. Ástæðan til þess að verkið fetur gengið svona fljótt er sú, að í bókasafni Vilhjálms er auðvelt að fá allar uppiýjingar og starfsfólk hans er svo þaulkunnugt safninu, að það getur leyst verkið af hendi bæði fljótt og vel. Að vísu skrifa starfsmenn hans ekki nema svo sem helming bókarinnar. Vilhjálm- ur fær greinar um sjerstök efni hjá ýmsum vísindamönnum í breska heiminum og nokkrum lönd um öðrum. Sjálfur ritar hann marg ar greinar og eina mjög langa um allar rannsóknarferðir í norðurhöf- um. Hann hefur eftirlit með öllu því, sem skrifað er, og leiðrjettir sjálfur, þar sem honum þykir við þurfa, eftir því sem reynsla hans sjálfs hefur kent honum. Meðal annars fekk hann ágæta grein um hvítabjörninn og lifnaðarháttu hans. En höfundinum hafði orðið það á að segja að kjötið af honum væri óætt vegna hnyss og óbragðs, og hafði hann tekið það upp úr einhverri bók. Vilhjálmi þótti þetta hart. „Jeg hef lifað á bjarndýra- kjöti eingöngu mánuðum saman, og að mínum dómi gefur það ekki eftir besta fleski“, sagði hann. í „Encyclopedia Artica“ verða ýmsar vísindalegar greinar um þau efni, er snerta norðurhjara heims, eða eins og Vilhjálmur orðar það sjálfur „um alt milli trúarbragða og rotta, alt milli flugna og flugs“ eða með öðrum orðum um alt milli dýrafræði og loftsiglinga. Þar verð- ur meðal annars kent hvernig menn eiga að búa sig á norðurslóðum, og hvernig þeir eiga að fara að því að byggja snjóhús. (Úr „Science Illustrated Magazine“). macjaócin SÍÐAST liðna hálfa öld hafa lækn- ar ráðlagt að minsta kosti 46 mis- munandi matarreglur og 108 mis- munandi lyf við magasári. Venju- lega hefur þurft að setja sjúkling- ana í spítala og með sjerstöku mat- aræði, sjerstökum lyfjum og algeru banni við að neyta áfengis og tóbaks, hefur tekist að lækna marga á 37 dögum að meðaltali. En nú er komin upp ný lækn- ingaaðferð og sá sem fann hana heitir dr. Garnett Cheney við „Stanford’s School of Medicine“ í Bandaríkjunum. Hann hefur unn- ið í tíu ár að rannsóknum sínum og hann komst að því að sjerstakt efni, sem kallað er U-vitamín var gott við sárum í meltingarfærun- um. Menn vita ekki enn hvaða efni þetta er, nema að það er skvlt C- vitamíni. Það er mismunandi mik- ið af því í grænmeti og grasi, einn- ig í hráum eggjarauðum og nokkr- um fitutegundum. En það var þó ekki fyr en dr. Cheney tók upp á því að láta sjúklinga sína drekka kálsafa, að hann komst að raun um það, hvað þetta U-vitamín er gott meðal gegn magasári og garnasár- um. Hann gerði tilraunir með þetta á 13 sjúklingum. Og til þess að vera viss um að þeir fengi ekki U-vitamín úr öðrum fæðutegund- um, ljet hann sjóða allan mat þeirra, en suðu þolir þetta vitamín ekki. Að öðru leyti ljet hann sjúk- lingana fá venjulegt viðurværi og leyfði þeim að reykja, en bannaði þeim að neyta áfengis. Árangurinn varð sá að allir sjúklingarnir fengu fullan bata, þeir sem voru með garnasár á 5 dögum og þeir sem voru með magasár á einni viku, eða fimm sinnum skemmri tíma en áður hafði þekst. Ekki urðu sjúklingarnir fvrir neinum verulegum óþægindum af því að drekka kállöginn, nema hvað sumum varð hálfilt í maganum og fengu hægðatregðu. Annað þótti þeim þó verra, sem sje það, hvað lögurinn var ólystugur. — Sumir sögðu að hann væri á bragðið eins og hrært væri saman þangi og lax- erolíu. Og einn sagði: „Það er á- reiðanlegt að börn munu aldrei biðja um kálsafa.“ Þeir urðu því að neyða þessum grágræna safa ofan í sig, og skamturinn var einn peli á dag. Nú er farið að selja kálsafa í veitingastofum og þangað koma sjúklingar til þess að fá „sinn skamt“. Það hefur tekist að gera hann lystugri með því að blanda í hann tómatsafa, salti og pipar og virðist það ekki gera sjúklingum neitt til, enda þótt þeim hafi áður verið harðbannað að nota salt og pipar. V ^ JL ciuóauióur Oft. Oft eru kvíar óhreinar, oft eru kríur háværar, oft fá hundar úti vott, oft eru sprund með tófuskott. Ótrúlegt. Ekki skil jeg atburð þann, og undur má það kalla hafi þeir lent í hár saman, sem hafa báðir skalla. Frú Góa 1949. Sat á fundi í suðvestri og sendi stundum váskeyti. Köld í lyndi krepti að lýð með kvenrjettinda frosti og hríð. ísleifur Gíslason, Sauðárkróki.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.