Lesbók Morgunblaðsins - 21.08.1949, Side 1
Sunnudagur 21. ágúst 1949
XXIV. árgangiu.
31. tölublað
SKÝFÖLL Á HAGAFJALL
Mánudaginn 1. ágúst s.l. komu tvö skýföll hvert á eftir öðru á Hagafjall í Gnúpverjahreppi og olli vatnsflaum-
urinn ógurlegum skriðuföllum, scm gerðu mikil landspjöll og tóku af vcginn inn í Þjórsárdal á 5 kilómetra löng-
um kafla. Er hjer um svo merkilegt náttúruundur að ræða að rjett er að halda tii haga sem greinilegustum frá-
sögnum af því. Heíur Lesbók því fcngið eftirfarandi útdrátt úr dagbók Brynjólfs Meisteðs vegagerðarverkstjóra
á Stóra-Hofi.
(Ljósni.: Þorvaldur Ágústsson).
HINN 1. ágúst var jeg staddur á
landsímastöðinni Galtafelli í Hruna
mannahreppi. Var ao koma utan úr
Skáiholtsvegi og ætlaði inn fyrir
Skipholt að undirbúa vegavinnu,
sem þar átti þá að hefja.
Urn miðaílan hringir Ásólfur
bóndi á Ásólfsstöðum til mín og
seg'ir mjer þær frjettir, að þar hafi
rignt svo mikið, að ógurlegur vöxt-
ur hafi komið þar í bæarlækinn
með grjótflugi og vikurframburði.
svo að hann haíi orðið ófær. Stór
áætlunarbíll hafi ekki trevst sjer
að leggja í lækinn um stund ng er
þessi lækur þó venjulega mjög lítill
að sumarlagi. En er hlaupið sjatn-
aði svo að bíllinn lór þar yíir.*hafi
liann ckki kornist lengra en að
Litlu-Bringu. Þar hefði skriður
bonð grjót og vikurjarðveg yfir
veginn svo að hann væri með öllu
ófær. Það kom síðar í ljós að 19
skriður höfðu fallið á Bringuveg
inn á svo sem 500 metra löngum
kafla.
Símtal okkar Ásólfs heyrðist illa
og seinast rauf óveðrið sambandið.
En rjett á eftir hringdi Guðmund-
ur Böðvarsson, forstjóri á Selfossi,
Grafgíl i Hagafjalii, hvcrt viö annað.
lil mín, og spurði hvort jeg gæti
ekki hjálpað áætlunarbílnum að
komast leiðar sinnar þegar í stað
Klukkan mun hafa verið um 19
þegar þetta var, og var þá helli-
rignmg á Galtafelli. Jarðýta var
ekki tiltæk, innan hrepps, en svo
hittist á að lítil jarðýta, sem Árni
á Galtaíelh og fleiri eiga, var aí
tiiviljun komin á flutningabíl og
átti að fara út að Unnarholti í
vinnu. Fekk jeg þá ýtu ljeða tii
þess að fara inn í Þjórsárdal. Hugði
jeg að það mundi ekki verða meira
en 6—8 stunda verk fyrir hana að
ryðja skriðunum af Bringuvegin-
um. Ytumennirnir voru þó illa fyr-
ir kallaðir að hefja næturvinnu því
að peir voru þreyttir af vökum og
vinnu og holdvotir eftir það að