Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.1950, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 26.02.1950, Side 11
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 119 hnjaskinu. En mikill varð fögnuð- urinn hjá Wahgi-mönnum þegar þeir sáu kindurnar og fengu að taka á móti þeim úr flugvjelinni. Þeir voru alveg eins og börn og kunnu sjer ekki læti og vildu helst allir klappa kindunum og kjá við þær. Nú eru þessar 1000 kindur komn- ar fyrir nokkru til Wahgi og þrífast þar vel. Kostnaðurinn við að koma þeim þangað reyndist 60 dollarar á hverja kind. En það á ekki að selja þær. Fyrst á að kenna Wahgi- mönnum að fara með þær, halda þeim til beitar og hirða af beim ullina. Þegar þeir hafa komist upp á það, fá þeir kindur gefins og eiga að koma upp fjárstofni fyrir sjálfa sig. * ! •'* • - Grasið, sem vex þarna á hásliett- unr.i, er nokkuð einhæft og stíft. En til þess að gera jarðargróðann fjöl- breyttari og betri fyrir fjeð, hefur verið sáð þar smára og alfalfa í stórum stíl, og vona menn að það breiðist út um alt. Hallström kom til Kerowagi, en svo nefnist trúboðsstöð þar sem að- al flugvöllurinn er, þegar er fjár- flutningunum var lokið. Höfðingj- arnir tóku á móti honum með kost- um og kynjum til þess að þakka honum fyrir veglyndi hans og þeir buðust til þess hver um annan þver -an að höggva af sjer fingur í virð- ingarskyni við hann, eða þá að Idippa af sjer eyrun. Það var í þeirra augum hámark kurteisi og þakklætis. HELLSTRÖM er iðnrekandi og náttúrufræðingur. Hann er m. a. formaður dýragarðsins í Sydney. Nú ætlar hann sjer að koma upp dálitlum dýragarði í Noudugl, einni Wahgi-bygðinni og safna þar sam- an fásjeðum dýrum og fuglum, sem eru á Nýu Guineu, og selja svo til dýragarða út um heim. Hann hefur og fleiri gróðavegi á prjónunum. Á þessum slóðum vaxa ýmsar dýrmætar viðartegundir Hann hefur látið fella trjen og flutt viðinn með flugvjelunum til Ástra- líu. Fyrst ljet hann Wahgi-menn höggva viðinn með öxum, en nú hefur hann fengið þeim vjelsagir til þess og komust þeir fljótt upp á að nota þær, og eins ýmis önnur vjelknúin tæki, sem þeim hafa ver- ið fengin í hendur, þar á meðal „traktora“ og aðrar búskaparvjelar, til að rækta landið. Þegar fram í sækir gerir hann ráð fyrir að þarna verði ræktað kaffi og te og ýmsar fleiri vörur, sem Wahgi-menn geti flutt út og hagnast á. BLOOD hefur sest að í Nondugl til þess að sjá um fjárræktina. Hafa þeir fjelagar fengið þar 500 ekrur iands til umráða. Það varð uppi fjöður og fit í þorp inu, er það frjettist að kona Bloods og tvö börn væri væntanleg þang- að. Þorpsbúar komu allir í sjálf- boðavinnu til þess að byggja hús handa þeim og það gekk bæði fljótt og vel. Engin orð fá lýst hrifn- ingu þeirra þegar þeir sáu yngra barnið, sem var hvítvoðungur. All- ir vildu gæla við það og leika sier að því. Aðra eins „konungs ger- semi“ höfðu þeir aldrei sjeð á ævi sinni. Þeir voru einnig mjög hrifnir þegar þeir sáu stóra brúðu. Þeim fanst hún vera ímynd barnsins. En er þeir handljeku brúðuna og hún rendi til augunum, greip þá skelf- ing og flýði hver sem fætur tog- uðu. Þeir heldu að illur andi væri kominn í ímynd barnsins. EINS og fyr er sagt eru Wahgi- búar fjölkvænismenn og hefur hvorki kristniboð nje yfirvöld af- máð það. Venjulegast ráða foreldr- ar giftingum barna sinna, en þó dregur ungt fólk sig saman þar. Skeður það einkum á hinum svo- Ncfjadans. kölluðu dansleikum þeirra, en þeir eru all einkennilegir í augum hvítra manna. Unga fólkið safnast saman í samkomuhúsi og sest þar í hvirfing, karlmaður og kona sam- an. Svo er trumba slegin, en fólk- ið rær eftir hljóðfallinu og nuddar- saman nefjum. Þykir það dvrleg skemtun, þótt tilbreytingarlaus sje. Umsjónarkona er þar og sjer hún um það að karlmennirnir skifti um stað í hringnum, svo að þeir sje ekki altaf með sömu stúlkunni. Á þessum samkomum velja menn sjer maka, en það er þó ekki einhlítt. Piltarnir verða að geta greitt það verð, er foreldrar heimta fyrir stúlkurnar.Venjulegt brúðarverð er 4—6 grísir, eða álíka margar falleg- ar skeljar. Nú má búast við því í framtíðinni að konur verði keypt- ar fyrir sauðfje. — Brúðguminn fer fyrst með brúði sína heim til foreldra sinna og er hún þar þang- að til hann hefur bygt sjer hús. MIKIÐ hefur breyst í Wahgi siðan hvítir menn komu þangað. Nú ber- ast menn ekki á banaspjót lengur, heldur ríkir friður meðal allra kyn- kvíslanna. Undir umsjá nýlendu- stjórnar Ástralíu fara hinir inn- fæddu höfðingjar með öll völd, eins

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.