Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1950, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1950, Blaðsíða 7
LESBÖK MORGUNBLAÐSINS m Þegar dómkirkjan var hækkuð og nýr turn settur á hana, dugði ekki slökkvi- dæla hennar. Stjórnin tímdi ekki að kaupa dælu, en vildi setja eldingavara á turninn. skoða og reyna slökkvitólin vand- lega, og tvisvar á ári líta eftir öll- um ofnum og eldstóm í bænum. Þegar eldsvoði kemur skal hann eftir samkomulagi við bæarfógeta kveða á um hversu vatnssprautum skal við koma, og ekki rífa niður hús nema með leyfi bæarfógeta. Slökkviliðið skiftist í fjórar aðal- sveitir: 1. Hið eiginlega slökkvilið. — Yfir því er sveitarhöfðingi, er hefir svo marga undirsveitarhöfðingja, flokkstjóra og bunumeistara, sem þörf er á. Við hverja sprautu skulu og skipaðar, ef auðið er, einn söðla- smiður eða skósmiður, einn járn- smiður og einn ílátasmiður (beyk- ir) og skulu þeir allir hafa sín áhöld með sjer til þess að gera við sprauturnar. Slökkviliðsmenn skulu hafa svartar einkennishúfur með rauðum borða og tölu á. 2. Húsrifslið. í því skulu aðal- lega vera tfjesmiðir og leggi sjer sjálfir til áhöld. Yfir þeirri sveit er einn sveitarhöfðingi, með svo marga undirsveitarhöfðingja, sem nefndin kveður á um. Þessir menn skulu hafa einkennishúfur með gulum borða og tölu. 3. Bjarglið. í það skal velja á- reiðanlegustu menn. Yfir þeim er sveitarhöfðingi og tveir undirsveit- arhöfðingjar. Þeir skulu hafa ein- kennishúfur með hvítum borða og tölu á. 4. Lögreglulið. Bæarstjórn ákveð ur hvað lögreglusveitin skuli vera margmenn, en lögreglustjóri ræður því hvernig hún er notuð til að viðhalda góðri reglu á öllu. Þeir, sem eru í lögregluliðinu, skulu hafa látúnsskjöld á brjósti. Þessi voru einkenni hverrar sveitar, en auk þess skyldu flokks- stjórar hafa einfalda silfursnúru um húfu, undirsveitari'oringjar mjóan silfurborða, sveitarhöfðingj- ar silfurborða með herkumli og slökkviliðsstjórar gullborða um húfu. Öll einkenni átti bæarsjóð- ur að leggja til. Auk þess skyldu skiþaðir svo margir brunaboðar, sem þörf væri á til að kalla saman slökkviliðið, en næturvörður á að skýra lög- reglustjóra og slökkviliðsstjóra þeg ar frá ef elds verður vart og hefja brunakall. » TJ Brunamálanefnd stofnuð Hjer er gert ráð fyrir því að sjerstök brunamálanefnd (elds- voðanefnd) verði skipuð í bænum, og með lögum um brunamál í Reykjavík, er út voru gefin 15. okt. 1875 er það ákveðið að þessi nefnd skuli sett á laggirnar. Lög þessi eru allmikill bálkur (31. Einu sinni var þetta besta slökkvidæla á landinu. Þessi mynd er tekin í Hafnarfirði, en þangað hafði dælan verið send til að slökkva eld í kolabyngr. Þarna er enn dælt með vogstangaraíli.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.