Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1950, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1950, Blaðsíða 11
? LESBÖK HORGUNBEAÐSma m Krossinn í í LESBÓK Morgunblaoðsins 22. okt. s. 1. er greinin „Bygð papa á íslandi“. í grein þessari er endur- sagt efni úr bókinni „Herdmen and Hermits“ eftir T. C. Lethbridge, sem varðar sjerstaklega ísland. Nokkur hluti greinarinnar fjallar um krossinn í Heimakletti. Þar sem nokkuð rangt og óljóst er farið með staðreyndir um kross- inn, tel jeg rjett að upplýsa eftir- farandi: Hinn 10. ágúst 1939 komu til mín að Hóli í Vestmannaeyum tveir enskir menn. Annar þessara manna var höfundur fyrrnefndrar bókar og C. T. Tebbutt frá Eynes- bury. Erindi þeirra var að fá leið- sögn mína um Heimaey. T. C. Lethbridge sagði aðalerindi sitt vera leit að minjum papa og bað því um upplýsingar um ör- nefni og fornminjar, sem kynnu að benda til dvalar papa í Eyum. Jeg sagði honum landnámssögu Ey- anna sem best jeg gat og til þess að fullkomna frásögnina fór jeg með hann til tengdaföður míns, sjera Jes A. Gíslasonar, sem er einn fróðasti maður um sögu Vest- mannaeyja. Úr frásögn sjera J. A. Gíslasonar hefir hann það, að Vestmannaey- ar sjáist ekki af Hjörleifshöfða. Við þessar umræður spurði Leth- bridge um ummerki sem papar hafa annarsstaðar látið eftir sig og meðal þeirra nefndi hann kross- mörk. Við vissum af krossmarki í kór einum í klettabeltinu milli Efri- og Neðri-Kleifna í Heima- kletti og sögðum honum af því. Hann var óðfús að sjá það og fór jeg því með hann á leið upp á Heimaklett. Frásögn T. C. Leth- bridge af staðsetningu krossmarks- ins er mjög villandi og tel jeg rjett Heimakletti að staðsetja það á prenti nánar. Stiginn upp á Efri-Kleifar fylg- ir berginu og í því ofanverðu er kór (skúti), sem rúmar tvo til þrjá menn. Áður en stigi var þarna settur var farið eftir snösum og höggn- um sporum og komið í kórinn, en úr honum til hliðar er hæg og stutt leið upp á brúnina. í miðjan botnvegg kórsins er þetta umrædda krossmark klapp- að í móbergið. Armar krossins ná alls ekki út á brúnir. Ef krossinn dæmist fljótvirknislega irnninn, eins og þó er gert í greininni. þá stafar það ekki af slæmri aðstöðu nje því að kórinn sje „mörg hundr- uð fet yfir sjó“, eins og segir í greininni. Kórinn er að vísu eitt- hvað á 300 fet yfir sjávarmál, en bergið gengur ekki í sjó niður, heldur rís það upp úr aflíðandi grasbrekku og frá henni upp að krossmerkinu eru vart meira en 15 fet. Þegar greinarhöfundur er að ræða um aldur merkisins segir hann: „Annað, sem bendir til þess, að þessi kross sje höggvinn af keltneskum munk eða Papa, er að uppi á háeynni eru rústir af litlu hringlaga mannvirki sem er að vísu svo að segja komið í kaf í gras“. Vegna þess að hjer orkar nokkru tvímælis um staðsetningu þessa „hringlaga mannvirkis“, þar sem greinarhöfundur er að tala um Heimaklett og segir svo „uppi á háeynni“, þá tel jeg rjett að skýra frá því, að hjer mun hann frekar eiga við reglulegar mishæðir í gras- sverðinum á Efri-Kleifum skammt frá uppgöngustaðnum, heldur en „Verbúðarhólinn“ á Torfmýri, sem hann skoðaði einnig og ræddi mik- Mjer fannst T. C. Lethbridge láta minna yfir þessu krossmarki þeg- ar hann skoðaði það, en nú má skiljast á honum í riti hans, þó vildi hann sjá he'la alla og ból (fjárból) á Heimaey og var hon- um fylgt í þau. Um krossmarkið er það að segja, að flestir reka augun í það á leið um stigann milli Kleifna. Jeg hefi spurt ýmsa í Eyum, hvort þeir þekktu nokkuð til krossmarksins, en enginn hefur getað skýrt frá sögu þess. Að vísu minnir mig, að einhver hafi sagt mjer að það muni vera höggvið af rælni, því að ekki muni það neitt standa í sambandi við öflun guðlegrar handleiðslu. Ef svo væri, myndi slík krossmörk víða að finna á hinum mörgu tæpu fjallvegum fuglamanna í úteyjum. Á slíkum vegum eru víðast hvar vissir staðir, þar sem fjallamenn gerðu bæn sína, áður en uppganga hófst, en á engum þeirra hefur verið klappað krossmark í bjarg- ið. Að vísu hefur verið nokkuð fjöl- farið um þennan fjallveg milli Kleifna, til kinda, til lundaveiði, til eggjatekju, til fýlungstekju og til hvannarótatekju. Gaman væri að krossmarkið væri frá tíð papa, en vegna þess hve höggförin eru lítt veðruð, er jeg hræddur um að krossmarkið sje frá síðari tímum. Þorsteinn Einarsson. ^ ^ ^ ÞURFTI EKKI ANNAÐ Tvær konur komu inn í veitinga- hús og settust við borð Þrír bjón- ar voru að afgreiða, en ljetu sem þeir sæi þær ekki. Eftir nokkra stund mælti önnur þeirra svo hátt7 að vel mátti heyra um alla stof- una: „Æ, jeg vildi að þessi laglegi afgreiddi okkur“. í sama bili komu allir þjónarnir í hendingskasti til t>eirra-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.