Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1950, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 29.10.1950, Page 14
LISBÓ& MORG U N BLAÐSIH3 | 49a 1 Stefán Filippusson: Fyrirlestur í' Seyðisfirði VETURINN 1877—78 var jeg á Vestdalseyri í Seyðisfirði Þar var þá maður, sem Gísli hjet Eiríksson, altaf kallaður póstur. Hann var meðalmaður á hæð með alskegg, vínhneigður nokkuð og var þá tals- vert á lofti, sem kallað er. Á þeim árum var mannmargt á Vestdalseyri og oft glatt á hjalla, samkomur haldnar og fyrirlestrar fluttir. Þess vegna kom Gísla það nú til hugar að ná sjer í aura með því að halda fyrirlestur, eins og aðrir. Fekk hann barnaskólahúsið ljeð, líklega án endurgjalds og boðar svo fyrirlesturinn. Mörgum var forvitni á að hlusta á Gísla og var fyrirlesturinn því vel sóttur. Steig nú Gísli í stólinn og hafði um margt að spjalla. Hann byrjaði á því að tala urn veginn frá Dvergasteini að Vestdalseyri og að nauðsynlegt væri að laga hann „svo þennan geislavirka jarðargróOa eru skepnurnar sjálfar gerðar geisla- virkar. Og úr þessum geislavirku skepnum verða svo unnin lyf — svo sem digitalis, insulin, atropin — og þau eru þá sjálf geislavirk. Þegar þau svo eru notuð er hægt með Geigers áhaldi að fylgjast nákvæm- lega með þeim áhrifum, sem þessi geislavirku meðul hafa á likam- ann. Menn mega ekki halda á þvi, sem hjer hefur verið sagt, að allar til- raunir með geislavirk efni snúist í um það að lækna krabbamein. — ■ Hitt er talið líklegra, að áður en lýkur verði með kjarnorkurann- sóknum fundin ráð við öllum ^ maanameinum. að presturinn kæmist ekki óskadd- aður á fótunum til kirkjunnar“. Var annað eftir þessu um ambögur karls og versnaði þó heldur er á leið, þegar hann tók að þreytast á mælskunni. Varð fyrirlestur þessi ennálaður og mikið um hann talað og mikið gaman að honum hent. Barst fregnin og frásögnin um hann eins og eldur í sinu um allan Seyð- isfjörð. Annar maður var þá á Vestdals- eyri, Pjetur Klemensson að nafni, en jafnan nefndur Pjetur danski. Var hann hálfgerður fáráðlingur og flakkari. Hann öfundaði Gísla mjög af því hverja frægð hann hefði áunnið sjer og hve mikið hann hefði grætt á fyrirlestrinum. Hugðist hann nú líka halda fyrir- lestur og græða á því stórfje. En áður en af því yrði kemur áskorun til Gísla frá þeim á Fjarðaröldu og Búðareyri að koma þangað og halda fyrirlestur. Fylgdi það með að þeir hefði heyrt fyrirlestur hans mjög rómaðan af almenningi fyrir orðsnild og áheyrilegan framburð. Einnig fylgdi það, að hús væri til reiðu og ait til búið að taka á móti honum. Voru það víst heldri menn þar innfrá, sem voru að spana karl- inn upp i þetta. Gísli ljet ekki dekstra sig, en gerir þeim boð um hæl að hann skuli koma annað kvöld og halda fyrirlestur fyrir þá. Þá var á Vestdalseyri skósmiður, sem Pjetur hjet Sigurðsson, greind- ur maður og góður hagyrðingur. Þegar hann frjetiir um þetta fer hann á fund Gísla og segir honum að nú ætli þessir karlar aðeins að henda gys að honum, og reynir á alla vegu að telja hann af þvf a3 fara slíka forsending. En Gísli var nú ekki á því að láta letjast. Pjetur spyr þá hvort hann megi ekki leggja á ráðin með honum um það hvað hann skuli segja þeim. Jú, það ljet GísU sjer vel líka. Pjetur skrifar þá á stórt blað erindi úr Passíusálmunum, en breytti niðurlaginu eftir því sem honum fanst betur við eiga: Ókendum þjer þótt aumur sje aldrei tillegg þú háð nje spje, þú veist ei hvern þú hittir þar heldur en þessir ræningjar. Svo fekk harm Gísla stóran bunka af órituðum skjölum og lagði þetta blað ofan á. Kvað hann gott að þeir Seyðfirðingar sæi fyrst að karl hefði mikið til brunns að bera. „Nú skaltu aðeins lesa þetta er- indi yfir þeim,“ sagði Pjetur, „og að því búnu skaltu stökkva út og láta myrkrið gæta þín, svo að þeir nái ekki í þig.“ Gísli lofaði að fara að ráðum hans. Svo tók hann rauða meri, sem hann átti og reið inn á Öldu. Þegar að fundarhúsinu kom batt hann þá rauðu að húsabaki og spretti ekki af henni. Húsið var þjettskipað áheyrend- um og hafði hver maður greitt 25 aura fyrir innganginn. Gísli hirti nú þetla i'je, gekk upp í ræðuslól- inn og ruddi úr sjer þessu erindi, sem Pjetur liaíði skrifað fyrir hann. Svo stökk hann út í hend- ingskasti, komst á bak þeirri rauðu og þeysti heim til sín. Hlaupið var á eftir honum, en enginn gat haft hendur í hári hans. Sátu menn bál- reiðir eftir út af því hvernig hann hefði gabbað sig. Pjetur skóari orkti svo brag út af þessu, en þvi er miður að jeg karm hann ekki allan og ábyrgist ekki að jeg fari alveg rjett með

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.