Lesbók Morgunblaðsins - 24.02.1952, Blaðsíða 14
90
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
IMýtt og ódýrt byggingarefni
Hús byggð úr sykurkvoðu
ALLIR kannast við söguna af Hans
og Gretu og sykurhúsið, sem þau
fundu í skóginum. Sykurhúsið var'
ljómandi fallegt og það var gert til
þess að freista barna. Sagan um
þetta undrahús kom ímyndunar-
aflinu á flug hjá æskulýðnum. —
Þetta hús átti engan sinn líka.
En nú er ævintýrið orðið að veru-
leika, eins og svo mörg önnur æv-
intýr. Að vísu er vonda kerlingin
ekki með, en það er farið að byggja
sykurhús, og þau verða bæði traust-
ari og ódýrari en önnur hús, eftir
því sem segir í „Popular Mecanic“.
Sá heitir Rappleyes, sem fundið
hefur upp á þessu. Hann á heima í
smábæ, er Southport nefnist í
Norður-Karolina í Bandaríkjun-
um. Hann er nú nokkuð við aldur,
en var áður forstjóri fyrir stóru
fyrirtæki. Hann gerir það alls ekki
að gamni sínu að fást við þetta,
heldur hefur hann óbifanlega trú á,
að sér hafi tekizt að finna upp ný-
tízku byggingarefni, sem framleitt
verði í stórum stíl, og muni draga
mjög úr byggingarkostnaði húsa í
framtíðinni. — Hann fullyrðir að
hægt sé að byggja úr því 5 her-
bergja íbúð fyrir 1000 dollara, en
þá eru ekki skolpleiðslur, vatns-
leiðslur né rafleiðslur meðtaldar.
Melasse nefnist úrgangur sá, eða
sykurkvoða, sem kemur úr sykur-
verksmiðjunum, og hefur það fram
að þessu mikið verið notað til
skepnufóðurs. Melassekökur munu
vera kunnur fóðurbætir hér á landi.
Það er þetta efni, sem Rappleyes
notar og gerir úr því byggingar-
steina, kvoðu til þess að nota í
staðinn fyrir stálbik á götur, kvoðu,
sem hægt er að dæla á veggi og
Hci' er verið að liúða
utan hus incð plas-
moit. — Virnet er
strengt á húsið og
efninu síðan dælt á
það. Með þessu móti
verða gömul hus eins
og ný væri.
Verið að s :tja plasmofalt lag
á gólf.
loft í staðinn fyrir múrhúðun, e/ni
til að setja á gólf, svo að þau verða
glerhörð, og hörð, og sveigjanleg
efni í alls konar pípur, svo sem
skolppípur. En til þess að geta þetta
hefur hann orðið að finna upp, af
eigin hyggjuviti, alls konar vélar.
Hann er ekki enn faíinn að selja
efnið, því að hann telur sig ekki
hafa lokið tilraunum sínum með
það. Hann hefur t. d. gert breiðan
„bikaðan“ veg heim að húsi sínu
úr þessu eíni. — Fyrsta tilraunin
reyndist ágætlega, en hann var ekki
ánægður með það, heldur hefur
hann hvað eftir annað rifið veginn
upp og sett á hann nýja blöndu, og
alltaf heíur það tekizt jafn vel.
Hann hefur einnig byggt sér stóran
vinnuskála úr þessu efni og hann
hefur húðað gamalt hús með því
utan og innan, svo að það varð eins
og nýtt. Innan skamms ætlar Rapp-
leyes að reisa verksmiðju í New
Jersey og þar gerir hann ráð fyrir
að framleiða iimm smálestir af
þessu byggingarefni á hverri klst.
Byrjað er á því að þurrka sykur-
kvoðuna viö mikinn hita í þar til