Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.1952, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.1952, Blaðsíða 12
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 120 ekki muni mikil hætta á því. Þeir segja þó jafnframt, að ef þessir vígahnettir rekist á jörðina, verði af því miklu stórkostlegri spreng- ing heldur en af vetnissprengju. Þúsundir eða jafnvel milljónir nýrra stjarna hafa fundizt í vetrar- brautinni utan við sólhverfi vort. Og lengra úti í himingeimnum hafa fundizt hringmyndaðar stjörnu- þokur, þúsundum saman og svipar þeim til vetrarbrautarinnar. Hvar er jörðin stödd í vetrarbrautinni? Ef hægt væri að horfa tilsýndar á vetrarbrautina, sem sólhverfi vort er í, mundi hún líta út eins og gríðarmikill mylnusteinn. Er talið að hún muni vera um 80.000 ljós- ára í þvermál, en þyktin um 10.000 Ijósára. Á öðrum vetrarbrautum úti í himingeimnum sést, að þótt þær sé hjóilaga, þá ganga eins og dræsur út úr þeim. Eins hyggja menn að muni vera um vora vetr- arbraut, og muni þá sólhverfi vort vera einhvers staðar út við röndina eða í einni af þessum dræsum. En ekki er auðvelt að ákveða það. En að jörðin sé utarlega má marka af því að vér sjáum inn til vetrar- brautarinnar, sjáum líkt og í rönd- ina á henni. Þessi ljósleiti bekkur á festingunni, sem vér köllum í daglegu tah vetrarbraut, er stjarna- mergðin í miðju „hjólinu“ og virð- ist renna saman í eina heild vegna ‘ fjarlægðarinnar. Með því að telja ' stjörnurnar í öllum áttum frá oss, ‘ getur skeð að takast megi að ganga úr skugga um það hvernig vetrar- brautin er og hvar í henni vér er- [ um niður komnir. * Ótal stjörnuþyrpingar, sem eru ! líkt og eyjar í hinum mikla útsæ f geimsins, eru allt um kring vetrar- 1 brautina. Innstu stjörnurnar, eða sólirnar í þessum þyrpingum, eru þær heitustu, sem menn þekkja. Er ^ talið að yfirborðshiti þeirra sé um 180.000 st. á Fahrenheit, en til sam- anburðar má geta þess, að yfir- borðshiti sólar vorrar er ekki „nema“ 10.000 st. á Fahrenheit. Með því að miða þessar stjörnu- þyrpingar nú og síðan aftur eftir 20—25 ár geta menn svo ráðið nokkuð í það hvernig vetrarbraut- in er. Hiti og fjarlægð sólna Mönnum mun finnast torskilið hvernig hægt er að reikna út hita og fjarlægð sólna. — En þetta er reiknað út eftir birtu þeirri og ljós- rófi, sem af þeim stafar. Á þann hátt hafa menn einnig kómizt að raun um hvort stjörnuhverfi nálg- ast oss eða fjarlægjast. Þær stjörn- ur, sem eru að fjarlægjast, stafa frá sér rauðleitum geislum, en rauðu geislarnir eru langbylgjur htrófsins. Ef stjörnur nálgast, þá er bjarminn af þeim bláleitur eða purpuralitur, en það eru stuttbylgj- ur litrófsins. Þessar litabylgjur ljóssins haga sér mjög líkt og hljóð- bylgjur. Þetta getur hver maður athugað með því að hlusta á skip þeyta hljóðpípu sína. Ef það er nærri manni, þá eru tónarnir sker- andi, en þegar það er langt í burtu þá eru þeir dimmir. Nóg efni í nýja hnetti Eitt af því sem getur gefið upp- lýsingar um stærð og lögun vetr- arbrautarinnar, eru þoku og gas- mekkir þeir, sem þar eru alls stað- ar. Slíka mekki eða mökkva hafa menn fundið í öðrum vetrarbraut- um milli dræsanna, sem þær draga á eftir sér. Nú hafa fundizt í vorri vetrarbraut ýmsir slíkir mekkir, sem menn höfðu ekki séð áður. Að- eins höfðu menn haft grun um að þeir væri til, vegna þess að það var stundum líkt og skyggði fyrir stjörnur, er menn voru að athuga. Nú hafa menn fundið að milli sól- hverfis vors og hinna næstu sól- hverfa í vetrarbrautinni, eru svo miklir mekkir, að efnið í þeim er eins mikið og í sólhverfunum sjálf- um. Þessir mekkir geta villt mönn- um sýn. Sums staðar eru líkt og gloppur í geimnum, þar sem fáar eða engar stjörnur sjást. Menn vita ekki hvort það er af því, að þar eru engar stjörnur, eða þá að helj- armiklir geimmökkvar skyggja á þær. En nú, þegar þetta nýja him- inkort kemur, verður hægt að ganga úr skugga um það, t. d. ef eftir nokkur ár sjást stjörnur á þeim stöðum þar sem engar sjást nú. Með þessum rannsóknum fást líka margvíslegar upplýsingar um hinar ýmsu tegundir sólna. Sumar eru htlar og gular, líkt og vor sól, en aðrar eru bláar og sumar þeirra svo risavaxnar, að ef sól vor væri í miðju þeirra mundi yfirborðið ná út fyrir sporbaug jarðar og gleypa hana líka. Til eru líka fölvar sólir og svo litlar, að þær eru lítið stærri en jörðin. Svo eru til sóhr, sem ýmist stækka eða dragast saman. Enn eru til sólir, er snúast hvor um aðra og svo eru til heilar sólna- þyrpingar. Nú er það hlutverk stjörnufræð- inganna að ráða fram úr því hvort allar sólir sé skyldar í eðli sínu og mismunurinn á þeim stafi aðeins af því að þær sé misjafnlega gaml- ar, eða þá hvort hægt er að skipta þeim í flokka, ef svo mætti að orði komast. Eftir athugunum þeirra á Palo- mar virðist mega skipta sólunum í vetrarbraut vorri í tvo aðalflokka. í öðrum flokknum eru gamlar sólir, ef til vill jafngamlar vetrarbraut- inni. í hinum flokknum eru tiltölu- lega ungar sólir og meðal þeirra eru allar hinar björtustu, svo og bláu risasóhrnar. Þessar sólir eyða orku sinni svo óhemjulega, að þær geta ekki orðið gamlar, aðeins nokkurra milljóna ára. Þær hlyti

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.