Lesbók Morgunblaðsins - 09.03.1952, Page 13
W LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
!T7 121
því að vera kulnaðar fyrir löngu,
ef þær væri jafn gamlar hinum
sólunum. Þess vegna halda stjörnu-
fræðingar að sólir sé alltaf að fæð-
ast og deyja. En hvernig sólir fæð-
ast, er mönnum ekki ljóst. Sumir
halda því fram, að gas og ryk-
mekkir þéttist vegna áhrifa frá
næstu stjörnum. — Þegar þess’r
mekkir eru orðnir nægilega þéttir
þá fara þeir að fá aðdráttarafl og
við það þéttast þeir enn meir og
um leið myndast þá hiti í þeim.
Þannig heldur þetta áfram þangað
til kominn er sjálflýsandi hnöttur
eða sól.
Sólir, sem springa
Það kemur stundum fyrir að
sólir blossa allt í einu upp, svo að
þær verða 150.000 sinnum bjartari
heldur en þær voru áður, og
springa þá um leið. Þessar stjörnur
eru kallaðar „Nova“ (nýstirni)
vegna þess að áður fyr, er menn
sáu þessar sóhr blossa upp þar sem
engin stjarna hafði sézt áður, þá
héldu þeir að ný stjarna hefði
fæðst.
Það er mönnum ráðgáta hvernig
á því stendur að sólir springa. En
á ljósmyndunum, sem nú hafa ver-
ið teknar má sjá hvernig fjöldi
sólna er á lit, hve hiti þeirra er
mikill og hve bjartar þær eru. —
Komi það nú fyrir seinna að ein-
hver af þessum sólum springi, þá
geta menn á myndunum séð hvert
var eðli þeirrar sólar áður en
skapadægrið kom. Af því má svo
draga ályktanir um það hvaða
stjörnur sé líklegar til þess að
springa. Væri t. d. mjög þýðingar-
mikið að geta komizt að því hvort
vor sól er með þeim ósköpum fædd
að það eigi fyrir henni að liggja
að springa.
A 4 A
rs
EITUR
ÞAÐ er ekki langt síðan að firma
í Bandaríkjunum, sem selur frysta
ávexti, var sagt, að ekki þyrfti ann-
að en dreifa ofurlitlu af „Thiourea11
yfir þá til þess að þeir héldust ó-
skemmdir og fagrir. Firmað var þá
í þann veginn að senda frá sér mik-
inn forða af frystum grænum baun-
um. Það fór eftir ráðleggingunni,
og baunirnar vöktu mikla aðdáun
vegna þess að þær væri alveg eins
og nýjar.
Annað firma frétti um þetta og
fór eins að. En áður en það sendi
baunirnar frá sér bauð það mat-
vælaeftirlitinu að skoða þær og
reyna. Nokkrum rottum var þá
gefið að eta af baununum. Eftir fá-
ar klukkustundir voru rotturnar
allar dauðar.
Af tilviljun komst þá upp um
fyrri sendinguna. Og þá var brugð-
ið við í dauðans ofboði til þess að
reyna að ná í baunirnar aftur, því
að hér gat verið um að tefla líf og
dauða þúsunda manna, kvenna og
barna. Til allrar hamingju tókst að
ná í hinar fögru en eitruðu baunir
áður en þær komust í smásölu-
verzlanir, áður en grunlausir menn
lögðu þær sér til munns sem góðan
mat.
< 1 «* ’
ÞaS hefur færzt í aukana
að blanda fæðutegundir
með ýmsum efnum.
Ekki hefur alltaf tekizt svona vel
til að hægt hafi verið að forða
mönnum frá að neyta eitraðrar
fæðu. Fyrir nokkrum árum kom á
markaðinn vestra ný tegund af
borðsalti. í því var „lithium chlor-
id“, efni sem þá hafði ekki verið
reynt til hlítar. Þrír menn dóu af
þessu salti áður en þetta komst upp
og hægt var að grípa í taumana.
í MAT
Það hefur færzt mjög í aukana
á seinni árum að alls konar efnum
sé blandað í fæðutegundir. Flest af
efnum þessum voru fundin upp í
stríðinu eða eftir stríðið. Mörg
þeirra eru ósaknæm, en önnur eru
aftur baneitruð, eða skaðleg á ann-
an hátt. Læknar hafa til dæmis
sagt, að þeir telji líklegt að rekja
megi hina stórauknu útbreiðslu
krabbameins til þessara efna í mat,
og jafnvel að hinn nýi vírus, sem
enn er nefndur X sé sprottinn upp
af neyzlu slíkra gerfiefna.
En hvers vegna er þá verið að
setja alls konar efni í matvæli?
Svarið er augljóst. Mörg af þess-
um efnum eru miklu ódýrari held-
ur en matvælin sjálf, það er auð-
velt að afla þeirra, þau gera mat-
vælin áferðarfallegri og koma í veg
fyrir að þau skemmist.
í þessu sambandi er rétt að minn-
ast á brauð. Það hefur komið í Ijós
að fjöldi bakara hefur sett ýmis
efni í brauð um mörg ár til þess
að þau haldist mjúk og áferðar-
falleg. Með þessu móti hafa þeir
sparað sér stórfé, því að nú geym-
ast brauðin mjúk von úr viti í stað
þess að áður var endursent til
þeirra svo og svo mikið af brauð-
um, sem höfðu harðnað.
í Massaschusetts hugkvæmdist
bruggara að setja „hydrofluoric
acid“ saman við drykkinn. Með því
sparaði hann sér að sótthreinsa
vatnið. En efni þetta var eitrað. Og
drykkurinn hafði verið seldur út
um allt land áður en þetta komst
upp og hægt var að stöðva ósóm-
ann.
í Indiana tók verksmiðjueigandi
upp á því að blanda jarðolíu saman
við maíshveiti og selja það sem
„matarfeiti". Hann litaði þetta efni