Lesbók Morgunblaðsins - 16.03.1952, Síða 8
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
f 132
Magnús Jensson
í VENE ZU
Enn höldum við suður á bóginn
og nú með fullfermi af hrásykri til
Puerto Cabello í Venezuela. Við
siglum fyrir austurodda Kúbu, um
Windward sundið milli hennar og
Haiti, sem rís hálend í austrinu, en
í vestri er Jamaica. Leið okkar ligg-
ur þvert yfir Karabiska hafið, sem
takmarkast af hinum fjölmörgu
Litlu Antilleseyjum í austri, en þær
hafa evrópisku stórveldin eignað
sér, þ. e. a. s. þær, sem einhver
fengur er í. Flestar eiga Englend-
ingar, þá Frakkar og Hollendingar.
Sjórinn er rennisléttur og sólin
hátt á lofti, því við erum ekki ýkja
langt fyrir norðan Miðjarðarlínu.
Hitinn er mikill, eða um 32 stig
á Celsius, en loftið er afar rakt,
næstum því eins og gufa, þó er
ekkert mistur, en skýjafar mikið.
Þegar myrkrið er skollið á byrja
skruggur og eldingar. Allt loftið
logar og hávaðinn er eins og ósht-
ættin (en Macqueen er sama og
Sveinsson).
Sunnan við Skið eru tvær smá-
eyjar, sem heita Canna og Sanday
(Sandey) og á milli þeirra er góð
höfn, hin eina örugga höin hér um
slóðir. Það var því eðhlegt að nor-
rænir víkingar settust þar fyrst að.
Þessarar hafnar er getið í sögu
Guðmundar biskups góða. Á þess-
um tveimur eyjum er fjöldi nor-
rænna örnefna, og eins í sundun-
um. Þar eru nöfn eins og Steðji,
Skarfasker og Hellusker og Boði.
Garður kemur þar einnig fyrir í
^ tnerkingunni skerjagarður. — í
in fallbyssuskothríð frá stórri flota-
deild. Svo hellist regnið niður og
þeir sem inni eru flýta sér út til
þess að njóta hressingarinnar og
svala líkamanum, því eftir ör-
skamma stund hættir steypibaðið
og hávaðinn byrjar aftur.
Brátt förum við að mæta olíu-
skipum, sumum afar stórum og
hraðskreiðum, en það er engin
furða, því nú erum við að nálgast
land, sem framleiðir um 100 millj.
smálesta af olíu árlega, eða til
þess að gera sér betur grein fyrir
þessu magni, 1,9 millj. tunnur á
dag. Venezuela er annað stærsta
olíulandið í Vesturálfu, en eins og
vitað er, hafa Bandaríkin þar for-
ystuna í því eins og flestu öðru. Síð-
an í stríðslok 1945 hefur olíufram-
leiðsla landsins þvínær tvöfaldast.
Þó eru enn stór svæði, þar sem bú-
izt er við að olía sé í jörðu, órann-
sökuð. Af þessari framleiðslu eru
þröngu sundi milli eyjanna heitir
Fadhall, en það er gamla norræna
nafnið Vaðill. Út í þetta sund
gengur Bruarnis, sem er sama og
Brúarnes. Á Canna er langur og
lágur tangi, sem heitir Langanis og
er sama og Langanes. Og þanriig
mætti halda lengi áfram.
Á Sandey eru nokkur forn kuml,
sem hafa verið rannsökuð og eru
þau frá víkingaöld. Á Langanesi er
stór kumlateigur, sem enn hefur
eigi verið hreyfður. Þar er aflang-
ur haugur sem virðist benda til
þess að þar hafi einhver verið
lieygður í skipi sínu.
Frá íerðum Kötlu IV.
E L A
90% í höndum erlendra fyrirtækja,
bandarískra og hollenskra, ríkið
fær 50% ágóðahluta, sem er 60%
af þjóðartekjunum og 95% aí gjald
eyristekjum landsins. Landið er
víðáttumikið en hefur þó færri íbúa
en Kúba og stór landsvæði eru enn
óræktuð og ónumin. Það býður því
fjársterk fyrirtæki velkomin til
landsins og eins innflytjendur til
landbúnaðarstarfa. Þangað hafa að-
allega flutzt ítalir, Spánverjar og
Portugalar, en einnig nokkrir Norð-
urlandabúar, en þeir hafa fæstir
ílenzt þar vegna loftslagsins. T. d.
má geta þess að talsvert margir
Danir fluttu þangað á árunum rétt
fyrir síðustu heimstyrjöld. Útlend-
ingar eru vel séðir í þessu
landi.
Olíufélögin veita 50.000 verka-
mönnum trygga og mjög vel laun-
aða atvinnu og hafa byggt handa
þeim um 20.000 íbúðarhús og auk
þess 53 skóla, sem kostuðu um
23 millj. bolivars (1 amerískur doll-
ar jafngildir 3.2 boliv.), en laun
ófaglærðra verkamanna er 32 boli-
vars á dag og meðal árstekjur um
20.000 boliv., eða sem svarar rúm-
um 100 þús. ísl. krónum! og at-
vinnuleysi þekkist ekki í landinu.
Mannvirki og annað í sambandi
við þennan mikla olíuiðnað hafa
kostað um 1500 millj. dollara. Loks
er með samningi ríkisstjórnarinn-
ar tryggt lágt verð á benzíni til
innanlandsnotkunar, eða sem svar-
ar til 40 ísl. aura lítrinn.
í Caballo er ágæt höfn. Stór
uppfylling og miklar vöruskemm-
ur. Engin olíuafgreiðsla fer fram