Lesbók Morgunblaðsins - 16.03.1952, Page 14

Lesbók Morgunblaðsins - 16.03.1952, Page 14
138 ' r LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Að handan: Sagan um Betty MAÐUR er nefndur Stewart Ed- ward White og er Bandaríkjamað- ur. Hann er rithöfundur og hefur ritað margar skáldsögur. En í október 1940 gaf hann út bók um annað efni. Hún heitir „The Unob- structed Universe“ og flaug svo út, að margar útgáfur voru prentaðar hver á eftir annarri. í þessari bók segir hann frá eitthvað 40 samtöl- um, sem hann átti við konu sína, Elisabeth Grant White, eftir það að hún andaðist hinn 5. október 1939 í Kaliforniu. Þau hjónin höfðu áður fengizt við dulræn fyrirbrigði. Það byrjaði með því, um 20 árum áður en Betty dó (en svo var frú White jafnan ncfnd af vinum sínum) að þau gerðu það að gamni sínu að reyna að koma borði á stað. En það fór svo ao borðið fleygðist fram og aftur með svo snöggum viðbrögð- um, að þau gátu ekki fylgzt með. Þá ákváðu þau að verja einni stund á dag eftir það til þess að athuga dulræn iVrirbrigði. Betty byrjaði á því að rcvna að skrifa ósjálfrátt. Fyrst í rtað gckk það illa og rugl- íngslegt það, sem hún skrifaði, en brátt lagaðist þetta, skriftin varð grcinilcg og Skilmerkilegt allt, sem þár stóð. Þctta varð til þcss að Betty upp- götvaði aö hún 'hafði miðilshæfi- leika og á napstu þ'remur árum þroskaði hún þennan hæfileika otrúlcga mikið, svo að lm-n gat farið sáliörum, ög kom það bft fyrír. Það var eínu siuni árið 1923 að hún hvíldiöt á legubekk í heimili þeirra hjóna í iýaliíormu. Þá segir hún allt í einu við mann sinn að nú hafi hún fengið samband við frænda sinn, sem var í 3000 mílna fjarlægð. Hún hafði ekki séð hann lengi, en nú sagði hún að hann lægi í sjúkrahúsi. Hún lýsti her- berginu sem hann var í og öllu, sem þar var inni, þar á meðal lit- unum á blómum, sem stóðu þar í vasa. Hún lýsti nokkrum mismun- andi stórum meðalaglösum, sem stóðu þar á borði. Og hún lýsti veikindum frænda síns. Þetta var allt skrifað og reyndist hárrétt seinna meir. Nokkru seinna voru þau hjónin á ferð á skemmtibáti. Veður var gott og stafaði svo miklum glampa af sjónum að Betty fékk ofbirtu í augun og lokaði þeim sem snöggv- ast. Þá sá hún sýn: skuggalegan mann, á litlum grænum báti. Mað- urinn var með bót fyrir öðru aug- anu og á höfðinu hafði hann hatt með slapandi bÖrðúm, líkt og sjó- ræningjar notuðu áður. Þau voru nú stödd á þeim slóð- um þar sem engra mannaferða var von. Og í tvo daga sigldu þau síðan án þess að verða nokkurs vör. En þá rákust þau á manninn í græna bátnum. Hann var nákvæmlega cins útlits og Bctty hafði lýst. Hann var með linan hatt á höfði og bót fyrir öðru auganu. Ötal dæmi voru önnur um fjar- skyggni Bettys. — Safnaði White þeim sögum saman í bók, sem kom út 1937 og heitir rThe Betty Book“. En þá vissu fæstir að Betty vat kona hans. Nóttina sem Betty andaoist var White a ferð upp í fjöllum Kali- forníu. Hann varð þess skyndilega var, að Betty var þar hjá honum. Hann sá hana ekki, hann heyrði ekki til hennar, en hann fann glögglega til návistar hennar. Og þetta skeði hálfri stundu eftir að hún gaf upp andann. Og oft seinna kom þetta fyrir að hann fann til nálægðar hennar jafn glögglega og hún stæði ljóslifandi hjá honum. Nokkrum mánuðum eftir að Betty dó fór hann til New York til þess að sjá um útgáfu á nýrri bók. Hann fór þá til kunningja sinna, sem heima áttu í einu af úthverfum borgarinnar. Hann kall- ar þau Joan og Darby. Þau höfðu þekkt Betty vel og oft verið á til- raunafundum hjá henni. Og nú sagði Joan honum frá einkennilegu atviki, sem komið hafði fyrir hana eitt sinn er hún fór í búðir. Hún hafði keypt tvo kínverska kassa úr kamfóruviði, og vissi ekkert til hvers hún keypti þá né hvað hún ætlaði að gera við þá. Nokkru seinna var haldinn tilraunafundur á heimili þeirra. Þar kom Betty fram og kvaðst hafa ráðið því að hún keypti þessa kassa. Kvaðst hún hafa gert það til þess að sanna að hún væri lifandi enn, handan við gröf og dauða. Hún bað þau hjónin „að fara til Millicent, því að hana hefði lengi langað til að eignast kassa úr kamforuviði, en hvergi getað fengið hann“. Þessi Millicent var systir White, en Joan þekkti hana ekki og vissi ekki að White ætti neina systur. Hér var því sönn- unin, sem Betty var að tala um. Auðvitað varð hún enn velgameiri ef það skyldi reynast rétt, að,Milli- cent hefði verið að rcýna að út- vega sér kassa úr kamíóruviði, en ekki tekizt það. Það reyndist rétt. Meðan Betty lá banaleguna hafði hún talað um það að sig langaði til þess að hjálpa þeim sem sjúkir

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.