Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1953, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1953, Blaðsíða 6
556 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Eftir fjögur ár í Ethiopíu ETHIOPÍA er fjarlægt land og vissum vér íslendingar fátt um það áður en ítalir gerðu þar innrás og lögðu landið undir sig. Með fréttunum, sem af stríðinu þárust, komu og ýmsar upplýs- ingar um land og þjóð. Og nú er land þetta mörgum af oss hug- stæðara en fyr, þar sem ung íslenzk hjón hafa farið þangað í trúboðserindum og hyggjast dveljast þar um nokkur ár. — Eftir- farandi grein gefur nokkra hugmynd um hvernig ástandið í land- inu er nú. Höfundur hennar, William H. Sees, er nýlega kominn þaðan eftir fjögurra ára dvöl. ÉG er nýkominn heim eftir fjög- urra ára dvöl í Ethiopíu. Þrjú ár var ég skólastjóri í Dessye, sex mánuði var ég sjúklingur og í sex mánuði var ég að reyna að koma á fót fréttablaði. — Það reyndist ógerningur vegna ritskoðunar, þrátt fvrir það að sjálfur keisar- inn, Haile Selassie, reyndi að styrkja mig til þess. Ég hafði feng- ið ýmsar upplýsingar um landið áður en ég fór þangað og reynslan afsannaði þær ekki, en margt var þó öðruvísi en ég ætlaði. Innlen'd stjórn þarf ekki endilega að vera betri né frjálslyndari held- ur en útlend stjórn eða nýlendu- stjórn. Og hin ríkjandi stefna, að þjóðum þeim, sem dregizt hafa aftur úr, eigi að gefa kost á því að stjórna sér sjálfar, er ekki alltaf til góðs fvrir þessar þjóðir. Allt er undir stjórninni komið, hvort sem hún er innlend eða útlend. Það er annars ekki hlaupið að því að kynnast Ethiopíumönnum, því að þeir eru orðvarir við útlend- inga, og jafnvel innbvrðis. Sem dæmi um það má nefna þessa sögu, sem Hassas Mazhar Bey, sendi- herra Egypta hefur sagt. Það hafði fjölgað í konungsfjölskyldunni og hann kvaðst hafa farið til hallar- innar að óska til hamingju. Kvaðst hann þá hafa spurt hvort það væri prins eða prinsessa, sem hefði fæðzt. „Ég veit það ekki“, var hon- um svarað, og þar við sat. Manntal hefur aldrei verið tekið í Ethiopíu. Enginn hefur hugmynd um hve mörg börn fæðast þar á ári, hve margir deva árlega, né hver íbúatalan er í landinu. Ekkert er heldur vitað um það hve mann- margir hinir ýmsu þjóðflokkar eða trúarbragðaflokkar í landinu eru. Og mjög fáir Ethiopíumenn hafa hugmynd um hve gamlir þeir eru. Ekki má taka þar ljósmyndir af neinu því, er yfirvöldin ætla að sýni fátækt og ómenningu. Ferða- maður, er reyndi að taka myndir til að sýna fátæktina í lapdinu-eða veikindi, mundi tafarlaust vera settur í fangelsi og allar myndir hans gerðar upptækar. Ritskoðun er ströng. Strykað er út úr leikritum Shakespeares og fræðslukvikmyndir KFUM eru bútaðar niður eða bannaðar með öllu. En keisarinn er af mörgum dýrkaður sem guð, líkt og á sér stað um helztu menn einræðisríkja, enda þótt honum falli það illa sjálfum. Hvítir menn og hinir fáu mennta- menn Ethiopíu telja að keisarinn sé framfaramaður. — Hann hefur unnið sér það til ágætis að banna ’ þrælahald, hann hefur bannað að menn sé handhöggnir eða fót- höggnir fyrir smáþjófnað, eins og áður var títt, og hann hefur lög- leitt fræðslukerfi, sem líklega er mesta framförin, enda þótt því sé mjög óbátavant í framkvæmd. En hann er umkringdur af afturhalds- seggjum, sem gæta þess vel að hann frétti ekki neitt, nema það sem þeim sjálfum þóknast að láta hann vita, og gæta þess vandlega að ekki sé framkvæmdar neinar fyrirskipanir hans, sem þeim sjálf- um eru þvert um geð. Meginþorri Ethiopíumanna er mjög fáfróður og hjátrúarfullur og kann hvorki að lesa né skrifa. — Fræðslukerfið snertir ekki almenn- ing. Nokkrir hálfmenntaðir menn þykjast þó eiga rétt til þess að komast í opinberar stöður, og má það að vissu leyti teljast sann- gjamt En þess verður langt að bíða að þeim takist að skáka höfð- ingjunum, sem hvorki eru læsir né skrifandi. Allur þorri almennings býr í stráþöktum leirkofum, sem kallast „tukals". Gólfið í þeim er annað- hvort gert af leir eða kúamykju. Um hreinlætistæki er ekki að ræða. Moldarbekkur er hringinn í kring í kofunum og á honum sitja menn á daginn og sofa á honum um nætur. * Á daginn má sjá konur fyrir utan kofana vera að vefa í handvefstól- um eða mylja korn í trogum. Sum- ar eru að snyrta sig eða þær greiða hver annari og tína jafnframt varg- inn úr höfðinu. Þær þvo sér mjög sjaldan og þá helzt upp úr rign- ingarpollum, eða þá í ánni um leið og þær þvo þvott sinn. í öllum borgum er fullt af betlurum, sem eru kaunum hlaðnir og sjúkir. Búskapurinn er afar langt á eftir tímanum. Bændur nota tréplóga og beita uxum fyrir þá. — Aðalfæða fólksins er hin svokallaða „injera“, súr kaka, sem gerð er úr margs konar kornmeti. Kjöt er óhófsfæða og sést ekki nema í veizlum höfð- ingjanna og þar er það borið hrátt á borð.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.