Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1953, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1953, Blaðsíða 15
LESBOK MORGUNBLAÐSINS 565 NÝ BÆANÖFN LESBÓK hefir borizt eftirfarandi grein og þykir það orð í tíma talað. Meðal hinna merkustu minja frá landnámsöld eru bæarnöfnin. — Flestir bæir á íslandi bera enn þann dag í dag nöfn þau er land- námsmenn gáfu þeim. En hvernig heíir þessara minja verið gætt? Ekki er mér kunnugt um, að neht hafi verið gert til að íyrirbygg'ja nafnbreytingar á bæum, þvert á móti hafa nafnbreytingar átt sér stað beinlínis vegna opinberrar til- hlutunar. Þegar lögin um nýbýli voru sett, fengu engir nýbýlastyrk, nema þeir reistu allt af grunni. T. d. var ekki hægt að fá styrk til að byggja upp fallin bæarhús. En bóndi, sem svo var ástatt um, gat fengið ný- býlastyrk, ef hann endurbyggði bæ sinn í túnjaðri og gaf nýbýlinu annað nafn, en gamli bærinn bar. Ég var nýlega á ferð um Húna- vatnssýslu og Skagafjarðarsýslu með kunnugum manni. Hann benti mér á nokkur nafnaskipti á jörðum í þessum héröðum. Fallandastaðir (í Hrútafirði) heitir nú Brautarholt Smyrlaberg (í Ásum) Sunnuhlíð Kot (í Vatnsdal) Sunnuhlíð Syðra-Tungukot (Blöndud.) Brúarhlíð Ytra-Tungukot (Blöndud.) Ártún Eiríksstaðakot (íSvartárdal) Brattahlið Eyvindarstaðagerði (í Bl.d.) Austurhlíð Hóikot (í Skagaf.) Birkihlíð Lilla-Seyla (i Skagaf.) Birkihlíð Skinþúfa (í Skagaf.) Vallanes Úlfsstaðakot (í Skagaf.) Sunnuhvoll Kúskerpi (i Skagaf.) ? um frá hungri og' harðrétti, þegar illa lét í ári, hvort heldur var af völdum tíðarfarsins eða verslunar- ánauðarinnar. Lengra nær þessi upptalning ekki, en hún ætti að nægja til að sýna að hér er fullkomin hætta á ferðum. Svo getur hver sem vill skygnst um sína sveit. Jarðamats* bókin síðasta getur um nokkrar nafnbreytingar, en alveg virðist það af handahófi. Hin nýju nöfn eru flest eða öll mjög hversdagsleg og ómerkileg. Sama gildir um flest heiti nýbýla, sem ég hefi heyrt. Það lítur út fyrir að nútíma íslendingar séu ekki eins orðhagir og mennirnir, sem gáfu örnefni á landsnámsöld. Nú heyrast ekki nýyrði á borð við Glóðafeyki, Tindastól, Tröllakirkju og fleiri fögur örnefni frá land- námsöld, hvað sem því veldur. En málið verður fátækara en áður þegar hverfa bæanöfn eins og Fallandastaðir, Smyrlaberg, Skin- þúfa og Kúskerpi. 123. ★★★★★★ Flöskuskeyti ENSKUR drengur, Robert Spinks, fann í fyrra flösku rekna hjá Yar- mouth, og þar sem hann var aðgæt- inn, tók hann eftir því að bréfmiði var í henni. Á þessum miða stóð, að flöskunni hafi verið fleygt i sjó hjá Melba í Ástralíu hinn 1. janúar 1949. Hún hafði því vcrið rúmlega þrjú ár á leiðinni „hálfan hnöttinn kring“. Flöskur eru alls staðar á reki um úthöfin. Sumar eru tómar, en sumar eru boðberar frá mönnum, sem eru i hættu staddir, eða frá vísindamönnum, sem nota þessa aðferð til þess að kynn- ast straumum í höfunum og fiskgöng- um. En allur fjöldinn af flöskum þess- um hefir ekki arrnað en eitthvert bull inni að halda, því að ótölulegur fjöldi manna gerir það að gamni sínu að setja miða í flösku og fleygja henni í sjó. Eru þær ekki til neins gagns nema ef ráða má af þeim eitthvað nýtt um hafstrauma. Margar vísindastofnanir senda árlega frá sér fjölda flöskuskeyta. Má þar sérstaklega nefna tvær báðum megin Atlantshafsins. Er það Marine Bio- logical Association í Englandi og Hydrographic Department bandaríska flotamálaráðuneytisins. í hverri flösku, sem þessar stofnanir senda, er miði prentaður á nokkrum tungumálum cg á finnandi að útfylla hann eftir því sem til er sagt og senda hann síð- an til viðkomandi stofnunar. Venju- lega fá menn íundarlaun. En það var sú tíðin, að mcnn máttu ckki opna flöskurnar, heldur áttu að skila þcim til yfirvalda, og gat líflát leg ið við. Ástæðan til þessa var súaðá dög um Elisabetar hinnar fyrri Englands- drotningar, fann sjómaður flöskuskeyti hjá Dover, og flutti það frétt, sem ekki var ætluð almenningi. Þar sagði að Hollendingar hefði tekið af Rússum og lagt undir sig Novaya Zemlya land- ið í íshafinu, 30.000 fermílur að stærð. Út af þessu var þuð svo að enska stjórnin skipaði sérstakan mann til þess að opna hverja flösku, sem bær- ist á land, og mátti enginn annar gera það. Þetta fyrirkomulag helzt fram á daga Gcorgs III. Flöskur geta flækst lengi í hafi áð- ur en þær ber að landi. Þannig var það, að fyrfr nokkrum árum fann rússneskur bóndi flösku rekna á land á eynni Vikitshi, sem er norður í ís- hafi. Hann opnaði flöskuna og náði úr henni skeyti, en vegna þess að hann var ekki læs, sendi hartn miðann til yfirvaídanna i klurmansk. Kom þá í ljós að þetta var neyðarkail, ritað á norsku og ensku: „Fimm hestar og 150 hundar eftir. Vantar héy, fisk og 30 sleða. Verð að snúa við snemma í ágúst. Baldwin.“ Þetta skeyti var 45 ára gamalt. Það var frá Evelyn Ba'.d- win íshafsfara, en hann var lalinn af 1902. Samt komst hann heim ásamt fylgdarliði sínu cn hann var dáinn eðlilegum dauðdaga löngu áður en þetta neyðarkall hans kom í leitirnar. Flöskuskeyti eru yíirleitt sein) í ferðum. Er talið að meðalhraði þeirra muni vera um hálf ensk míla á klukku- stund. Ein flaska fór þó þúsund míl- ur á tveimur mánuðum og önnur íór á 33 dögum frá Newíoundland til Donegal. Annars er ekki gott að ákveða hve lengi flöskuskeyti eru á leiðinni,

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.