Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1953, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1953, Blaðsíða 10
560 LESBÓK MOKGUNBLAÐSINS Ég lít í dalnum löngu horfna byggS, þar liggja spor við götu mína falin. Stígin af fótum þeirra er tóku tryggð við túnið græna, bæinn sinn og dalinn. • Um grænar hlíðar glitra daggar tár, og gróðurmoldin fyllir loftið angan. Þar hoppa lækir, hjala silungs ár, og liljóður blærinn strýkur létt um vangann. f hlíðar halla stendur bóndabær, með hurstir vaxnar grænum mosa skófum. í þýfðu túni þögull bóndinn slær, hans þreyttar hendur bera sigg í lófum. Hann glepur fátt en gleðst við þögn og starf, sér gæfu leitar hann í verki þungu. Með knýttar herðar kotungsneyð í arf, en konungs lund er meitlar svip og tungu. Það er svo margt, sem augun fyrir ber, í undraheimi, dal við fjallarætur. Við bæar vegg er barn og leikur sér, af blautu grasi vökna smáir fætur. Að laufi grænu lítil hönd er rétt, og ljúfu auga brosir saklaus drengur, er leitar gulls við hlaðna hellu stétt, og hvar sem víðar lítill fótur gengur. Þú horfna kynslóð, hljóð er dala byggð, þinn hörpustrengur brostinn fyrir löngu. Á guð þú lagðir bæði traust og tryggð, með trú í hjarta þína vegagöngu. Við drottins hönd var dagsverk unnið þitt, við drottins borð var kropið hinzta sinni. Af hjartans grunni litla ljóðið mitt, skal lagt í sveig er helgast minning þinni. VALDIMAR GUÐMUNDSSON frá Högnastöðum. — Flugmaðurinn sá sitt óvænna, sveigði til hliðar — og þá urðu börnin fyrir flugvélinni. Þau höfðu komið að hliðinu rétt eftir að ég fór þaðan og mennirnir höfðu hleypt'þeim inn. Og svo fóru þau að leita að mér og vissu alls ekki að nein hætta væri yfirvofandi. Svava litla beið bana samstundis, en drenginn bar ég heim til Hall- dórs læknis Hansens. Læknirinn hugði honum ekki líf. Drengurinn var ekki með mikla áverka útvort- is, en hann hafði meiðst mikið í höfðinu og innvortis. Ég ætla ekki að lýsa því hvert áfall þetta varð fyrir móður þeirra. Þeir, sem börn eiga, geta bezt gert sér það í hugarlund. Sjálfur var ég varla mönnum sinnandi lengi á eftir. Á mig sótti sífelt þessi ásök- un: Ef þú hefðir verið kyrr við hliðið, þá hefði þetta ekki komið fyrir! Ég reyndi að þagga það niður með því, að það hefði verið skylda mín, sem eftiriitsmanns á flugtún- inu, að fara frá hliðinu þegar ég sá að eitthvað var að hjá flugvál- inni. Þá kom önnur ásökunin: Þú þurftir ekki að hlaupa út að flug- vélinni, þú gerðir þar ekkert gagn! Og aftur reyndi ég að svara, að það hefði verið skylda mín. Þannig barðist ég við sjálfan mig lengi, og það er hvað þyngst í mótlætinu, ef manni finnst sjálfskaparvíti eiga þar sök á. Þetta voru þungbærir og erfiðir tímar.--- Lífi drengsins var bjargað. Hann er nú fullorðinn maður, en hann býr enn að áfallinu. Já, og ég*held að við foreldrarnir höfum aldrei náð okkur eftir það. ---- Þannig var saga Gísla. Ég get bætt því við, að þá voru engar al- mannatryggingar og þau hjón hafa ekki fengið neinar bætur. Flugfé- lagið var fátækt, enda taldi það sig ekki bera neina ábyrgð á slysinu. Það auglýsti þegar á eftir aðvörun til almennings um, að það tæki enga ábyrgð á lífi og limum manna, hvorki þeirra, semsfæri á loft með flugvélinni né hinna, sem kæmi til að horfa á flug. Ef menn vildu vá- tryggja sig, yrði það að gerast sér- staklega, og fyrir forgöngu þess var það svo víst að rúmum hálfum mánuði seinna var auglýst að menn gæti tryggt sig hjá vátrygg- ingarskrifstofu Gunnars Egilson. En það gilti víst aðeins um þá, sem flugu. Einhverjir höfðu slasazt lítils- háttar við það að gaddavír sveifl- aðist á þá um leið og flugvélin sleit girðinguna. Sjálf var flugvélin lítt skemmd að öðru en því, að skrúfan hafði brotnað. Var fljótt gert við það og ný skrúfa sett á í staðinn, og svo hófust farþegaflug að nýu hinn 30. júní. Kepptust menn um að fá að fljúga, eins og ekkert hefði í skorizt. Litla stúlkan var jarðsett 8. júlí og síðan smáfyrndist þetta sorglega slys hjá öllum nema þeim, sem í 33 ár hafa borið harm sinn í hljóði og mega ekki enn óklökkv- andi á það minnast. Á. Ó.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.