Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1953, Blaðsíða 8

Lesbók Morgunblaðsins - 04.10.1953, Blaðsíða 8
FYRSTA FLUGSLYS Á ÍSLAIMDI SAGA flugmálanna hér á landi er ekki löng. Hún nær yíir rúmlega 30 ár. Það var hinn 3. september 1919 að flugvél hóf sig í fyrsta skifti til flugs aí íslenzkri grund. Þetta var leiguflugvél og stýrði henni llugmaður sá er f’aber hét. Sumarið eitir var svo flugi hald- ið áiram hér í Reykjavík og var amerískur ilugmaður af íslenzkurn ættum, Frank Fredriksson, fenginn til að stjórna flugvélinni. — Hafði hann með sér enskan vélamann sem Turton hét. Engir flugvellir voru þá til á landinu og var hér því ekki um neina samgöngubót að ræða í bili. Til flugsins var stoínað í því skyni að vekja áhuga manna íyrir ilug- listinni og var það gert með því að hafa flugsýningar og leyfa mönn- um að koma upp í flugvélina og fljúga yíir bæinn og nágrennið, svo að þeir sannfærðust um hve ágætt þetta nýa samgöngutæki væri. Flugvélin hafði bækistöð sína á túni, sem Eggert Briem í Viðey átti suðvestast í Vatnsmýrinni. — Þetta var flugvöllurinn, þar tók hún sig upp og þar settist hún. Syðst og vestast var flugskýlið, en leiðin inn á túnið lá frá Laufásvegi eftir troðningum suður mýrina, á svipuðum slóðum og nú er Njarð- argata. Túnið var umgirt gadda- vírsgirðingu og var hlið þar sem troðningarnir lágu að henni. Þessa leið íór fólk suður á völl, þegar það fór að horfa á flugsýningar, eða fljúga. Nú var það 26. júní að listflug skyldi sýnt í fyrsta skifti og mönn- um síðan gefinn kostur á að fljúga. Streymdi þá múgur manns suður á völlinn. Veður var gott, norð- Sigurberg H. Gislason vestan andvari en skýað loft. Hófst svo listflugið og stóð um stund og dáðust menn mjög að leikni flug- mannsins og hreyfingum flugvél- arinnar. Gekk það mjög að óskum og síðan átti farþegaflug að hefjast. Flugvélin varð alltaf að stefna upp í vindinn, þegar hún tók flugið eða settist og varð því að renna ská- hallt yfir túnið. Hafði því áhorf- endum verið strengilega boðið að standa sem næst flugskýlinu, eða vestan við sjálft flugtúnið að sunn- anverðu. En nú fór eins og oft áð- ur, að menn hlýða ekki settum reglum. Og undir eins og flogið var með fyrsta farþegann, þyrptist fólkið inn á túnið, vegna einhverr- ar heimskulegrar ímyndunar um, að það mundi sjá betur ef það stæði sem næst. Stóð það nú í þyrpingu beint fyrir þeirri stefnu, sem flug- vélin þurfti að hafa þegar hún hóf sig til flugs með farþega í annað skifti. Flugtakið varð ekki svo gott að flugmaðurinn treystist til að fljúga yfir hópinn og var um stund ekki annað sýnna en flugvélin mundi þeysast beint á manngrú- ann, og hefði það valdið stórkost- legra slysi en maður vill gera sér í hugarlund. — í dauðans ofboði sveigði ílugmaðurinn því ílugvél- ina til hliðar. Flugvéhn renndi yíir túnið og beint á skurð, sem þar var, hoppaði yfir hann og lenti á gaddavírsgirðingu og sleit hana. Ekki sakaði þá, sem 1 flugvélinni voru, en á braut hennar yfir túnið lágu tvö lítil börn í valnum, 10 ára telpa, sem Svava hét og bróðir hennar, Sigurberg Hafsteinn, fjög- urra ára. Þau höíðu staðið þar ein sér og haldizt í hendur þegar flug- vélin kom brunandi og lauzt þau til jarðar. Telpan var örend þegar að var komið, en drengurinn var með lífsmarki. Var hann íluttur heim og lá þar milli heims og heljar í tvo mánuði. Síðan fór hann að hressast og komst á ról. Hann er enn á lífi, en aldrei hefur hann beðið bætur þessa áfalls. Þetta var fyrsta flugslysið á ís- landi. Það var átakanlegast vegna þess að lítil börn skyldi verða fyrir því. Æska landsins hlaut fyrsta skellinn af samgöngutæki framtíð- arinnar. Enginn sakaði flugfélagið um slys þetta né heldur flugmann- inn. Það var eingöngu áhorfendum að kenna. Þeir höfðu ekki fylgt settum reglum, steypt sjálfum sér í voða með heimsku sinni og dregið börnin með sér út á völlinn, þar sem enginn mátti vera. Vanþekk- ing almennings á hinni nýu tækni og þeim hættum, sem henni fylgja, olli þessu átakanlega slysi. Foreldrar barnanna voru þau Gísli trésmiður Gíslason og kona

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.