Lesbók Morgunblaðsins - 11.10.1953, Qupperneq 12
578
LESBÓK MOKGUNBLAÐSINS
Gestir
Keykja-
vikur:
Borgar-
stjórahjón-
in í Edin-
borg.
5727 farþega. Auk fcess höfðu þær
meðferðis 30 smálestir af varningi og
14 smálestir af pósti (3.)
Unnið hefir verið að flugvallargerð
í Grímsey í sumar, eða lendingarbót-
um, og lenti flugvél þar í fyrsta sinn
um miðjan mánuð (16.)
Mikil Flugsýning var haldin í
Reykjavík í þessum mánuði til minn-
ingar um aS 50 ár eru liðin síðan
flugvél hóf sig fyrst á loft (22.)
LANDHELGISBROT
Enskur togari var tekinn að veiðum
í landhelgi fyrir austan og farið með
hann til Seyðisfjarðar. Þar var hann
sektaður um 74 þús. kr. og afli og veið-
arfæri gert upptækt (9.)
Tveir belgiskir togarar voru teknir
að veiðum í landhelgi fyrir sunnan
land og farið með þá til Vestmann-
eya. Þar voru þeir dæmdir í 10 þús.
kr. sekt hvor .og afli og veiðarfæri
upptækt (18.)
Vb. Erlingur frá Vestmanneyum var
tekinn að ólöglegum veiðum í land-
helgi (24.)
Belgískur togari var tekinn í Vest-
manneyum fyrir margítrekað land-
helgisbrot fyr á þessu ári. Skip-
stjórinn þrætti og kvaðst vera nýkom-
inn á skipið. Málið var í rannsókn
(30.)
FJÁR.MÁL OG VIÐSKIFTI
Viðskiptasamningur var gerður við
Tékka og nemur 29 millj. króna á
hvora hlið. Kaupa þeir fiskiflök, síld,
gærur og ull, en láta í staðinn álna-
vöru, glervörur, sykur, byggingarefni
o. fl. (2.)
Verð á síldarmjöli var ákveðið 243
kr. hver 100 kg. fob. (3.)
Ríkisstjórnin tók tvö lán hjá Al-
þjóðabankanum, 22 millj. kr. til bún-
aðarframkvæmda og rúmar 4 millj. kr.
til stuttbylgjustöðvarinnar á Rjúpna-
hæð við Reykjavík (5.)
Akureyringar keyptu togarann
Helgafell frá Reykjavík og var kaup-
verðið 5,5 millj. kr. (5.)
Ráðgert er að Rafmagnsveita Reykja-
víkur kaupi 2000—3000 tonn af brún-
kolum af h.f. Kol, og noti í varastöð-
ina hjá Elliðaánum. Kolin eru brot-
in hjá Tindum á Skarðsströnd (10.)
Vísitala framfærslukostnaðar í
Reykjavík var 159 stig, hafði hækkað
um 3 stig vegna sumarverðs á kartöfl-
um (18.)
Verð á ostum, skyri og kjöti hækk-
aði nokkuð frá því sem það var í
fyrra (18. og 23.)
Togarar Vestmanneya hafa legið
iðjulausir í höfn í allt sumar vegna þess
hvað rekstur þeirra hefir gengið illa.
Vildu sumir bjarga málinu við með
því að selja annan togarann en við
það rofnaði samvinna vinstri flokk-
anna, sem hafa verið í meiri hluta í
bæarstjórn (12.) — Síðar var svo sam-
þykkt að leysa upp Bæarútgerð Vest-
mannaeya, selja annan togarann til
Hafnarfjarðar, en stofna nýtt hluta-
félag um hinn (25.)
Öllu starfsfólki fjárhagsráðs var sagt
upp með fyrirvara (25.)
•
MENN OG MÁLEFNI
Bændurnir, sem fóru til Finnlands,
komu úr þeirri ferð (1.)
*Guðjón Teitsson var ráðinn forstjóri
Skipaútgerðar rikisins (10.)
Þessir menn voru skipaðir í Orðu-
nefnd: Birgir Thorlacius skrifstofu-
stóri, Jón Maríasson banka-
stjóri, Pálmi Hannesson rektor, Ric-
hard Thors forstjóri. Varamaður var
kosinn Arngrímur Kristjánsson skóla-
stjóri. Forsetaritari er sjálfkjörinn í
nefndina (13.)
Kristján Steingrímsson bæarfógeti í
Neskaupstað íekk lausn fra embætti
(13.)
Pétur Thorsteinsson, deildarstjóri í
utanríkisráðuneytinu, var skipaður
sendiherra í Moskva (13.)
Kristján Eldjárn þjóðminjavörður
sótti svokallað „Víkingaþing", sem háð
var i Bergen, þar sem margir vísinda-
menn komu saman til að ræða um
víkingaöldina og bera saman bækur
sinar um hana (16.)
Þýzki söngvarinn Fischer-Dieskau
kom hingað og söng tvisvar við góðan
orðfetír (17.)
Magnús Jónsson prófessor sagði af
sér formennsku í Fjárhagsráði. Stjórn-
in hafði þá þegar ákveðið að leggja
Fjárhagsráð niður (18.)
Tómas Guðmundsson skáld var boð-
inn á rithöfundafund, sem Evrópuráð-
ið gengst fyrir í Rómaborg 13.—fo. o».i..
(18.)
Ingólfur Guðmundsson, stúdent írá
Laugarvatni, var fulltrúi á norrænu
æskulýðsmóti, sem háð var í Finn-
landi (20.)
Sir James Miller borgarstjóri í Edin-
borg og kona hans komu hingað í
heimsókn í boði Reykjavíkurbæ-
ar (24.)
Árni Friðriksson mag, var ráðinn
framkvæmdastjóri alþjóða hafrann-
sóknanna (24.)
Fulltrúar íslands á þingi Sameinuóu
þjóðarma voru skipaðir: Thor Thors