Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1953, Blaðsíða 17
LESBOK MORGUNBLAÐSINS
775
Gangan umhverfis Kaaba
Nú lá næst fyrir það, sem kallað
er „tawaf“, en það er að ganga sjö
sinnuiyi umhverfis Kaaba. Þetta
verður hver hadji (pílagrímur) að
gera þrisvar sinnum að minnsta
kosti, í fyrsta skifti þegar hann
kemur til Mekka, í annað sinn þeg-
ar hann kemur frá Steinkastinu og
í þriðja sinn áður en hann kveður
staðinn.
Fyrstu þrjá hringana á maður að
hlaupa við fót, en ganga síðan
hægt. Ég vissi ekki hvaða bænir
lesa skyldi á þessari göngu, en ég
las þær bænir, er mér komu í hug.
— Þessar hringferðir umhverfis
Kaaba eru táknrænar og eiga að
þýða leit sálarinnar að guði.
Þúsundir árrisulla pílagríma
voru komnar inn í forgarðinn og
höfðu hafið gönguna umhverfis
Kaaba. Menn tróðust og enginn
hugsaði um annan. Sumir þuldu
bænir, aðrir voru grátandi, en sum-
ir voru sem í leiðslu þarna við
helgidóminn. Ég lenti inni í þröng-
inni og barst með straumnum
Ég hafði verið svo varkár að fá
leyfi hjá yfirvöldunum til að taka
myndir. Fyrir fáum árum hefði
verið óhugsandi að fá slíkt leyfi og
ég hefði átt á hættu að vera grýtt-
ur af ofstækisfullum pílagrímum.
Sanutrúaðir pílagrímar keppast um að fá að þreifa á tjóldum Kaaba og kys&a þau.
Kaaba, sem sagt er að Abraham hati reist. Hér sést er verið er að breiða hin
glitofnu tjöld yfir hana. __________^
-tjaldinu svo að það lagðist í fell-
ingar. Ég fann til blygðunar, eins
og allir sannir Múhamedsmenn,
þegar þeir standa frammi fyrir
helgidóminum, en að nokkru leyti
var það þó því að kenna, að ég
hafði lofað að taka myndir af helgi-
athöfnunum og hinum helgu stöð-
um, sem fáir höfðu dirfzt að gera.
En tilgangur minn með þessu
var hreinn. Ég vildi flytja Vestur-
löndum nánari þekkingu'á helgi-
siðum vorum og þýðingu þeirra.
Fyrir rúmlega 370 milljónir Mú-
hamedsmanna, hefur „hadj“, eða
pílagrímsgangan djúpa og lifandi
merkingu. Og ég hugsaði sem svo:
Ef ég get komið með lýsingu og
myndir, er að einhverju leyti gæti
sýnt umheiminum hverja þýðingu
öll þessi viðhöfn hefur fyrir trú-
bræður mína, þá hef ég gert mitt
til að auka skilning meðal þjóð-
anna.
Hvers vegna? í fyrsta lagi vegna
þess, að Múhamed bannaði allar
eftirlíkingar af mönnum, svo að
Arabar freistuðust ekki til þess að
taka upp skurðgoðadýrkun. í öðru
lagi vegna þess, að það hefði verið
talið guðlast að koma með mynda-
vél inn í helgidóminn.