Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1954, Síða 5
*- LESBOK MORGUNBLAÐSINS
401
MERKILEGT MIÐILSAFREK
TUTTUGU ÁRA MINNING
ITM þessar mundir eru liðin rétt
^ 20 ár síðan bein þeirra Agnesar
og Friðriks voru grafin upp í Vatns
dalshólum, flutt að Tjörn á Vatns-
nesi og grafin þar í vígðri mold.
Töldu ýmsir þetta þá „einkennilegt
uppátæki“, að vera að hrófla við
beinunum, sem legið höfðu þarna í
mold í 104 ár, fjarri alfaravegi og
höfðu notið fullkomins friðar síðan
hinar ógæfusömu persónur voru
teknar af lífi. Er ekki svo sem alveg
sama hvar beinin fúna að mönnum
látnum? Skiftir það svo sem
nokkru máli hvort þau hvíla í vígð -
um reit, eða ekki? Og var ekki hitt
verra, að raska ró framliðinna? Það
hefur þó jafnan þótt óheillamerkí.
Þannig töluðu menn um þennan
atburð fram og aftur. Saga Agnes-
ar og Friðriks var riíjuð upp að
nýu. En þá kom í ljós, að greftrun-
arstaður þeirra hafði verið löngu
gleymdur, jafnvel í Húnavatns-
sýslu og á þeim bæum. sem næstir
eru. Að vísu vissu allir hvar aftak-
an hafði farið fram, því að enn sást
móta fyrir balk nokkrum eða palli,
sem hafði verið hlaðinn undir högg
-stokkinn á Þrístapa, einstökum,
þrítypptum hóli, sem er norðan við
sjálfa hólaþyrpinguna.
í sögu Nathans Ketilssonar og
Skáld-Rósu, eftir Brynjólf á Minna
Núpi, segir að líkin hafi verið lögð
í kistur og grafin skammt frá af-
tökustaðnum, en höfuðin sett á
stengur. Esphólin segir einnig í Ár-
bókum sínum að höfuð þeirra hafi
verið sett á stengur, en horfið það-
an skömmu síðar. Var almælt að
húsfreyan á Þingeyrum hefði sent
vinnumann sinn nóttina eftir aftök-
una, að taka höfuðin niður og grafa
þau á laun í kirkjugarðinum a Þing
eyrum. Var það því allra manna
trú, að bein þeirra væri á tveimur
stöðum, höfuðin einhvers staðar í
kirkjugarðinum á Þingeyrum, og
beinagrindurnar einhvers staðar í
nánd við Þrístapa. En þar var
hvergi að sjá merki til dysjar eða
leiðis. Og þótt gengið væri fram
og aftur um Þrístapa sást engim
staður öðrum líklegri til þess að
þar hefði gröfin verið tekin. Jarð-
vegur virtist alls staðar örgrunnur
á sjálfum hólnum, en umhverfis
hann er deiglend slétta og þar hefði
víða mátt taka nógu djúpa gröfTEn
hér er um svo stórt flæmi að ræða,
að óvinnandi verk væri að leita þar
að týndri gröf.
En hvernig stóð þá á því að hafin
var leit að þessari gröf og gengið
var svo að segja rakleitt að henni,
jafnvel á ólíklegasta stað? Um það
er merkileg saga, sem ekki hefur
verið nema hálfsögð fram að þessu.
Það var enginn einstakur maður,
sem tók sig fram um það af sjálfs-
dáðum að grafa upp bein þeirra
Agnesar og Friðriks og flytja þau
í vígðan reit til yfirsöngs. Um það
kom beiðni „að handan“ og konan,
sem þar var miðill og meðalgöngu-
maður, vildi alls ekki að nafn sitt
væri nefnt í sambandi við þetta
mál, meðan hún væri á lífi. Hún
hét Sesselja! Guðmundsdóttir og
átti heima á Grettisgötu 75. Hún
er nú nýlátin og um leið má rjúfa
þá þögn, sem verið hefur um upp-
haf þessa máls. Það er venjulegt
að rita ævisögur fólks er það fellur
frá, en ævisaga Sesselju væri ekki
nema hálfsögð, ef þessum þætti
væri sleppt. Þykir því vel hlýða að
hann sé birtur nú og því fremur
þar sem kviksögur eru íarnar að
ganga um, að önnur kona hafi verið
miðill og meðalgöngumaður í þessu
máli.
CAGAN hefst á árinu 1932. Sess-
elja var þá á bezta aldri. Hún
var dul í skapi og gerði sér fáa að
einkavinum, barst og ekki á en
hugsaði mest um heimili sitt. Hún
var trúuð kona og skapföst, og
aldrei haíði hún kynnt sér, né vilj-
að kynna sér „andatrú“ og kenn-
ingarnar um að hægt sé að ná sam-
bandi við þá, sem framliðnir eru.
Svo er það eitt kvöld að hún fær
ankannalega tilfinningu í hægri
höndina og er sem hún hafi ekkert
vald á höndinni og hún hreyfist
ósjálírátt á ýmsa vegu. Til þessa
voru engar hugsanlegar orsakir.
Höndin hafði verið alheilbrigð rétt
áður og ekki orðið fyrir neinu
hnjaski né áfalli. Og þessar undar-
legu hreyíingar áttu ekkert skylt
við handardofa né sinadrátt. Það
var engin ókennileg tilfinning í
höndinni, en það var eins og hún
vildi fara sinna eigin ferða og
skeytti engum skipunum frá heila-
stöðvum þeim, er handatiltekt ráða.
Þegar þessu hafði farið fram um
hríð, gerðist Sesselja áhyggjufull
út af þessu, en þá sagði einhver,
annaðhvort í gamni eða alvöru, að
líklega væri hér einhver framlið-
inn, sem vildi fá að nota hönd
hennar til þess aö koma á fraxn-