Lesbók Morgunblaðsins - 13.06.1954, Síða 12
X
408
LESBOK MORGUNBLAÐSINS
Herleiðing Eystrasaltsþjóða
„Svarti dagurinn" 14. júní 1941
í SAMRÆMI við hina yfirlýstu
,, stefnu Sovjetlýðveldisins Rúss-
lands, að allar þjóðir eigi að hafa
sjálfsákvörðunarrétt, einnig til
þess að losa sig undan yfirráðum
annarar þjóðar, viðurkennir Rúss-
land fullveldi og sjálfstæði Eist-
lands skilyrðislaust, og þar með
hefir það fríviljuglega og um aila
framtíð, afsalað sér öllu tilkalli til
yfirráða í Eistlandi, sem það hef-
ir áður haft samkvæmt stjórnar-
skrá og milliríkjasamningum, en
þau ákvæði falla nú úr gildi um
alla framtíð. Eistland hefir því
engar skyldur við Rússland fram-
ar, þótt það hafi áður lotið stjórn
þess“.
Þannig hljóðar 2. greinin í frið-
arsamningunum milli Eistíands og
Rússlands, sem voru undirskrifað-
ir í Tartu 2. febrúar 1920. Og sams
konar ákvæði voru í friðarsamn-
ingum Rússa við hin Eystrasalís-
ríkin, Lettland og Lithaugaland.
í septembermánuði 1939 heimt-
uðu Rússar að fá varnarstöðvar í
Eistlandi vegna ófriðarins, og urðu
Eistur að verða við þeim kröfum.
En um það var gerður sérstakur
milliríkjasamningur og í 5. grem
hans er skýrt tekið fram að sjálf-
stæði Eistlands sé ekki á neinn hátt
rýrt með þessu: „Þessi samningur
hefir ekki hin minnstu áhrif á
sjálfsákvörðunarrétt samningsað-
ilja né sjálfstjórn, landsvæði þau
og flugvellir, sem Rússar fá til um-
ráða, eru og verða eistneskt land“.
Þetta var fyrsti sammngurirm,
sem Rússar gerðu, er þeir hóíu
útþenslu sína. Þeim var þó fyrst
mjög í mun að út í frá yrði ekki
litið á þetta sem yfirgangsstefnu.
Hinn 7. október 1939 stendur í grein
í „Izvestija“: „Sovjetstjórnin tel-
ur að smáþjóðirnar eigi einnig að
hafa rétt til að lifa. Þess vegna
virða Sovjetríkin sjálfstæði annara
þjóða, enda þótt stjórnarfyrir-
komulag þeirra sé með öðrum
hætti en hjá þeim“. Og á fundi
æðsta Sovjetráðsins sagði Molotov
hinn 31. okt. 1939: „Flugufregnirn-
ar um að verið sé að koma á sovjet-
skipulagi í Eystrasaltslöndum, eru
ekki annað en rógur, sem á að vera
vatn á mylnu óvina Sovjetlýðveid-
isins. Fullveldi Eystrasaltsríkjanna,
friðhelgi þeirra og trygging fyrir
því að Rússar blandi sér ekki í
innanríkismál þeirra, er skýrt og
skorinort tekið fram í samningun-
um við þau“. Þá höfðu Rússar gert
samskonar samninga við Lettland
og Lithaugaland.
í erlendum blöðum fóru nú að
heyrast fréttir um það að Rússar
væri með á prjónunum nýar árásar
fyrirætlanir gegn Eystrasaltslönd-
unum. Út af þessu lýsti Tass frétta-
stofan yfir því í febrúar 1940, að
Rússar ætluðu ekki að gera nein-
ar frekari kröfur á hendur Eystra-
saltsríkjunum, ekki yrði krafizt af
þeim neinna frekari varnarstöðva,
ekki krafizt að setuliði yrði þar
fjölgað og yfirleitt ekki gerðar
neinar nýar kröfur. „Tass heíir
verið falið að tilkynna að allar
sögusagnir um það eru tilhæfulaus-
ar og alveg úr lausu lofti gripnar“.
En hinn 15. júní þá um sumarið
réðist rússneskt herlið inn í Lit-
haugaland og rússnesk herskip
stöðvuðu allar sighngar til Eist-
lands.
-□-
Daginn eftir, sunnudaginn 16.
júní, tilkynnti Tass fréttastofan,
að öll Eystrasaltsríkin, Eistland,
Lettland og Lithaugaland, heí'ði
gert hernaðarbandalag gegn Rúss-
landi! Þeirri lygi var mótmælt, en
Rússar svöruðu með úrslitakost-
um, að sér heimilaðist að fara með
her yfir löpdin, og kröfðust svars
fyrir kvöldið. Það var ekki um
annað að gera fyrir smáríkin en
beygja sig, því að þau voru ein-
angruð. Samkvæmt sámningi Hitl-
ers og Rússa hafði Hifler getið
þeim alveg óbundnar hendur um
að fara sínu fram í Eystrasaltslönd-
unum.
Hinn 17. júní óðu svo Rússar með
heri sína inn í Eystrasaltslöndin
með skriðdreka í fararbroddi og
tóku sér stöðu í öllum helztu borg-
um. Og áður en mánuðurinn var
liðinn höfðu þeir neytt löndin til
þess að hrekja burt sínar löglegu
stjórnir, en setja kommúnista-
stjórnir í staðinn. Og svo var ekki
verið að fresta því, sem fram átti
að koma: Dagana 3.—6. ágúst létu
Rússar þessar nýu leppstjórnir gera
samning við sig um, að þessi þrjú
ríki væri tekin upp í rússneska
So vj e tr íkj asambandi ð.
Þetta skeði 9 mánuðum eftir hina
hátíðlegu yfirlýsingu Molotovs í
æðsta ra$i Sovetríkjanna um ævar-