Lesbók Morgunblaðsins - 18.09.1955, Page 9

Lesbók Morgunblaðsins - 18.09.1955, Page 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ' 509 „Anda djúpt!“ Hér er fylgzt með heilsufari apans, sem komizt hefur hærra en nokkur maður. því, sem hærra er farið. í 30.000 feta hæð mundi hver meðalmaður missa meðvitund eftir tvær mínút- ur. Og í 50.000 feta hæð mundi hann missa meðvitund á 11—17 sekúndum. Heilinn mundi verða fyrir skemmdum af skorti á súr- efni, og eftir fáar mínútur væri maðurinn dáinn. En ef maður kæm ist í 63.000 feta hæð og væri hlífð- arlaus, færi blóðið í æðum hans að freyða og frumurnar í líkamanum slitna sundur. Við þessum hættum kunna læknavísindin ráð, Þéttleika lofts- ins er haldið við inni í flugvélun- um. Þetta er nú meira að segja gert í hinum stóru farþegaflugvélum, svo að það er alkunnugt. En til- raunaflugvélar fljúga nú æði mikið hærra heldur en farþegaflugvélar. Og þessi aðferð mundi ekki duga þegar komið væri upp í 34.000 feta hæð. En vísindamennirnir hafa séð við þessu. Þeir láta flugmennina hafa súrefnisgrímur, og þegar loft- þrýstingurinn að utan er orðinn hættulega lítill, þá taka við dælur og dæla súrefninu ofan í lungun og því örar sem loftið verður þynnra. Og ef nú svo skyldi fara þegar komið er í 48.000 feta hæð, eða enn hærra, að þessi útbúnaður dugi ekki, þá hafa vísindamennirnir séð ráð við því. Þeir hafa fundið upp sérstakan fatnað handa flugmönn- unum og þennan fatnað kalla þeir „Marzbúaklæði“. Þessi föt eru ým- ist svo þröng að þau halda ákveðn- um þrýstingi að líkamanum, eða þá að þau eru blásin upp með lofti og líkaminn' hefur þannig ávallt sinn ákveðna þrýsting. Þegar flugmað- ur er í þessum fatnaði, þá getur hann dregið andanh og engin hætta er á því að blóðið fari að krauma í æðum hans. Þegar fljúga skal í 80.000 feta hæð eða hærra, verða flugmenn að vera í algerlega loftheldum klefum. Og þannig var klefinn í flugvélinni hans Murray. En þessir klefar eru enn aðeins fyrir skyndiferðir upp í háloftin. Svipaðir munu þó verða klefar þeir, sem menn verða í, þeg- ar alvara verður gerð úr því að fljúga út fyrir gufuhvolfið. Eðlisfræðingar hafa reiknað út að örlítill vottur af lofti nái allt að 960 km. út fyrir jörðina, en þetta er svo hverfandi lítið, að þess gætir ekki. Þegar menn eru komnir nær 200 km. út fyrir jörðina eða. í 630.000 feta hæð, hafa þeir þegar komizt í kast við geimgeisla, út- flæði útblárra geisla, loftsteina, kolmyrkur geimsins og upphafinn þunga. Þar bærist ekki nokkur blær, því að sameindir og frum- eindir eru þar allt of strjálar til þess að geta myndað nokkurn loft- straum. Má því segja að þar byrji tómið. En sérfræðingar gera stóran greinarmun á því að geta flogið út í tómið og hinu, að geta flogið í tóminu. Er nú mikið um það rætt að koma upp stöð í geimnum, þar sem aðdráttaraflið og miðflóttaaflið eru jafnsterk, svo að þessi stöð haldist alltaf í sömu hæð og gangi um- hverfis jörðina eins og einhver fylgihnöttur. Verður hann í fyrstu óbyggður, en vísindamenn segja að síðar muni menn hafa þar aðsetur. Og nú er keppzt við að rannsaka háloftin með mannlausum rákett- um. Ráketta, sem nefnd er „V—2“ komst upp í 400 km. hæð og náði hraða, sem nema mundi 5765 km. á klukkustund. Flugskeytið „Vik- ing“ hefur komizt í rúmlega 250 km. hæð, og með öðrum flugskeyt- um er alltaf verið að gera rann- sóknir í 120—160 km. hæð. Flug- skeyti þessi eru með alls konar vís- indaleg áhöld til mælinga og þau falla aftur til jarðar í fallhlíf. Með flugskeytinu „Aerobee" voru sendir tveir apar til reynslu og komust þeir í 58 km. hæð. Þeir voru hafðir í hólfi fremst í broddi flugskeytisins, og sveif broddurinn síðan í fallhlíf til jarðar. Aparnir voru báðir við beztu heilsu þegar þeir komu aftur til jarðar og er annar þeirra enn lifandi og er geymdur í dýragarði Smithsonian

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.