Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1956, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1956, Blaðsíða 2
150 ' LESBÓK MORGUNBLAÐSINS andi uppdráttarsýki, stafandi af geislaverkunum frá vetnis- og öðr- um kjarnorku-sprengingum, Þið segið nú, kæru áheyrendur, e. t. v. sem svo, að úr því um svo ójafna kosti sé að velja, þurfi varla að kvíða. Engum óbrjáluðum manni detti í hug að kjósa alls- herjar eyðingu fremur en friðinn. Og þetta hafa auðvitað ýmsir sagt. En: Finnst ykkur í raun og veru sem létt hafi þungum steini af brjósti heimsins við tilkomu vetn- isspréngjunnar? Kannist þið ekk- ert við, að stórveldi hafi dylgjað neitt dólgslega með kjarnorkuvopn sín allra síðustu árin? Finnst ykkur það mjög ótrúlegt, að jafnvel ein- ber vitundin um vetnissprengjur í fórum óvinveittra stórvelda geti nagað rætur Yggdrasils — lífsmeið ar þjóðanna — mannkynsins? Ekki svo sem að Ratatosk vanti heldur hér til að bera á milli óvildarorð- in, ala á tortryggni, öfund, ótta — hættulegustu ófriðarkveikjunni, sem til er. Já, hver veit, hvað nag- andi vitundin imi vetnissprengjur i ovildarríkis umráðum getur veiklað og sýkt sálir þjóðanna? Og hver veit, hverju sálsjúkur og svefnlaus maður, kannski di’ukk- inn af áfengi eða svefnlyfjum eða eiturnautnameðölum, kann að taka upp á — enda þótt þjóðarleiðtogi eigi að heita —, þegar örlögin hafa ieitt skipið, sem hann á að stýra, svo sem í úfna röst eða eyjaklasa með grynningum og sterkum sjáv- arfallastraumi? — Svo að ekki sé minnst á margvíslega mistaka- hættu... Tilvist vetníssprengj unnar feiur i sér svo yfirtaks-hræðilega ógnun við þjóðir og einstaklinga, mann- kynið alit. að allsgáður maður lilýtur að sjá í hendi sér, að nú er ekki nema um tvennt að gera: Duga — eða — deyja ella ... [Hér er felldur niður kafli] Raunverulega er aðeins um tvo kosti að velja fyrir mannkynið: Gereyðingu — eða — afdráttar- laust afturhvarf frá rfkjandi Hel- stefnu. Gereyðingin er svo yfir- vofandi — þó að vitanléga geti nokkur dregizt á langinn — og þá væntanlega samfara andlegri visn- un eða trénun þjóðanna —, að ekki þarf að láta sér detta í hug, að nein málamiðlun komi að haldi, — enda er hin yfirvofandi gereyð- ingarhætta bein og óhjákvæmileg afleiðing hinnar ríkjandi stefnu — ekki einungis né sérstaklega í stjórnmálum, heldur í viðhorfi mannkynsins við lífinu yfirleitt. Ekki svo að skilja, að menn séu endilega verri í sér en áður var, — þó að sú andlega afmenntun, sem ég vék að áðan,* sé auðvitað óumræðileg skemmd á mönnum og þjóðum, lífi þeirra og afkomu, og auki að sama skapi hina hnatt- rænu hættu okkar daga. Það, sem gerir að verkum. að ekki er um neina von að ræða fvr- ir mannkyninu. nema snúið sé ger- samlega frá rikjandi stefnu og önn- ur, henni óskyld, upp tekin, er ekki beinlínis það. að mennirnir hal'i versnað, heldur hitt, að þróunar- ferli mannkynssögunnar er þar komið, að það lífernissjónarmið — sjónarmið manndýrsins, gæti mað- ur sagt —, sera fram að þessu hefir verið. fyrst: sjálísagt og óhjá- kvæmilegt; síðan seinustu árþús undin: óheppilegt og truflandi; það er nú orðið aigerlega banvænt — vegna þess sem sé, að það getur alls ekki samræmst þeirri háþróun vísinda og tækni, sem orðin er hlutskipti mannkynsins og hefir verið svo ákaflega eftirsótt og dýrkuð undir nafninu „framfar- irnar“. Þetta eðli „framiaranna“ i háþróun er síður en svo neitt ilit i sjálfu sér. „Þetta hlaut að koma.“ En — þá er þessu þróunarstigi er náð, er mannkynið komið að tima- mótum í sögu sinni. Hið ríkiandi * 1 kaflanum, sexn úr var felldur. lífemíssjónarmið er þé orðið úrelt Og þá vís dauðí framundan, ef á því stendur að hafna því gersam- lega og taka upp annað, sem á við hin gerbreyttu lífsskilyrði... Mannkyn, sem myndað hefir sér svo fullkomin vísindi og svo full- komna tækni, að það er m. a. orðið fært um að stari'a með sjáifum undirstöðukröftum hinnar sýnilegu tilveru, — slíkt mannkyn hefir fengið í hendur þann eld, sem það er ekki færara um að fara með en óvita barn venjulegan eld, — nema — nema — nema það hafi gengist til allshugar hlýðni við æðsta boð- orð lífsins — kærleikann. Og m.a.s. dugar það varla til, út af fyrir sig. Því á þessu háþróunarstigi menningarinnaa- er stjóm raannfé- iaganna og viðskipti þeirra inn- byrðis svo margþætt, viðkvæm, flókin og vandasöm, að mannlegir sáiarkraftar hrökkva skaramt til að ráða fram úr því: Allt rekst hvað á annars horn — allt lendir í ósundurgreíðanlegri flækju — vandamálin verða svo stór, að ofur- efíi verður jafnt mannlegum skapsmunum sem mannlegum vits- munum, — nema æðri stjórnar njóti við. Maðurinn verður. úr þvi þessu stigi þróunarferils hans er náð, að njóta guðiegrar upplýsing- ar og guðiegrar handleiðslu og guðlegrar iíísmagnanar i ríkara. almennara, afdi'áttarlausara mæli en nokkuru sinni fyrr í sögu sinni — i stað þess að hann hefir, eins og óvita krakki, hrifizt svo af leik- föngum sinum þægindatækninni og ofbeldistækninm,, að hann heiir slegið aiveg slöku við samband sitt við Guð — skapara, viðhaldara. stjórnara, fullkomnara alls — Hann, sem er Faðir alls. !ífs- ins er, og hefir kunngert það mann- kyninu í lífi og dauða. upprisu og heilags anda áhrifum bezta og fuilkomnasta mannsins, sem fæðst hefir á þessari jörð; svo og að meimirnir verði að igera að nota

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.