Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1956, Blaðsíða 9

Lesbók Morgunblaðsins - 11.03.1956, Blaðsíða 9
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 157 Fleiðurs- ’élagar i'arðar: Sigurður Kristjáns- »on, Ragnar áárusson, Birgir Kjaran og Valdimar Dlafsson Níu ára drengur í Reykjavík var að leika sér að því að bregða um háls sér enda á þvottastagi, sem hekk nið- ur af hússvölum, og varð þetta til þess að hann hengdist í staginu og var lát- inn er að var komið (24.) BÍLSLYS Fjögurra ára drengur varð fyrir bíl í Reykjavik og meiddist mikið á fæti (12.) Harður bílaárekstur varð í Keflavík og slasaðist einn maður (5.) Strætisvagn og fólksbíll rákust á í miðbænum í Reykjavík og skemmdust báðir mikið, en fólk sakaði ekki (18.) Maður á reiðhjóli varð fyrir bíl í Reykjavík og meiddist mikið (19.) Sjö ára drengur í Reykjavík varð fyrir bíl og meiddist á fæti (22.) Öldruð kona varð fyrir bíl í Reykja- vík og lærbrotnaði (26.) 9. Frú Kristbjörg Jónsdóttir, Súg- andafirði. 12. Páll Friðfinnsson, Dalvík. 12. Ólafur Bjarnason starfsm. Ríkis- prentsmiðjunnar, Reykjavík. 12. Sara Benediktsdóttir, Hótel Stokkseyri. 14. Frú Karólína Sveinsdóttir, Rvík. 14. Frú Jóhanna Helgadóttir, Minni Völlum, Landi. 16. Guðlaugur Hansson fyrrv. bæar- fulltrúi, Vestmanneyum. 23. Þórður Bjarnason kaupmaður frá Reykhólum. 23. Grímur Einarsson verslunarm. frá Borg á Mýrum. 25. Magnús Þorkelsson, húsasmíða- meistari, Reykjavík. 28. J. Bjarni Pétursson, verksmiðju- eigandi, Reykjavik. SLYSFARIR Tveir ungir menn, Jon Erlendsson 26 ára og Jón Ólafsson 21 árs, hurfu í Keflavík (1.) Þrátt fyrir míkla leit fundust þeir ekki og ætla menn að þeir muni hafa farið út á sjó á bátkænu og drukknað (2.) V.b. Frosti frá Vestmanneyum varð að hleypa á land á Rangársandi í of- viðrinu mikla inn 1. Menn björguðust (3.), og báturinn náðist út lítt skemmd- ur seinna i mánuðinum. Snjóflóð fell skammt frá Örlygshöfn og kom á dráttarvél, sem var á ferð eftir veginum. Þrír menn voru á drátt- arvélinni og fóru á kaf i snjóflóðið, en gátu grafið sig upp úr því og voru ómeiddir (5.) V.b. Hólmaborg frá Eskifirði lagði á stað til Englands til þess að fá sér nýa vél, lenti í ofviðrinu í byrjun mánað- arins og hvarf. Var hans leitað af flug- vélum og skipum í viku, en fannst ekki. Á bátnum voru fjórir menn, Jens Jensen skipstjóri, Vilhelm sonur hans og Sigurður Jónasson, allir frá Eski- firði, en fjórði maðurinn, Herbert Þórðarson stýrimaður, var frá Nes- kaupstað (9.) Herflugvél frá Keflavíkurflugvelli týndist og fórust með henni þrír menn (10.) Lítil flugvél fórst á Holtavörðuheiði. Flugmaðurinn, Sveinn Eiríksson, beið bana. Hann var starfsmaður hjá Flug- félagi íslands (14.) ELDSVOÐAR Bærinn Sakka í Svarfaðardal brann til kaldra kola og varð litlu bjargað af innanstokksmunum (2.) Eldur kom upp um nótt í v.b. Stjörnu, er lá við bryggju í Hafnarfirði. Menn sem sváfu um borð, björguðust, en einn brenndist nokkuð á hendi. Allmiklar skemmdir urðu á bátnum (2.) Eldur kom upp í bænum Vindhæli í Skagafirði, og urðu þar miklar skemmdir en bóndinn brendist á andliti og höndum (10.) Brann íbúðarhús á Svaríhóli í Geira- dal. Fólk bjargaðist, en engu varð bjargað áf innanstokksmunum (18.) Bærinn Blikalón á Melrakkasléttu brann til kaldra kola um miðjan dag. I Kreml þegar Petur Thorsteins- son aíhenti ambassa- dör skilríki sín. í miðju sitja hann og Voroslii- lov forseti Raðstjórn- arrikjanna

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.